Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 15
íslendingum er frjálst að ákveða sjálfir hver skuli fylgjast með tönnum þeirra eða almennu ástandi líkamans. En
þeim er ekki treyst til að ákveða hver skoði bílana þeirra!
umboði hins opinbera. Hérlendis var
ákveðið að fara sömu leið.
Sérstök nefnd var skipuð haustið
1987 til að fjalla um fyrirkomulag á
skoðun og skráningu ökutækja.
Ræddu nefndarmenn ítarlega hvort
bæri að efla Bifreiðaeftirlitið til að
byggja fullkomnar skoðunarstöðvar
eða hvort eðilegra væri að stofna
hlutafélag um rekstur fyrirtækis er
sinnti verkefninu. Fljótlega komust
menn á þá skoðun að síðari valkostur-
inn væri heppilegri en ágreiningur
reis um það hver skyldi verða hluti
ríkisins í slíkum rekstri. Formaður
nefndarinnar, Björn Friðfinnsson að-
stoðarmaður ráðherra og núverandi
ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytis-
ins, lagði til að ríkissjóður legði til 41
milljón af 80 milljóna króna hlutafjár-
stofni. Niðurstaðan varð sú að ríkis-
sjóður á helming hlutafjárins en aðrir
hluthafar eru tryggingarfélög og fyrir-
tæki, eða samtök, sem tengjast bif-
reiðaeign og þjónustu við bílaeigend-
ur.
Stjórnarformaður fyrirtækisins er
nú Þorsteinn Geirsson ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu en með
honum í stjórn eru Einar Sveinsson
„Þrátt fyrir áköf mótmæli ýmissa
aðila gegn þessari ráðstöfun á sínum
tíma, þótti meirihluta þingmanna
eðlilegt að veita hinu nýstofnaða
hlutafélagi einokunaraðstöðu og
jafnan hefur verið blásið á rök þeirra
sem benda á hætturnar sem slíku
ráðslagi eru samfara.“
forstjóri Sjóvá-Almennra, Ingi R.
Helgason forstjóri Vátryggingafélags
Islands, Friðjón Guðröðarson sýslu-
maður, Stefán Ó. Magnússon frá Fé-
lagi íslenskra bifreiðaeigenda, Guð-
mundur Hilmarsson formaður Félags
bifvélavirkja og Björn Ómar Jónsson
frá Bflgreinasambandinu. Fram-
kvæmdastjóri Bifreiðaskoðunar ís-
lands hf. er Karl Ragnars verkfræð-
ingur.
Eftir allnokkrar umræður á löggjaf-
arsamkomunni voru samþykkt ný lög
er kváðu á um að Bifreiðaeftirlit ríkis-
ins skyldi lagt niður og tók Bifreiða-
skoðun fslands hf. til starfa í ársbyrj-
un 1989. Jón Sigurðsson, þáverandi
dómsmálaráðherra, lagði fram stjóm-
arfrumvarp um stofnun fyrirtækisins
og var það samþykkt af langflestum
þingmönnum.
Hér verður ekki hirt um að rifja upp
í smáatriðum nýmælin við gildistöku
laganna um bifreiðaskoðun, en þau
leystu af hólmi lög frá árinu 1964. Þau
voru að stofni til þau sömu og gilt
höfðu frá árinu 1928. Meginbreyting-
arnar voru hins vegar fólgnar í mun
strangari kröfum til skoðunar öku-
tækja og tekið var upp fastnúmera-
15