Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Qupperneq 13

Frjáls verslun - 01.12.1991, Qupperneq 13
FRETTIR VERÖLD: w TILBOÐ FEÐGANNA FYRIRSLATTUR - FLEIRI í ÁBYRGÐUM EN SVAVAR EGILSSON Dauðastríð Ferðamið- stöðvarinnar Veraldar hefur verið til stöðugrar umfjöllunar fjölmiðla að undanförnu. Þegar þess- ar línur eru skrifaðar þann 17. desember er fyrirtækið ennþá starf- andi og búið að standa skil á farmiðauppgjöri til Flugleiða en ferðaskrif- stofurnar greiða farmiða- úttektir sínar til félags- ins tvisvar í mánuði. Bregðist greiðslur er tal- ið stutt í endalokin. í fjölmiðlum kom fram að Andri Már Ingólfsson væri hættur að starfa fyrir Veröld. Hann sagð- ist hafa gert tilboð í kaup á rekstri fyrirtækisins og verið með tilbúnar 40 milljónir króna til að leggja fram sem hlutafé. Þeir sem til þekkja eru þess fullvissir að tilboð þetta hafi verið fyrirslátt- ur og til þess hugsað að búa til ágreining við Svavar Egilsson svo brottför Andra, og föður hans Ingólfs Guðbrands- sonar, úr fyrirtækinu fengi á sig viðeigandi blæ. Menn eru þess full- vissir að þeir feðgar hafi ekki haft tök á neinu hlutafé. Hins vegar mun það draga dilk á eftir sér fyrir Ingólf ef Veröld verður mbbaskownísiandshf. LÖGREGLAN KÚNNANA! Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri VSÍ, var meðal ræðu- manna á morgunfundi Verslunarráðsins í byrj- un desember þar sem fjallað var um einkavæð- ingu. Hann ræddi m.a. um Bifreiðaskoðun ís- lands og taldi hana dæmi um misheppnaða einka- væðingu bæði vegna of KEMUR MEÐ mikillar eignaraðildar ríkisins og vegna skorts á samkeppni. Þórarinn taldi fyrirtækið búa við ríkistryggða einokun. Hann benti á að Bif- reiðaskoðun Islands væri trúlega eina fyrirtækið á Islandi — eðajafnveleina fyrirtækið í heiminum — sem léti lögregluna koma með viðskiptavinina ef þeir kæmu ekki af sjálf- dáðum! Ingólfur Guðbrandsson. Andri Már Ingólfsson. gjaldþrota. Hann hefur lánað fyrirtækinu veð í íbúðarhúsi sínu og er þar um verulegar fjárhæðir að ræða, margar milljónir króna. Takist ekki að af- stýra gjaldþroti Veraldar verður gengið að þessu veði eins og að sjálfsögðu öllum öðrum sem fyrir- tækið hefur lagt fram eða fengið að láni. Fleiri utanaðkomandi aðilar rnunu hafa gengið í ábyrgðir fyrir Veröld. Þar er t.d. átt við 16 milljón króna ábyrgð vegna far- miðainnheimtu erlendra flugfélaga. DYRASTA SKALDSAGAN Norman Mailer rithöf- undur hefur sent frá sér nýja skáldsögu sem hefur vakið athygli í Bandaríkj- unum fyrir fleira en inni- haldið. „Harlot’s Ghost“ er nefnilega fyrsta skáldsagan sem seld er fyrir þrjátíu dollara út úr búð, þ.e. tæplega tvö þús- und íslenskar krónur. Þetta verð er um 25-30% hærra en gengur og gerist á bandaríska bókamark- aðnum. Helsta skýringin á þessari verðlagningu er stærð bókarinnar. Sagan er 1.328 blaðsíður og boð- ar höfundurinn þó fram- hald von bráðar. Bókin hefur hlotið mjög góða dóma, en hún er óvenju- leg njósnasaga sem fjall- ar um bandarísku leyni- þjónustuna, CIA. Bandarískar skáldsög- ur hafa hingað til selst fyrir um 25 dollara þær dýrustu, en algengt verð er um 20 dollarar. Fram- Ieiðslukostnaður við „Harlot’s Ghost“ var hins vegar svo mikill að út- gefandinn neyddist til að feta áður ókunnar slóðir í verðlagningu. Bóksalar eru margir hverjir ekki hrifnir af þessari verð- lagningu, en vona þó að orðspor og vinsældir Mai- lers vinni upp á móti verðlagningunni. Sumir bjóða bókina með afslætti til að glæða sölu. Óvíst er hvort þess gerist þörf því viðbrögð almennings sýna að menn virðast ekki hafa kippt sér upp við verðið. 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.