Frjáls verslun - 01.08.1991, Blaðsíða 62
MENNTUN
Ragna Ólafsdóttir og Ásta Kr. Ragnarsdóttir í Námsráðgjöf Háskóla íslands:
Aðstoð við val á námsleiðum byrjar allt of seint í skólakerfinu. Og þegar
valið hefst vantar upplýsingar um það sem þarf að taka afstöðu til.
HVERIAR ERU ÞARFIRNAR?
Hér er auðvitað komið að lykil-
spurningunni um það hvaða kröfur
samfélagið getur gert til einstakling-
anna um nám og störf. Er það heilag-
ur réttur hvers frjáls borins manns að
velja sér námsbraut, óháð því hvort
það sé „hagkvæmt“ eða ekki. Sið-
fræðin fer að spila inn í en einnig má
spyrja hvort einhverjum sé gerður
greiði með að fá aðstöðu til að stunda
nám sem hann getur aldrei lifað af.
Margt forvitnilegt kemur í ljós
þegar við skoðum hvaða námsgreinar
íslensk ungmenni lögðu stund á er-
lendis á síðasta skólaári. Á sama tíma
og verkmenntun í landinu stendur
höllum fæti og undirstöðugreinar
hennar eiga í kreppu, leggja hundruð
íslendinga stund á nám sem margt
bendir til að veiti þeim litla sem enga
möguleika á að sjá sér eða sínum far-
borða. Grípum niður í námsgreina-
lista Lánasjóðs íslenskra námsmanna
sl. skólaár. Innan sviga er fjöldi þeirra
sem stunduðu lánshæft nám í við-
komandi grein:
Arkitektúr (131), byggingaverk-
fræði (33), dans (7), fatahönnun (33),
ferðamálafræði (34), félagsfræði
(22), fjölmiðlun (95), flugrekstrar-
fræði (24), hagfræði (86), heimspeki
(20), hnykklækningar (4), hótelstjórn
(47), hýbýlafræði (42), kvikmynda-
gerð (49), leikhúsfræði (13), ljós-
myndun (42), mannfræði (23), mark-
aðsfræði (101), myndlist (54), sálar-
fræði (52), viðskiptafræði (151). —
Látum þetta duga.
Hér skal enginn dómur lagður á það
hvort þessar námsgreinar séu þess
verðar að á þær sé lögð stund eða
ekki. Slík mælistika er ekki til og
verður sennilega aldrei til. En það
sem er ábyrgðarlaust af hálfu stjórn-
valda, er sú staðreynd að mennta-
stefna liðinna áratuga hefur verið í
Polaroid
skjásíur sem hindra speglun
og geislun frá tölvuskjám.
Tölvuskjáir gefa frá sér geisla sem þreyta augun og erta
húðina. Þessir geislar draga líka að sér ryk og annan
óþrifnað svo að oft er tölvuskjárinn loðinn af
óhreinindum. Fyrstu einkenni þess að geislarnir valda
óþægindum eru þau að menn þorna í húð, verða þurrir
í hálsi, þreyttir í augum og geta fengið útbrot sem
hverfa seint. Skjásíur eru jarðtengd geislavörn sem
varnar því að óhreinindi og geislar streymi frá skjánum
á andlit þitt. Jafnframt brjóta skjásíurnar niður Ijósið,
sem þýðir að glampi á skjánum er úr sögunni.
Þannig eyðir nýja Polaroid CP sían skjáglýju. Vinnuljós sem endurkastast frá
tölvuskjá stöðvast í Ijósgildru Polaroid skjásíunnar. Sian hleypir einungis Ijósi
skjámyndarinnar í gegnum sig og skilar því skýrari og glýjulausari skjámynd.
TDLUUHEH5TUR HE
Bolholt 6, 5. hæö ■ 105 Reykjavík ■ Sími: 678240
Telefax: 678241 Opiö frá kl. 9-12 & 13-17
62