Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 8

Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 8
FRETTIR BANDARÍKIN: KOSNINGAR HAFA ÁHRIF Á HLUTABRÉFIN Hlutabréfamarkaður- inn vestra hefur verið sterkur að undanförnu þrátt fyrir krepputal og veikan dollar. Vextir eru lægri en þekkst hefur og sú staðreynd hefur orðið hlutabréfamarkaðinum til styrktar. Demókratar eru farnir að hita sig upp fyrir for- setakosningarnar og hafa dregið upp svarta mynd af stöðu mála í Bandaríkj- unum. Staðreyndin er hins vegar sú að kosning- ar hafa jafnan haft góð áhrif á hlutabréfamark- aðinn, ekki síst vegna þess að oft hefur verið til- hneiging til að lækka skatta á síðasta ári fyrir kosningar. Gagnrýni Demókrata á George Bush snýst nú einkum um það að forset- inn og stjórn hans hafi ekkert gert til að efla efnahagslífið í Bandaríkj- unum heldur hafi öll ork- an farið í að gegna hlut- verki alþjóðalögreglu. Þeir gera kröfu til þess að forseti Bandaríkjanna hugsi meira um heima- hagana og minna um það sem á bjátar víðs vegar um heiminn. KNÚTUR TIL GUBNA í SUNNU Knútur Óskarsson, fyrrum frarnkvæmda- stjóri ferðaskrifstofanna Urvals og Urvals-Utsýnar hefur nú ráðið sig til starfa hjá Flugferðum- Sólarflugi, ferðaskrif- stofu Guðna Þórðarsonar sem jafnan er kenndur við Sunnu. Verkefni Knúts verður aðallega að sjá um inn- flutning erlendra ferða- manna til íslands, en fyrirtækið hefur þegar opnað söluskrifstofu í London. Knútur Óskarsson er 39 ára. Hann er við- skiptafræðingur að mennt. Knútur Óskarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Urvals- Útsýnar hefur verið ráðinn til Flugferða-Sólarflugs, fyrir- tækis Guðna í Sunnu. Indriði G. Þorsteinsson hættir sem ritstjórí Tímans: A Eg held þetta verði verra en NT- ævintýrið -segir hann um fyrirhugaða stofnun nýs dagblaðs INDRIÐI G. Þorsteinsson ritstjóri Tímans hefur ákveðið að láta af störfum um áramót. Hann segir aðspurður að sér hafi ekki verið boðið að taka þátt í stofnun nýs dagblaðs og ekki heldur haft áhuga á því. „Mér sýnist það vera mikið snjallari menn sem eru að fást við hlaðaútgáfu núna. Ég held að þetta verði bara nýtt NT-ævintýri og öllu verra en það ef eitthvað er,” segir hann. Að sögn Hrólf8 ölvissonar, framkvæmdastjóra Tímans, er ákveðið að stöðva ekki útgáfu Tímans um áramót eins og áður hafði verið ákveðið. Segir hann að framhald útgáfunnar á næsta ári muni ráðast af undirt)úningi að stofnun nýja dagblaðsins. Upp- sagnir starfsfólks Tímans miðast ..;n a__a — u-aia.. —-* ( enga stjóm á því nema einhverja skoðanakönnun, sem var afar furðuleg,” segir hann. Indriði telur fullvíst að hægt hefði verið að tryggja áframhald- andi útgáfu blaðsins. Tírninn hefði séð það svart áður en ávallt rifið sig upp á ný. „En það er einhver rosalegur vilji til að sameinast að ákveða fyrirfram að nýja blað- ið verði ópólitískt. Það þýðir að Alþýðubandalagið og Framsókn eru að taka sig fram um áð hafa ekki nokkum blaðakost á sama tfma og önnur blöð, eins og Morg- unblaðið og DV, hafa ekki minnst einu orði á að þau ætli að breyta til þjá sér. Greiðslur til Hvíta hússins Þetta er afskaplega skrítið og vanhugsað mál. Eg heid að þetta sé aðallega gert til að skapa ein- hverjum atvinnu við undirbúning- inn. Mér skilst að menn hafi góð Indriði G. Þorsteinsson niður. „Hann á sér 75 ára sögu o g hefur komið mikið við þjóðmál- in og tekið þátt í uppbyggingu samfélagsins. En út af einhveijum bissnesgangi og dellu er nú rokið til og Tíminn lagður niður,” segir INDRIÐIG. ÞORSTEINSSON SVARTSÝNN Á NÝTT DAGBLAÐ: VERRA EN NT-ÆVINTÝRID? Það vakti athygli hve hvassyrtur Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Tímans, var í viðtali við Morgunblaðið nú í des- ember þegar hann var spurður álits á þeim hug- myndum sem nú eru uppi um stofnun nýs dagblaðs. Indriði sagði m.a.: „Eg held að þetta verði bara nýtt NT-ævintýri og öllu verra en það ef eitthvað er.“ En þá vaknar spurning- in: Hve stórt var NT-æv- intýrið í krónum talið? Til að nálgast svar við þeirri spurningu er hægt að rifja upp að þegar Verksmiðjan Vífilfell hf. keypti skattaleg töp NT í árslok 1988 námu þau um 140 milljónum króna á verðlagi þess tíma. Á nú- verandi verðlagi nemur sú fjárhæð rúmum 200 milljónum króna ef miðað er við byggingarvísitölu. Samkvæmt því er ekki fjarri lagi að tapið á NT- ævintýrinu hafi numið meira en 200 milljónum á þeim skamma tíma sem blaðið var gefið út. Þá er miðað við núverandi verðlag. Hér er ekkert mat lagt á það hvort NT og hið fyrirhugaða dagblað eiga eitthvað það sameigin- legt sem gefur ástæðu til þeirrar svartsýni sem Indriði lýsti í viðtalinu við Morgunblaðið. Hann hyggst láta af störfum hjá Tímanum og ætlar ekki að Ieggja nýja blaðinu lið, enda hefur honum ekki verið boðið að taka þátt í stofnun þess. 8

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.