Frjáls verslun - 01.02.1987, Page 50
Nauðsyn á að útflytjendur
keppi um fiskinn
„Þetta hófst þegar ég var að
flytja út freðfisk í kæligámum
og ég hafði trú á því að þessi
flutningsmáti hentaði einnig
við útflutning á ferskum fiski.
Eg byrjaði af einskærum áhuga
þó segja megi að þetta hafi ver-
ið eins og hver önnur della því
ég hafði slæma aðstöðu til að
taka á móti fisknum, engin við-
skiptasambönd og ég þurfti að
kaupa allan fiskinn á eigin
reikning“, sagði Jón Ásbjörns-
son frumkvöðullinn í útflutn-
ingi á ferskum fiski í gámum.
Jón byrjaði í útflutningi fyrir
um 10 árum en þá flutti hann út
grásleppuhrogn en útflutning-
urinn hefur heldur betur vaxið
síðan.
Á árinu 1982 hóf Jón útflutning á
gámafiski. Síðla sumars 1982 sendi
hann út einn gám til Bretlands. Ekki
blés byrlega í þessari fyrstu send-
ingu. Hún skemmdist í sumarhita og
tap varð á öllu saman. En í október
var reynt á ný. Þrír gámar voru send-
ir út og gaf það góða raun. Næstu
tvo mánuði foru 23 gámar þannig að
í heild fóru 26 gámar fyrsta árið ef
frá er talin fyrsta sendingin. Þar með
hafði grunnurinn verið lagður að
þeim útflutningi sem hraðastur vöxt-
ur hefur verið í seinni árin og á síð-
asta ári var veltan hjá Jóni um 600
milljónir króna.
Árið 1983 flutti Jón út 215 gáma
af ferskum fiski og var hann þá með
um 80-90% af öllum gámafisknum.
Næsta ár flutti Jón út 342 gáma.
Hann var þó ekki með nema innan
við helming markaðarins það ár því
fleiri útflytjendur bættust í hópinn.
Árið 1985 var gámafjöldinn 484 og
markaðshlutdeildin um 30% og 1986
voru gámarnir 737 en ekki nema
20% af heildinni. Þessar tölur endur-
spegla vel hvað þróunin hefur verið
ör. Fyrst þegar Jón byrjaði útflutning
á ferskum fiski notaði hann kæli-
gáma en það var of dýrt. Hins vegar
kom í ljós að unnt reyndist að nota
venjulega gáma gagnstætt þvi sem
talið var og með réttri ísun og ein-
angrun duga þeir til útflutnings jafn-
vel að sumarlagi.
Útflutningur á ferskum fiski þjón-
ar tvennum tilgangi. Annars vegar
senda fiskverkendur fiskinn út þegar
verðlag er hátt til þess að auka verð-
mæti aflans og hins vegar senda
mörg fyrirtæki umframafla út, eink-
um togaraútgerðir. Þennan umfram-
afla var hér áður hægt að hengja upp
dinersclub
ikternational
Ódýrir skór
Ódýr leðurfatnaður
SÍÐUMÚLA 23, SÍMI 84131
50