Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 6
EFNI
8 FRÉTTIR
58 ÁSTAND OG HORFUR
Frjáls verslun hefur haft þann sið á
undanförnum árum að leita til manna úr
atvinnulífinu og fá fram skoðanir þeirra á
horfum við áramót. Við báðum átta
forystumenn íslenskra fyrirtækja að
svara spurningum um árið sem var að
líða, horfur á komandi ári og það hvort
þeim litist á stefnu ríkisstjómarinnar í
efnahags-og atvinnumálum. Um er að
ræða menn úr sjávarútvegi, iðnaði,
verslun, þjónustustarfsemi og
bankarekstri.
66 BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA
5 RITSTJÓRNARGREIN
16 MENN ÁRSINS
Frjáls verslun og Stöð 2 velja nú menn
ársins í viðskiptalífinu á íslandi í fjórða
sinn. Nefnd sex manna annast valið og
eru úrslit kunngerð á milli jóla og nýjárs
ár hvert. Tilgangurinn með þessu er sá
að vekja athygli á því sem vel er gert í
atvinnulífi landsmanna og efna til
jákvæðrar umræðu.
Að þessu sinni urðu feðgamir
Þorvaldur Guðmundsson í Sfld & fisk og
Skúli Þorvaldsson á Hótel Holti fyrir
valinu. Þeir eiga báðir að baki glæsilegan
og farsælan feril í viðskiptum, Þorvaldur
í nær hálfa öld og Skúli allt frá því hann
lauk námi. Samstarf þeirra hefur reynst
báðum vel en þeir hafa valið að hafa
skýrar línur í viðskiptum sín á milli. Sem
dæmi um það má nefna að Þorvaldur
Guðmundsson er eigandi
hótelbyggingarinnar en Skúli leigir hana
af honum og rekur hótelið fyrir eigin
reikning. Þannig hefur það verið í 12 ár,
en áður starfaði Skúli hjá föður sínum.
Rekstur þeirra feðga tengist með
ýmsum hætti, en þeir hafa hvor sinn stfl
- þó ýmislegt sé líkt með þeim - enda
heil kynslóð á milli þeirra. Þorvaldur
varð áttræður í byrjun desember. Hann
er í fullu fjöri og hefur ekki uppi áform
um að draga saman seglin. Hann rekur
nú svínabú að Vatnsleysu svo og
kjötvinnslu í Hafnarfirði. Ali-merkið er
þekkt fyrir gæði og hefur lengst af
tengst nafni fyrirtækisins sem Þorvaldur
er jafnan kenndur við, Sfld & fisk.
35 EES
Bjami Vestmann, fréttamaður, flallar um
EES og málefni Evrópubandalagsins.
Hann hefur stundað háskólanám í
Evrópufræðum í Belgíu.
39 TÖLVUR
Leó M. Jónsson, véltæknifræðingur,
skrifar um tölvumál fyrir blaðið.
46 ÞRÁLÁTUR ORÐRÓMUR
Hér er fjallað um þann skaða sem hlotist
getur af orðrómi og rógi jafnt í
viðskiptum og einkalífi fólks. Oft geta
fjaðrir orðið að heilum hænum og
þrálátur orðrómur getur endað með því
að verða heilagur sannleikur í hugum
fólks - þó ekki sé fótur fyrir honum.
48 MIAMI
Athygli vekur hve mikill uppgangur hefur
verið í viðskiptum og fjármálalífi á Miami
í Bandaríkjunum. Hér er birt þýdd og
endursögð grein þar sem lýst er þróun
þar og leitað skýringa á þessum
uppgangi.
55 HEILSA
Uggi Þórður Agnarsson, læknir, fjallar
að þessu sinni um gleymni.
6