Frjáls verslun - 01.09.1988, Side 67
í þessu tölublaði Innskots viljum við vekja sérstaka athygli á kynningu á Kerfi hf., sem er
elsta tölvufyrirtæki landsins, og þróun viðskiptahugbúnaðarins Alvís. Við fjöllum um
IBM og grunnskólana, það helsta sem er að gerast á þeim vettvangi og samskipta-
möguleika íslenskra og danskra grunnskólanema gegnum tölvu. Einnig höfum við í
opnu, viðtal við höfunda Arðs, sem er alhliða verðbréfa- og bókhaldskerfi.
Kerfi hf.:
Stærsti samstarfsaðili IBM
Stjórnendur og nokkrir starfsmenn Kerfis hf. við kynningu á AS/400 tölvunni í
kennslustofu Kerfis. Auk fjölmargra námskeiða, sem haldin eru í eigin kennslu-
stofu, þá sjá starfsmenn Kerfis hf. um nokkur námskeið hjá Stjórnunarfélagi íslands
oglBM.
Kerfi hf. getur státað sig af mörgu,
m.a. því að það er elsta tölvufyrirtæki
landsins, stofnað árið 1954. tlpphaf-
lega var það stofnað til að skipuleggja
skrifstofustörf, en frá ársbyrjun 1984
hóf Kerfi hf. núverandi starfsemi sína.
Nú er það eitt af öflugri hugbúnaðarfyrir-
tækjum hérlendis.
Eitt af stærstu verkefnum hingað til var
þróun viðskiptahugbúnaðarins Alvís,
sem nær til flestra þátta í stjórnun ís-
lenskra fyrirtækja og stofnana. Fyrirtæk-
ið annast einnig hönnun og forritun sér-
smíðaðs hugbúnaðar og veitir tölvuráð-
gjöf og þjónustu. Á síðustu fjórum árum
hefur starfsmannafjöldinn næstum
þrefaldast eða frá 8 í 23. Starfsemin fer
fram á tveimur stöðum, í Höfðabakka 9
og Lágmúla 9.
S/36 og AS/400 tölvur
Fyrirtækið hefur yfir að ráða tveimur
stórum S/36 vélum og er fyrsta íslenska
hugbúnaðarfyrirtækið sem tekur í notk-
un AS/400 tölvuna frá IBM. Tölvan, sem
er af gerðinni B30, kom í september s.l.
Hafa starfsmenn Kerfis unnið sleitulaust
síðan við að flytja Alvís hugbúnaðinn yfir í
AS/400 umhverfi.
Alvís og samstarfið við
notendur
Alvís er mjög yfirgripsmikið upplýs-
ingakerfi sem mætir flestum upplýsinga-
þörfum fyrirtækja, og gerir allar upplýs-
ingar, sem fyrirtæki þurfa að nota, að-
gengilegar þar sem þeirra er þörf. Kerfið
er byggt upp af mörgum einingum, sem
stjórnandinn velur saman eftir þörfum.
„Eitt af sérkennum hugbúnaðarins er
að endurnýjun og efling hans er stöðluð,
þannig að notendur geta gerst áskrifend-
ur að nýjungum og endurbótum. Alvís er
sívinnslukerfi, og eru upplýsingar um
stöðuna eins og hún er hverju sinni því
ávallt til reiðu. Kerfið er byggt með sam-
tengdum einingum, en síðan má tengja
við það ýmsan sérhæfðan tengibúnað
og vinnur Alvís þá úr upplýsingum frá
honum. Einn mikilvægasti þátturinn í
„Alvís-aðferðinni“, er samstarfið við not-
endur. Allir notendur eru með sömu for-
ritin. Sveigjanleikinn er innbyggður í stýr-
ingar, sem hver og einn getur breytt að
eigin þörfum. Notendur Alvís eru stór og
KYNNING
miðlungsstór fýrirtæki og stofnanir at-
vinnulífsins. Það er einmitt gegnum not-
endur Alvís sem við fáum hugmyndir um
hvernig við getum betrumbætt og komið
á móts við kröfur og þarfir þeirra. Qóðar
hugmyndir eru settar í stöðluðu kerfin,
sem allir áskrifendur fá með nýjum út-
gáfum. Við leggjum mikla áherslu á þjálf-
að starfsfólk í þjónustu okkar við notend-
ur, ráðgjafa með sérhæfða þekkingu, ýt-
arlegar handbækur og sérhæfð
námskeið. Þetta eru lykilatriði sem
tryggja gæðin og hjálpa við að skapa
rekstraröryggi", segir Þröstur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Kerfis hf.
Alvís/400
„Með tilkomu IBM AS/400 tölvunnar
gefast ýmsir möguleikar á að nýta fyrir-
liggjandi upplýsingar enn betur og vinna
úr þeim með öðrum upplýsingum. Sam-
skipti AS/400 tölvunnar við aðrar tölvur
opna nýjar leiðir, sem munu gera upp-
lýsingar enn aðgengilegri og notagildari.
Þetta mun m.a. skapa möguleika á að
tengja saman hefðbundinn viðskipta-
búnað, skrifstofukerfi, töflureikna, graf-
ísk úrvinnslukerfi, ásamt gagnasending-
um milli tölva. Allir þessir nýju möguleik-
ar eru kannaðir kerfisbundið og verða
teknir inn í Alvís-aðferðina, þegar tryggt
er að þeir eru betri lausn en þær sem fyrir
eru. Þannig er ætlunin að þróa Al-
vís/400“, sagði Þröstur að lokum.