Frjáls verslun - 01.08.1991, Qupperneq 42
TÖLVUR
gengust um þessar mundir en sú
fjórða er komin á markaðinn fyrir
nokkru. Kerfi á borð við Clipper,
Forth Dimension o.fl. eru t.d. af
fjórðu kynslóð.
Því lengra sem forritunarmál hefur
verið þróað frá upprunalega vélarmál-
inu og smalanum telst það æðra eða
þróaðra.
Það er eins með forritunarmál og
bfla að notkun hvors um sig er í
grundvallaratriðum sú sama þótt teg-
undirnar séu margar og misjafnlega
dýrar eftir gerð og búnaði. Forritun-
armál eru mismuandi. Sumum finnst
auðveldara að læra eitt málið en öðr-
um annað.
Með forritunarmáli og vélarmáls-
þýðara er hægt að láta tölvugjörva
framkvæma ákveðnar skipanir sam-
kvæmt fastaforriti gjörvans. En tölv-
an eða gjörvinn ein og sér koma ekki
að miklu gagni, til þess þarf ýmis önn-
ur tengd tæki. Vélbúnaður tölvu-
kerfis er samstæða ýmissa eininga,
svo sem tölvu, gagnageymslu, skjás,
hnappaborðs, prentara o.s.frv. en
saman mynda vélbúnaður og hugbún-
aður nothæft tölvukerfi.
STÝRIKERFI
í tölvukerfi þurfa að gilda fastar
reglur um ferli skipana og aðgerða.
Til þess þarf sérstök „umferðarlög",
sem nefnist einu nafni stýrikerfi, en
það eru nokkur sjálfstæð kerfi sem
vinna saman að því að stjórna mið-
verki og jaðartækjum. Innra stýri-
kerfið geymir m.a. fastaforrit gjörv-
ans á tölvukubbum (ROM = Read
Only Memory) og annast m.a. flutn-
ing gagna í vinnslu á milli gjörva og
innra minnis (RAM = Random Acess
Memory) einnig nefnt vinnsluminni.
Innra stýrikerfið tilheyrir tölvunni.
Ytra stýrikerfið (DOS sem er
skammstöfun á Disk Operating Syst-
em), sem er á lausum eða föstum
diski, stjómar notkun gagnamiðla svo
sem diska og segulbanda.
Á sama hátt og umferðarlög eru
öðru vísi í Nigeríu en á Islandi er
stýrikerfið DOS frábrugðið stýrikerf-
inu CP/M, sem er frábrugðið UNIX,
sem er frábrugðið Apple DOS
o.s.frv. Hver einstök tegund gjörva
Allt í fundaherbergið og kennslustofuna
Sýningartjöld
Myndvarpaborð
SIMDA skyggnusýningarvélar
Framleiðum einnig litglærur og
litskyggnur fyrir kynningarfundi.
A+K Visuline kerfið,
fyrir upplýsingamiðlun og framsetningu.
A+K
Skrlftðflur
Flettltðflur
Stungutðflur
Bækllngahlllur
Sýnlngartðflur
A+K
Laser bendlar
• DragalOOm
• Þyngd 60
A+K
Top-Lux myndvarpar
• Niðurfellanlegur armur
TEIKNIÞJÓNUSTAN sf>, funda- og kennslubúnaður QAI A . I CIQA
BOLHOLTI 6- 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91-812099 • FAX 91-686019 WrtLrt LLlMH