Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 33
Skúli Þorvaldsson við störf í veitingasal Hótel Holts: Reyni að hitta gestina
á hverjum morgni.
og hafði raunar ýmsar hugmyndir um
rekstur þess fyrirtækis. En hvers
vegna ákvað hann, þrautþjálfaður í
viðskiptum, að setja fé í rekstur af því
tagi. Voru það ekki fjárfestingarmis-
tök?
„Ástæðan var einfaldlega sú að ég
og fjölmargir aðrir máttum ekki til
þess hugsa að farþega- og farmflutn-
ingar í lofti væri á einni hendi. Það
þarf ekkert að ræða um þá viðskipta-
hætti sem slíkt getur leitt af sér.
Þessi þátttaka í Arnarflugi var því
af hugsjón og slíka hluti er erfitt að
meta til peninga. Ég er hins vegar
sannfærður um það að rekstur Arnar-
flugs hefði getað komist í gott lag og
það hefði mátt forða félaginu frá gjald-
þroti og um leið koma í veg fyrir þá
einokun í farþegaflutningum sem nú
er við lýði. Raunar gerðum við Ómar
Benediktsson stjórn félagsins tilboð
fyrir tveimur árum um að kaupa
reksturinn ásamt Þorvaldi Jónssyni
skipamiðlara gegn því skilyrði að hlut-
hafar afskrifuðu 90% hlutafjárins.
Þessu tilboði var hafnað á sínum tíma
þrátt fyrir að þáverandi samgöngu-
ráðherra, Steingrímur J. Sigfússon,
hafi verið því samþykkur. Með þessu
móti hefði verið hægt að koma í veg
fyrir að hluthafar töpuðu öllu sínu
hlutafé."
Skúli sagði að hópurinn hefði haft í -
hyggju að leggja um 100 milljónir
króna í rekstur Arnarflugs og að þeir
hefðu m.a. verið búnir að útvega
bankaábyrgðir í Þýskalandi.
„Þegar við gerðum okkar áætlanir
um þetta fyrirtæki voru leigugjöld
fyrir þotu félagsins um 120 þúsund
dollarar á mánuði. Síðan þá hafa leigu-
gjöld lækkað um 2/3 hluta vegna mik-
ils framboðs af vélum. Þetta vissum
við auðvitað ekki fyrir en það er ljóst
að miðað við þá hjálp hefði Arnar-
flugsdæmið getað gengið upp.“
SKATTURINN 0G DAUÐINN
Skúli Þorvaldsson hefur eins og
faðir hans verið í hópi hæstu skatt-
greiðenda í landinu mörg undanfarin
ár. Þeir feðgar hafa því mjög verið á
milli tannanna á fólki og sú ímynd
verið treyst í sessi að þar fari ein-
hverjir ríkustu menn landsins.
„Þótt ég hafi verið í hópi 5 efstu
skattgreiðenda í Reykjavík frá því ég
byrjaði með eigin rekstur, er það
staðreynd að ég borga ekki meiri
skatta en margir aðrir. Mitt fyrirtæki
er hins vegar rekið á mínu eigin nafni
og undir einum hatti þegar aðrir hafa
skipt sínum rekstri upp í mörg félög.
Ég hef aldrei séð eftir skattpening-
um til samfélagsins og mér finnst allt í
MINOLTA
Netta
Ijósritunarvélin
sem ekkert fer
fyrir
Lítil og handhæg vél sem ávallt
skilar hámarksgæðum.
Auðveld í notkun og viðhaldi.
Tekur ýmsar gerðir og stærðir
pappírs.
Sterk vél sem óhætt er að reiða
sig á.
Útkomanverður
oaðfinnanleg með
Minoita EP-30
KJARAN
Síöumúla 14,108 Reykjavík, s (91) 813022
33