Frjáls verslun - 01.08.1991, Blaðsíða 51
þið t.a.m. útibú frá Freemans á Eng-
landi?
„Nei, við erum sjálfstætt fyrirtæki
og með umboð fyrir Freemans hér á
landi. Þeir skipta sér ekki af rekstrin-
um á Islandi en fylgjast þó vel með
hvernig gengur og leggja áherslu á að
við stöndum okkur í samkeppninni.
Þó að við séum algerlega sjálfstæðir
hér eru samskiptin okkar á milli mjög
mikil og góð. Við eigum að sjálfsögðu
allt okkar undir því að Freemans
gangi vel á Englandi. Það hafa verið
hræringar á markaðinum þar undan-
farin ár og fyrirtæki keypt og seld.
Freemans státaði sig af því að vera
stærsta póstverslunin á Englandi,
þ.e.a.s. ekki í eigu móðurfyrirtækis,
þar til Sears, sem er eitt af stærstu
fyrirtækjum í verslunarrekstri á Eng-
landi, keypti Freemans of London í
byrjun ársins 1988. Sears á margar
frægar verslanir í miðborg Lundúna,
meðal annars stórverslunina Selfrid-
ges við Oxfordstræti, sem margir ís-
lendingar þekkja. Menn óttuðust að
þegar risafyrirækið tæki yfir yrðu all-
ar ákvarðanir erfiðar og seinar og það
kæmi niður á rekstri Freemans. Það
hefur þó sem betur fer ekki orðið
raunin og óhætt að segja að samein-
ingin hafi styrkt rekstur póstverslun-
arinnar mjög. Hjá Freemans á Eng-
landi vinna nú um 5.500 starfsmenn,
en velta Sears nam 225 milljörðum
króna árið 1990.“
VIÐSKIPTAVINIRNIR ÚRÖLLUM
STÉTTUM 0G Á ÖLLUM ALDRI
Hvers konar fólk verslar við póst-
verslanir?
„Nú spyrðu stórt. Þetta eru ekki
einhverjar sérstakar manngerðir, ef
það er það sem þú átt við. Þetta er
fólk á öllum aldri og alls staðar að af
landinu sem verslar við okkur. Skipt-
ingin hjá okkur hjá Freemans er þann-
ig að 55% af þeim heimilum sem við
okkur skipta eru á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu, en afgangurinn dreifist
um landið. Ástæðu þess að meirihluti
viðskiptavina okkar er hér á höfuð-
borgarsvæðinu tel ég fyrst og fremst
vera staðsetningu okkar á svæðinu.
Upphaflega var hlutfall lands-
byggðarinnar stærra. Við áttum þar
miklu fylgi að fagna og eigum enn en
hlutfallið hefur breyst smám saman
þar sem aukning viðskipta hefur verið
meiri hér á suðvestur-horninu. Við
fundum fyrir sterkum viðbrögðum
fyrstu árin frá fólki úti á landi. Það var
greinilegt að því þótti gott að hafa
mikið úrval af varningi svo að segja
við höndina og geta sleppt verslunar-
ferðum til Reykjavíkur.“
Eruð þið með áskrifendur að vöru-
listanum ykkar?
„Nei, ekki alveg. Þetta fer þannig
fram, hjá okkur, að við sendum þeim
lista sem versluðu við okkur úr listan-
um á undan. Undanfarin ár höfum við
þannig afhent milli 11.000 og 12.000
lista til viðskiptavina. Upplagið er þó
stærra þar sem við seljum listann
einnig til nýrra viðskiptavina. Það
myndast oft mikil örtröð hérna hjá
okkur þegar við sendum út tilkynn-
ingu um að nýr listi sé kominn og að
fólk geti sótt hann.“
TOLMI PAPPJPj
Eigum á lager flestar gerðir af tölvupappír
Fyrirliggjandi
Umhverfisvænn pappír
Endurunninn pappír
SOl
J—> PRENTSTQFA HF.
Nýbýlavegi 30 • Kópavogi ■ Sími 641499 • Fax 641498
51