Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 56
ERLENT
Bandarískir viðskiptaskólar í
vandræðum
Viðskiptaskólar í Bandaríkj-
unum miðla ekki nemendum
sínum því sem vinnuveitendur
leita helst eftir: forystuhæfi-
leikum, sköpunargáfu, sam-
starfshæfni. Afleiðingin er sú að
fyrirtækin sjá í auknum mæli
sjálf um þjálfun starfsfólks í
stjórnunarstöður eða ráða jafn-
vel til þeirra starfsmenn með
alls óskylda menntun.
Viðskiptaskólar í Bandaríkjunum (Bus-
iness schools) útskrifa nemendur með
MBA gráðu (Master of Business Admin-
istration) sem er meistaragráða í við-
skiptafræði. Viðskiptaskólarnir eru yfir-
leitt útibú hefðbundinna háskóla, námið
tekur oftast tvö ár og inntökuskilyrði eru
ekki endilega BA próf í viðskiptafræði,
þótt það sé algengast. Námið er dýrt og
skólagjöld fyrir þessi tvö ár liggur kringum
fjórar milljónir og jafnvel rúmlega það í
bestu skólunum en á móti kemur að MBA
gráða úr góðum skóla opnar mönnum
greiða leið inn í stærstu fyrirtækin vestan-
hafs. Nú virðist breyting ætla að verða þar
á. Fyrirtækin eru sífellt tregari til að ráða
nýútskrifað MBA fólk og byrjunarlaun eru
oft mun lægri en búist er við, sérstaklega
þegar tekið er tillit til hinna háu skóla-
gjalda.
Þegar vel er að gáð þarf þessi þróun
reyndar ekki að koma neinum á óvart.
Kennsla í viðskiptaskólum er að mestu úr
takt við viðskiptalífið. Starfsmannastjórar
kvarta undan því að nýráðna starfsmenn
með MBA gráðu vanti alla þá hæfileika
sem einkenni góða stjómendur nútímans:
hæfileikann til að umgangast fólk, sköpun-
arhæfni, hópsamstarf, getu til að tjá sig
skipulega skriflega og munnlega. Að hluta
má skella skuldinni á kennsluna sjálfa.
Prófessorar við viðskiptaskólana eyða
mest öllum tíma sínum í að sinna rann-
sóknum og greinaskrifum innan þröngra
fræðigreina en láta allar nýjar stefnur í
stjómun og rekstri fyrirtækja fram hjá sér
fara. Þeir fylgjast lítið með þeirri miklu
þróun sem hefur orðið á sviði tölvutækni
og gagnasöfnunar. Svokölluð gæðastjórn-
un (quality managament) sem er ein helsta
kennisetning nútímans í fyrirtækjastjórn-
un ruddi sér til rúms á síðasta áratug og
byggir á samkeppni milli deilda innan fyrir-
tækja. En gæðastjórnun er næstum
óþekkt hugtak meðal prófessora við-
skiptaskólanna. Hver vill ráða til starfa
fólk sem hefur umgengist slík nátttröll í
tvö ár?
Viðskiptaskólarnir em farnir að þreifa
fyrir sér með breytingar sem geti á ein-
hvern hátt bætt úr stöðunni en hætt er við
að það sé orðið of seint. Framsýn fyrir-
tæki em mörg hver farin að fylgja fordæmi
stórfyrirtækisins General Electric, þ.e.
að sjá sjálfir um þjálfun og menntun starfs-
manna, í stað þess annað hvort að ráða
menn sem búnir eru að ljúka MBA gráðu
eða þá að senda starfsmenn sína til náms í
viðskiptaskóla eins og lengi hefur tíðkast.
