Frjáls verslun - 01.09.1988, Page 27
stofn til skattlagningar, sem fenginn
er úr gögnum Hagstofu íslands, sem
fengin eru frá skattstofum landsins. I
fjölda slysatryggðra vinnuvikna er
síðan deilt með 52 (vikum) og er þá
fundinn meðalfjöldi starfsmanna eða
ársverk hjá hverju fyrirtæki. Hugtak-
ið ársverk jafngildir vinnuframlagi
eins manns í fullu starfi í eitt ár. Slysa-
tryggðar vinnuvikur geta ennfremur
speglað hlutastörf fleiri manna, sem
samanlagt inna af hendi eitt eða fleiri
ársverk innan fyrirtækis. Þetta þarf
að hafa í huga þegar verið er að bera
saman meðallaun fyrirtækja.
BEIN LAUN í MILUÓNUM KRÓNA
Hér er um að ræða heildarlauna-
greiðslur fyrirtækja samkvæmt
skattframtölum fyrirtækja. Þessar
tölur eru fengnar úr gögnum Hag-
stofu Islands. Þarna er um að ræða
beinar launagreiðslur og auk þess or-
lofsgreiðslur til lausráðinna starfs-
manna og orlof á eftirvinnu fastráð-
inna starfsmanna. Launatengd gjöld
eru að öðru leyti ekki inni í þessum
tölum.
MEÐALLAUN í ÞÚSUNDUM KRÓNA
Meðallaun starfsmanna hjá fyrir-
tæki. Talan er fundin með því að deila
með meðalfjölda starfsmanna fyrir-
tækis upp í upphæð beinna launa. Hér
er þá um að ræða meðallaun starfs-
manns miðað við vinnuframlag í fullu
starfi í eitt ár.
ALLT ER FYRIRVÖRUM HÁÐ
Það verður seint nógu rækilega
undirstrikað að varast ber að draga of
ákveðnar ályktanir af þeim upplýsing-
um, sem hér birtast. Þó er óhætt að
fullyrða að vissar ályktanir má draga
af efni listans um stærstu fyrirtæki
landsins, bæði aðallista og sérlista, og
má raunar fullyrða að þær hafa í öllum
meginatriðum reynst réttar í gegnum
árin.
Samanburður á fyrirtækjum sem
stunda ólíkan rekstur er ávallt erfiður
og varasamur. Ber að taka hann með
fyrirvara.
Hámarksþœgindi fyrir iágmarksverð. Hann er loksins
kominn stóllinn sem sameinar þessa fvo kosti.
Þessi stóll siyður vel við bakið og gœtir þess að þú
sitjir rétt. Hann er með léttri hœðastillingu, veltanlegu
þaki og fimm arma öryggisfœti.
er gœöastóll á góöu veröi.
Þetta er góö jólagjöf.
Hallarmúla 2 Sími 83211
Söluaðili Akureyri, Töivutœki — Bókval.
27
HÓIÍl AIEXANDRA AUGLÝSINGASTOFA