Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 27

Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 27
Skúli Þorvaldsson, hótelstjóri á Hótel Holti: Sumir virðast halda að það að reka hótel sé að vera með koníaksglasið í annarri hendi og vindilinn í hinni. Það er einfaldlega misskilningur. föður sínum fyrir tólf árum og hefur Hótel Holt allan þann tíma átt vel- gengni að fagna. Það hefur frá upphafi þótt eitt allra fremsta hótel okkar fs- lendinga og hefur á síðustu misserum komist á blað með bestu hótelum í heimi. „Fyrir um það bil ári vorum við teknir inn í alþjóðleg samtök bestu hótela í heimi, Relais & Chateaux en innan við 400 hótel eru í þessum sam- tökum. Sem dæmi um þær kröfur sem gerðar eru til alls aðbúnaðar og þjónustu má nefna að á síðasta ári sóttu 400 aðilar um inngöngu í sam- tökin en 32 voru teknir inn. Hótel Holt var í þeim hópi og er eina ís- lenska hótelið í þessum hópi. Við er- um einnig skráð í bókunarkeðjuna Steigenberger sem hefur aðalstöðvar sínar í Frankfurt í Þýskalandi en það þýðir að okkar nafni bregður fyrir á tæplega hálfri milljón bókunarskjáa á ferðaskrifstofum og sölustöðum um allan heim. Ástæðan fyrir þessari áherslu á erlend hótelsamtök, er ein- faldlega sú að við erum með nánast öll okkar viðskipti við útlendinga. 93% okkar gesta eru erlendir og raunar eru langflestir þeirra hér á landi í við- skiptaerindum. Það skiptir okkur því miklu að vera í góðu sambandi við útlend samtök í þessum rekstri en ekki síður að vera undir stöðugu eftir- liti manna sem gera hörðustu kröf- urnar í þessum efnum,“ sagði Skúli ennfremur. SAMKEPPNI ÚR HÖRÐUSTU ÁTT Það vekur óneitanlega spurningar að nú er uppi sú staða að Hótel Holt og raunar önnur fyrirtæki sem rekin eru af einkaaðilum, eiga í harðri og Vistarverur Hótels Holts eru glæsilegar enda er hótelið með þeim bestu í heimi. 27

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.