Því er haldið fram að kennsla á vegum GE
sé mun betur í takt við tímann en það sem
fram fer innan viðskiptaskólanna. Yfir-
menn GE líta svo á að nær sé að ráða
starfsmenn með góðar BS eða BA gráður í
raungreinum, stærðfræði, hugvísindum
eða lögfræði og kenna þeim síðan það sem
þeir þurfa í raun að vita um starfið, í stað
þess að ráða mun dýrari starfsmenn, með
MBA próf en litla gagnlega þekkingu. Þá
er einnig bent á að ekki nema hluti af því
fólki sem hefur hæfileika til að verða góðir
stjórnendur fara í viðskiptaskóla. Afgang-
urinn fer oft í aðrar greinar innan háskóla
en eru ekki síður efnilegir stjórnendur
þegar þeir útskrifast. Því sé skammsýni
að leita einungis innan veggja viðskipta-
skólanna eftir starfskröftum.
ELDRIOG REYNDARI
Nám í viðskiptaskólum er bæði strangt
og dýrt enda ætlast nemendur til þess að
þeir geti gengið inn í vel Iaunuð störf að
námi loknu. Launakröfur þeirra sem út-
skrifast með MBA gráðu hafa heldur auk-
ist, enda eru þeir nú af nokkuð öðrum toga
en á árum áður. Eftir því sem aðsókn að
viðskiptaskólum hefur aukist hafa skólarn-
ir í síauknum mæli tekið inn eldri nemend-
ur sem hafa þegar sannað að þeir geti
staðið sig í viðskiptalífinu. Nú er algengast
að menn fari í viðskiptaskólana eftir allt að
fimm ára vinnu og útskrifist 29 ára, komnir
með töluverða starfsreynslu auk dýrrar
menntunar og vilja fá góð laun fyrir vikið.
Fá fyrirtæki hafa nýtt sér þessa breyt-
ingu á hinum hefðbundna MBA manni.
Sum þeirra ráða núna færri MB A menn en
láta þá fá meiri ábyrgð strax í fyrstu og
nýta þannig betur starfsreynslu þeirra.
Önnur fyrirtæki vilja helst að MBA menn
séu látnir spreyta sig sem sölumenn en á
þann hátt kynnast þeir bæði viðskiptavin-
um fyrirtækisins og vörunum sem það
framleiðir. A móti kemur að þeir verða að
sætta sig við lág laun fyrstu 18 til 24 mán-
uðina. Fyrirtæki á borð við AT&T vinna
að því að endurmeta þörf fyrirtækisins á
MBA mönnum, hvort réttara sé að fara
eftir fordæmi General Electric og ráða
menn með BA eða BS gráður eða hvort
eigi að breyta þeim störfum sem MBA
menn gegna innan fyrirtækisins þegar þeir
koma inn í það. Aukinn þroski og starfs-
reynsla MBA manna er vissulega kostur
en vanhæfni þeirra í mannlegum sam-
skiptum almennt er stór ókostur.
MJÚKA LÍNAN
Það er erfitt að henda reiður á því sem
viðskiptaskólamir nefna gjarnan háðulega
„mjúku hæfileikarnir". Þó er það einmitt
þessir hæfileikar sem ráðningastjórar
fyrirtækja leita eftir fyrst og fremst hjá
umsækjendum. Og jafnframt virðist sem
viðskiptaskólarnir séu síst til þess fallnir
að efla þessa „mjúku“ hæfileika. í nýlegri
könnun meðal ráðningarstjóra stórra
fyrirtækja (með 50,000 starfsmenn að
meðaltali) kom fram að það sem þeir leit-
uðu fyrst og fremst eftir í fari umsækjanda
í stjórnunarstöður var færni í tjáskiptum.
Aðrir hæfileikar sem þeir töldu mikilvæga
voru: hæfileikinn til að vinna með öðrum,
að geta útbúið munnlegar og skriflegar
greinagerðir, að geta hugsað sjálfstætt og
að geta haft yfirumsjón með öðru fólki.
Ekkert var minnst á færni í hinum hefð-
bundnu greinum viðskiptaskólanna.
Þegar þessir sömu aðilar voru spurðir
að því hvaða úrbætur þeir vildu helst sjá á
viðskiptaskólunum þá nefndu þeir þessa
þætti alla en þó vildu þeir fyrst og fremst
að skólarnir kenndu nemendum sfnum að
gera sér raunsærri hugmyndir um það
sem biði þeirra eftir að þeir útskrifuðust.
56