Frjáls verslun - 01.12.1991, Qupperneq 40
TÖLVUR
« UASKHUGI « Gler og Kristall Iif » 07/11/91 »
« Uppf*rt 06.09.91 » * Fimmtudagur «
*«* IHNSLÁTTUR ÚTGJALDfl OG INNSKftTTS «**
Gjöld og innskattur. Vinnslumynd úr Vaskhuga.
og vandlega byggt upp, á að kosta
nokkra tugir þúsunda.
Jafnvel þótt kerfið sé ekki í dýrari
kantinum þarf það að vera þannig upp
byggt og frágangur þess þannig að
notandinn geti komist af með lág-
marksþjónustu, þurfi helst enga þjón-
ustu eftir að hann er kominn af stað.
Ástæðan er sú að notendur eru ein-
staklingar með rekstur eða fámenn
smáfyrirtæki, sem eru viðkvæm fyrir
reksturskostnaði og hafa ekki tíma til
að standa í símaþjarki vegna ónógra
upplýsinga í kerfmu sjálfu. Þessir not-
endur vita, núorðið, að það kostar
nánast ekkert að reka PC tölvubúnað
af vandaðri gerð; það heyrir til undan-
tekninga að slíkur búnaður bili. Hvers
vegna skyldi þá fylgja hugbúnaði ein-
hver reksturskostnaður annar en
eðlileg uppfærsla öðru hverju? (Hér
er verið að tala um bókfærslukerfi af
einföldustu gerð en ekki hugbúnaðar-
samstæðu fyrir stórfyrirtæki.)
Lykillinn að því að geta selt svona
kerfi með árangri er því að gera það
þannig úr garði að hægt sé að afhenda
það, fá það greitt, og vita síðan sem
minnst af því eftir það. Skapi kerfið
sjálft tekjurnar, en ekki þjónustan við
það, þá er kerfið í lagi. Sumir notend-
ur vilja endilega miklu meiri þjónustu
en þeir þurfa á að halda og hún stend-
ur þeim til boða víða.
VASKHUGI
Vaskhugi er eitt nýrri bókhalds-
kerfanna á markaðnum og er sam-
stæða nokkurra sjálfstærðra sam-
tvinnaðra kerfa. Það er skrifað með
sumarútgáfu 1987 af Clipper á árinu
1989. Vaskhugi tekur um 600 kb á
diski en kerfið er afhent á 2 diskettum
og inniheldur önnur þeirra uppsetn-
ingu og ýmsar hjálparskrár. Hand-
bókin með kerfinu er 13 síður auk
atriðisorðaskrár.
í kynningu á forritinu er nokkuð
sterkt að orði kveðið. Þar stendur
m.a: „Forritið VASKHUGI er lykill-
inn að öryggi og tímaspamaði í bók-
haldi. “ Og síðan lýsir framleiðandinn,
íslensk Tæki í Garðabæ, Vaskhuga
frekar: „Forrit fyrir þá sem vilja fylgj-
ast með afkomu fyrirtækisins án
fyrirhafnar!
— Vaskhugi er bókhaldsforrit,
sérstaklega hannað fyrir þá sem ekki
hafa sérmenntaðan starfskraft í bók-
haldinu.
— Vaskhugi er mjög fljótlærður
og auðveldur í notkun. Jafnvel þeir
sem ekki hafa fengist við tölvur áður,
geta strax — og hjálparlaust — náð
góðum tökum á Vaskhuga.
— Vaskhugi leiðir notandann með
valmyndum. Að færa bókhaldið,
skrifa reikninga, skýrslur o.fl. lærist
um leið og það er gert í fyrsta sinn.
— Vaskhugi er fjárhagsbókhald,
sölukerfi, viðskiptamannabókhald,
birgðabókhald, skuldabókhald, verk-
efnabókhald o.fl. og vinna öll kerfin
saman.
— Vaskhugi gerir nánast engar
kröfur til notandans um bókhalds-
þekkingu heldur færir hann tvíhliða
bókhald sjálfkrafa eftir gögnum yfir
tekjur og gjöld sem notandinn hefur
slegið inn.
— Verkefnabókhald Vaskhuga
sér um verkefni, svo sem verktaka-
vinnu, tilboð, pantanir o.fl. Frá verk-
efnabókhaldinu má prenta skýrslur
um framvindu verksins auk reikn-
inga“.
UPPSETNING 0G HANDBÓK
Eftir að hafa pælt í gegn um þetta
kerfi fæ ég ekki betur séð en að text-
inn hér á undan sé sannferðug lýsing á
þessu kerfi. Að vísu má alltaf deila um
hve auðveld forrit eru í notkun enda
er það afstætt en ég þori að fullyrða
að ég þekki fáa, sem eru með sjálf-
stæðan rekstur, sem ekki plummuðu
sig með Vaskhuga.
Mér segir svo hugur um að að sem
fari einna mest í taugarnar á væntan-
legum notanda bókhaldskerfis, ég
tala nú ekki um ef hann er að kaupa
kerfi í fyrsta sinn, séu ónákvæmar
upplýsingar um hvernig setja skuli
kerfið upp á tölvu. Nú notar enginn
bókhaldskerfi nema á tölvu með föst-
um diski (og gleymir auðvitað að taka
afrit af honum árum saman). Sé upp-
setningin ekki í samræmi við leiðbein-
ingar, sem fylgja kerfinu, getur óvan-
ur lent í miklum hremmingum: Marg-
ir óvanir draga það við sig í lengstu lög
að hringja í „sérfræðinga", þegar þeir
eru komnir í klandur vegna illa unn-
inna upplýsinga, til þess að láta segja
sér hvers konar erkibjálfar þeir séu.
Það er því mikil sálfræði á bak við
skýrt framsettar leiðbeiningar: Hand-
bók segir mjög mikið um það sem á
eftir kemur, þ.e. kerfið sjálft.
Uppsetningin á Vaskhuga gekk
snurðulaust og nákvæmlega í sam-
ræmi við þær leiðbeiningar sem fylgja
enda eru ýmsar uppsetningarrútínur
forritaðar og hafðar í sjálfvirkum skip-
anaskrám. Þetta eru góð meðmæli
með kerfi þótt mörgum „snillingnum"
sjáist yfir þetta einfalda sálfræðilega
atriði; þ.e. „fyrstu kynnin“.
40