Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1991, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.08.1991, Blaðsíða 10
FRETTIR Haraldur Böðvarsson hf., Akranesi: HLUTAFJÁRÚTBOÐ ENDURMETIÐ - vísbending um aukinn markaðsþroska á verðbréfamörkuðunum ' Séð yfir athafnasvæði Haraldar Böðvarssonar hf. á Akranesi. Þrjú fyrirtæki í sjávarútvegi hafa verið sam- einuð þar. Sala nýrra hlutabréfa í Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi hefst þann 5. september. Hlutafé er boðið til sölu fyrir um 200 milljónir króna að mark- aðsvirði. Eins og kunnugt er sameinuðust Haraldur Böðvarsson & Co., Heimaskagi hf. og Síldar- og fiskimjölsverksmiðja Akraness undir nafninu Haraldur Böðvarsson hf. Þar með varð til eitt allra stærsta fyrirtækið í Is- lenskum sjávarútvegi, en Haraldur Böðvarsson hf. verður nú þriðji stærsti framleiðandinn innan SH, næst á eftir UA og Granda. Verðbréfamarkaður Is- landsbanka annast hluta- fjárútboðið. Það vekur at- hygli að það sölugengi, sem ákveðið var í sumar, hefur nú verið lækkað vegna breyttra aðstæðna. Glenmore Distilleries Company og United Dist- illers, framleiðandi brenndra drykkja innan Guinness samsteypunn- ar, hafa tilkynnt samein- ingu fyrirtækjanna. Eftir þessa breytingu verður hið sameinaða fyrirtæki hið þriðja stærsta í þess- ari atvinnugrein í Banda- ríkjunum með um 14% markaðshlutdeild. Þess má geta að Glen- Upphaflega var ákveðið að bjóða hlutabréfin á gengi 3.60, en það hefur nú verið lækkað niður í 3.10. Með þessu endur- mati birtist aukinn mark- aðsþroski hjá íslenskum verðbréfamörkuðum sem hingað til hafa nær ein- göngu hækkað verð hlutabréfa. Um lækkun á gengi hlutabréfa í Flug- leiðum gildir hið sama. Þar eru verðbréfafyrir- tækin að bregðast við breyttum aðstæðum og viðbrögðum markaðar- ins. Astæður þess að sölu- gengi hlutabréfa í Haraldi Böðvarssyni hf. er lækk- að með þessum hætti má rekja til skerðingar afla- heimilda, lakari rekstr- arafkomu á fyrri hluta þessa árs og breyttra að- stæðna á verðbréfamark- aði. more Distilleries er sam- starfsaðili ÁTVR um framleiðslu á Eldurís vodka. Meðal þekktra fram- leiðsluvara þessara fyrir- tækja má nefna Dewar’s og Johnnie Walker skoskt viský, Tangueray gin og vodka og Gordons gin og vodka auk fjölda annarra tegunda af viský, vodka og líkjörum. Botnfiskkvóti fyrir- tækisins fyrir tímabilið 1. september 1991 til 31. ágúst 1992 er 11.500 tonn sem svarar til um 8.900 tonna af þorski. Skip fyrirtækisins veiddu um 13.500 tonn af botnfiski árið 1990. Að auki hefur fyrirtækið yfir að ráða 8.5% af úthlutuðum loð- nukvóta landsmanna. Til þess að mæta fyrir- sjáanlegum aflasam- drætti hyggst fyrirtækið leggja einum af togurum sínum og leitast við að selja hann án kvóta. Jafn- framt er stefnt að því að loka öðru frystihúsinu í sparnaðarskyni. Samein- ing fyrirtækjanna á Akra- nesi, fyrr á þessu ári, ger- ir stjórnendum Haraldar Böðvarssonar hf. kleift að grípa til ráðstafana af þessu tagi til að tryggja afkomu fyrirtækisins þó staðið sé frammi fyrir skerðingu aflaheimilda. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIF, er formaður félagsins. Aðrir í stjórn eru þau Sturlaugur Sturlaugsson, Matthea Sturlaugsdóttir, Hallgrímur Hallgríms- son, Kristinn Björnsson, Óli Kr. Sigurðsson og Þorgeir Haraldsson. Framkvæmdastjóri er Haraldur Sturlaugsson. Eftir hið nýja hlutafjár- útboð verður markaðs- verð hlutabréfa í Haraldi Böðvarssyni hf. rétt um einn milljarður króna, miðað við gengið 3.10. Afkomendur Haraldar Böðvarssonar eiga stærstan hlut í félaginu, en meðal annarra hlut- hafa má nefna Verðbréfa- sjóði VÍB hf., Skeljung hf., Olís hf., Draupnis- sjóðinn hf. og Hlutabréfa- sjóðinn hf. Hluthafar eru alls um 500. Áfengisframleiðsla í Bandaríkjunum: GLENMORE OG UNITED DISTILLERS SAMEINAST 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.