Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 34
FORSIÐUGREIN
rm
SECURITAS
Sérþjálfað
ræstingarfólk
Securitas þrífur
skrifstofur, verksmiðjur,
heimili, stigahús, hótel og hverskonar annaö húsnæði.
Við gerum verðtilboð í lítil og stór verk og vinnum hratt
og örugglega undir eftirliti ræstingarstjóra.
Hikið ekki, hafið samband.
-örugglega hreint
Sími687600
lagi að því að leggja í þennan sameig-
inlega sjóð sem við öll þurfum á að
halda. Og raunar er það svo að það
þýðir ekki að mæðast út í skattinn því
hann er ásamt dauðanum það eina
sem við getum reiknað með í þessu
lífi með öruggri vissu!“
Við vikum tali að bágum fjárhag
ríkissjóðs í þessu sambandi og því erf-
iða árferði sem nú ríkir í íslensku
þjóðfélagi. í þeim efnum talaði Skúli
skýrt og vafningalaust:
„í dag standa mál einfaldlega þann-
ig að við höfum fullnýtt okkar helstu
auðlind, fiskimiðin. Fiskum úr sjó
mun ekki fjölga á næstu árum heldur
mun þeim fara fækkandi. Aðra auð-
lind eigum við sem er vatnsorkan.
Það gerist ekkert í okkar málum fyrr
en við ráðumst í það verkefni að virkja
hana meir en við gerum nú og selja
raforku með sæstreng til útlanda.
Þangað til verður ládeyða í íslensku
efnahagslífi og ég er því miður þeirrar
skoðunar að hún vari í a.m.k. 2-3 ár
og lengur ef menn hefjast ekki handa
strax í dag. íslendingar verða að átta
sig á því að við stöndum á þröskuldi
nýs tíma. Öll okkar framtíð í landinu
er undir því komin að okkur takist að
eiga góð viðskipti á öllum sviðum við
okkar helstu nágrannaþjóðir. Evrópa
er smám saman að opnast eins og allir
vita og þótt holl séu heimafengin ráð,
verðum við að vera opin fyrir því sem
útlent er. Fiskimiðin eru fullnýtt og
þjóðin skuldar óheyrilegar upphæðir í
erlendum bönkum og tekur erlend lán
til að greiða niður vexti. Þannig er
fyrir okkur komið.
LÆRUM NÝJA BORDSIÐI
Við verðum að læra nýja borðsiði.
Það vantar aga í samfélag okkar en
um leið þurfum við forystu á sviðum
atvinnulífs og stjórnmála. Hún er ekki
fyrir hendi í dag og afar fá teikn á lofti
um að slíka leiðsögn verði að fá út úr
ógöngunum á næstunni. Þjóðin líður
öll fyrir það fum og það úrræðaleysi
sem ríkt hefur um nokkurra ára skeið
og verði ekki bót þar á, er ég allt
annað en bjartsýnn á framtíð okkar í
þessu landi. En auðvitað vona ég,
eins og aðrir, að Eyjólfur hressist.
Við höfum ekki efni á að vera á öfugu
róli við aðrar þjóðir.“
34