Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 26
Hótelið stendur við Bergstaða-
stræti 37 í Reykjavík og er byggt
af Þorvaldi Guðmundssyni.
Rekstur þess hófst í febrúar 1965.
Átta árum síðar var það stækkað
og fyrir um áratug var öll aðstaða
gesta á fyrstu hæð bætt verulega.
Á Hótel Holti eru 49 herbergi
og þar af eru fjórar íbúðir. Það er
viðurkennt í hópi bestu hótela í
heimi og er meðlimur í samtökun-
um Relais & Chateaux, en innan
við 400 hótel í víðri veröld eru
innan þeirra vébanda. Erlendis er
hótelið markaðssett í Steigenber-
ger bókunarkeðjunni
Veitingasalur Hótel Holts tekur
um 80 manns í sæti. Þá er þar að
finna veislusalinn Þingholt, en þar
eru haldnar veislur fyrir 20-120
manns. Einstök listaverk eftir
bestu málara landsins prýða veggi
hótelsins.
Nýting gistirýma á Hótel Holti
er nú um 73% á ári. Nær allir
gestanna eru útlendingar og þá
einkum menn í viðskiptaerindum.
Á Hótel Holti vinna um 70
manns undir stjóm Skúla Þor-
valdssonar hótelstjóra.
REIAIS &
CHATEAUX ®
VERÐUM AD LÆRA
AÐ LÚTA MEIRIAGA
RÆTT VIÐ SKÚLA Þ0RVALDSS0N, HÓTELSTJÓRA Á
HÓTEL H0LTI
Á liðnum árum hefur gífurleg
breyting orðið á rekstri hótela
og veitingastaða í Reykjavík.
Margir hafa verið til kallaðir í
þessum atvinnuvegi en fáir út-
valdir því eignaskipti og gjald-
þrot hafa verið tíð. Nokkur fyrir-
tæki á sviði hótelreksturs hafa
hins vegar gengið vel árum sam-
an og náð að skapa sér nafn
langt út fyrir landsteinana. Eitt
þeirra er Hótel Holt við Berg-
staðastræti og þar hefur Skúli
Þorvaldsson ráðið ríkjum und-
anfarin átján ár en faðir hans
Þorvaldur Guðmundsson þar á
undan.
„í veitingarekstri hafa orðið ótrú-
legar kollsteypur og offjárfesting á
síðustu árum og engu líkara en menn
haldi að það að reka veitingastað sé að
vera með koníaksglasið í annarrri
hendi og vindilinn í hinni um leið og
rabbað er við gestina. Slíkt er einfald-
lega misskilningur. Hins vegar eru tíð
eigendaskipti í þessum rekstri ekkert
séríslenskt fyrirbrigði því sama þróun
hefur átt sér stað um öll Vesturlönd."
70% EIGIÐ FÉ ER LÁGMARK
„Það sem er kannski einkennandi
fyrir okkur er sú staðreynd að bankar
og aðrar lánastofnanir virðast æ ofan í
æ lána mönnum gífurlegar íjárhæðir í
þessu skyni án þess að krefjast ná-
kvæmra áætlana um það hvemig
reksturinn eigi að skila þessu fé til
baka. Þess eru mörg dæmi og um leið
skýr staðfesting á því að margir
bankastjóranna valda ekki hlutverki
sínu. Þarna vantar aga og þarna má
sjá þessa áráttu okkar íslendinga að
vilja ana út í vandasöm verkefni og
treysta á guð og lukkuna. Það par
getur vissulega hjálpað upp á sakirnar
en ræður ekki úrslitum. Af alllangri
reynslu get ég fullyrt að í hótel- og
veitingarekstri verða menn að eiga
um 70% fjárfestingarinnar þegar lagt
er af stað. Sé eiginfjárhlutfallið lægra
gengur rekstrardæmið einfaldlega
ekki upp.“
Þetta sagði Skúli Þorvaldsson hót-
elstjóri er við hittumst dag nokkurn í
einni af glæsilegum vistarveram Hót-
el Holts. Hann keypti reksturinn af
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON