Frjáls verslun - 01.12.1991, Síða 18
FORSÍÐUGREIN
OFTVORU
ÁRATOGIN STRÖNG
R/ETT VIÐ ÞORVALD GUÐMUNDSSON í SÍLD OG FISK SEM NÝLEGA HÉLT UPP Á
80 ÁRA AFMÆLISITT OG HEFUR ENGIN ÁFORM UM AÐ SETJAST í HELGAN STEIN!
Það er óhætt að segja að sérstökum ljóma stafi af nafni
Þorvaldar Guðmundssonar. Hann hefur verið einn far-
sælasti athafnamaðurinn í íslensku viðskiptalífi um
áratuga skeið og einstakur lánsmaður í sínu lífi. Starfs-
þrekið hefur verið mikið og þrátt fyrir að hann eigi nú
áttatíu ár að baki er engan bilbug að finna á Þorvaldi í
Síld og fisk.
„Ég er ennþá í fullu fjöri og hef
engin áform um að leggja upp laup-
ana. Að vísu hef ég dregið ofurlítið úr
vinnu og tel mig vel hafa efni á því. En
ég mun áfram sinna því, sem ég kann,
á meðan ég get,“ sagði Þorvaldur er
við tókum hús á honum í Háuhlíðinni
nokkrum dögum fyrir áttræðisafmæl-
ið sem hann kvaðst ekki hafa neina
sérstaka ástæðu til að halda upp á. En
áður en við vékum tali að öðru báðum
við Þorvald að stikla á stóru um fyrstu
ár ævinnar.
VINNAN í FYRIRRÚMI
„Ég er fæddur að Holti undir Eyja-
fjöllum 9. desember árið 1911. Strax á
fyrsta ári fluttist ég til Reykjavíkur og
bjó með móður minni, Katrínu Jóna-
sdóttur, þar til ég stofnaði mitt eigið
heimili. Æska mín var ekkert frá-
brugðin því sem fátæk börn í bænum
áttu að venjast á þeim tíma. Ég gekk í
Miðbæjarbarnaskólann og seldi Vísi
eins og aðrir strákar. Síðar sat ég í
Verslunarskólanum í tvo vetur og um
Svínaræktin hefur lengi átt hug Þor-
valdar Guðmundssonar, en sá kafli í
lífi hans hófst árið 1954 er hann
keypti Minni-Vatnsleysu.
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON MYNDIR: HREINN HREINSSON OG KRISTJÁN EINARSSON
tíma í Héraðsskólanum á Laugar-
vatni. Vinnan var þó alltaf í fyrirrúmi
því með Verslunarskólanum vann ég
hjá Tómasi á Laugavegi 2 en fór það-
an yfir til Sláturfélagsins. Þar kynntist
ég kjötvinnslu og fékk raunar smjör-
þefinn af ýmiss konar matvælafram-
leiðslu sem síðar átti eftir að verða
mitt lifibrauð."
Þorvaldur Guðmundsson fór utan
til Þýskalands árið 1934 til að læra
niðursuðu og dvaldi hann þar í tvö ár.
Að því búnu var hann ráðinn til að
setja upp niðursuðuverksmiðju á veg-
um Éiskimálanefndar á ísafirði.
Framleiðslan gekk ágætlega en þegar
600 kassar voru komnir á lager kom í
ljós að gleymst hafði að skipuleggja
söluna til útlanda. Þorvaldur fór utan
og seldi afurðirnar í einum sjö ríkjum
en kynntist um leið mjög vel þeirra
viðskiptaháttum. Árið 1937 réð hann
sig svo til Sölusambands íslenskra
fiskframleiðenda og veitti forstöðu
niðursuðuverksmiðju á þeirra vegum
við Lindargötu 46-48. Þar starfaði
Þorvaldur uns hann stofnaði eigið
fyrirtæki, Sfld og fisk, árið 1944.
SÍLDOG FISKUR
„Það má eiginlega segja að þessi
tilraun mín til eigin rekstrar hafi nú
ekki farið allt of vel af stað. Starfsem-
18