Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 39
TOLVUR
BÓKHALDSKERFID
VASKHUGI:
« UóSKHUGI « Gler og Kristal1 hf « 07/11/91 »
» Uppfcrt 06.09.91 » * FiiMntudagur »
»»* SKOÐUN OG SKRÁNING DflGUftXTfl «««
h|t fri lt|S. til ánvcxtir
>81/03/91 31/83/91 23.00
01/04/91 30/04/91 23.00
01/05/91 31/05/91 23.00
01/06/91 30/06/91 23.00
01/07/91 31/07/91 27.00
01/08/91 31/08/91 27.00
01/09/91 30/09/91 30.00
01/10/91 31/10/91 30.00
| 01/11/91 30/11/91 27.00
(fT fz F3 ENTER END FgUp PgDn Píla upp Pila niiurl
iHJDp ímis 1 Finna Skrá Út Skjár upp Skjár nióur Einn upp Einn nióurj
Skrá yfir dagvexti eftir mánuðum. Flett er með PgD.
HRABVIRKT OG EINFALT
Ég minnist þess ekki að hafa
fengið í hendur forrit eða kerfi
til skoðunar sem ekki átti að
vera mjög einfalt í notkun. Sum
hafa meira segja verið kynnt
sem algjör bylting. Þegar slíkar
yfirlýsingar fara saman með
fyrstu útgáfu kerfis tekur maður
þeim með sérstökum fyrirvara.
Það er sennilega sameiginlegt með
tölvuforritum og bflum að því betri
sem hönnunin er í upphafi því meiri
líkur eru á því að framleiðslan heppn-
TOLVUÞflTTUR
Leó M.Jónsson
skrrfar hér um
bókhaldskerfið
Vaskhuga, sem
hann segir einfalt
og framkvæmi öll
helstu
tölvuverkefni í
smærri
fyrirtækjum.
■
ist og gallar verði fáir. Sennilega er
það einnig sameiginlegt með bflum,
tölvum og hugbúnaði að það verður
best sem þróast hægt — sígandi
lukka leiðir líklegar til fullkomnunar:
Fæst íslenskra hugbúnaðarkerfa,
sem enn eru við lýði, virðast hafa
þróast í stórkostlegum stökkum.
Þetta er þó afstætt mat og ekki víst
að allir séu því sammála.
Á undanförnum áratug eða svo hafa
ótal bókhaldsforrit komið á markað-
inn og sum jafnvel með slíkum látum
að ætla mætti að um kraftaverk hafi
verið að ræða. Flest „kraftaverka-
forritanna" eru, af einhverjum
ástæðum, horfin af markaðnum: Mér
virðist sem á hverjum tíma hafi 7-8
bókhaldskerfi fyrir smærri fyrirtæki
(DOS/Unix) haft um og yfir 80%
markaðarins en 4-5 ný kerfi bitist um
þau 20% sem eftir voru.
Það þarf rnikinn metnað, þekkingu
og kjark til að setja nýjan „bókhalds-
pakka“ á markaðinn og keppa við
fyrirtæki sem hafa gengið í gegnum
mörg þróunarstig og tilheyrandi þol-
raunir, jafnvel í áratug eða meir, en
þó haldið velli. Það segir sig sjálft að
þau fyrirtæki eru ekki að selja hálf-
klárað drasl.
Eftir að hafa fengist við að skrifa
um þennan búnað um árabil gæti ég
sagt margar ótrúlegar sögur af bjart-
sýnisköstum manna, sem ætluðu sér
að taka markaðinn með áhlaupi, jafn-
vel með sjónhverfingum: Kerfi voru
sett á markaðinn án þess að skipulögð
prófun (lúsaleit) hefði farið fram; of
lítil vinna lögð í handbækur o.s.frv.
Sum þessara kerfa reyndust gölluð,
sum þeirra voru hálfköruð og önnur
morandi af villum.
Innan um og saman við hafa verið
vönduð kerfi og þeir aðilar sem að
þeim stóðu hafa átt erfitt uppdráttar
vegna harðrar samkeppni á allt of litl-
um og sveiflukenndum markaði.
RÉTTILYKILLINN
Vandað bókhaldskerfi, sem hentar
smærri og meðalstórum fyrirtækj-
um, kostar peninga og á að kosta pen-
inga. Slíkt kerfi, sem er vel heppnað
39