Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Síða 43

Frjáls verslun - 01.12.1991, Síða 43
iði. Innskattur er reiknaður jafnóðum af gjöldum. Tekjuhliðin er í raun sú sama og gjaldahliðin en með öfugu formerki og þar er útskatturinn einnig reiknaður jafnóðum af færslum. Þessi stöðugi og jafni útreikningur á inn- og útskatti er þýðingarmikið atriði fyrir allan virðisaukaskattskyld- an rekstur, hvort sem fyrirtækið er lítið eða stórt. Með þessu móti er tryggt að við reglubundin skattskil sé aldrei greitt meira en á að greiða. í tekjufærslu þarf einungis að færa í þrjú svið, kerfið sér þá sjálfkrafa urn útreikning í hin sviðin. Númer reikn- ings hleypur alltaf á einum sem þýðir að ekki er nauðsynlegt að fylla í það Svið — það sér gagnagrunnurinn um sjálfur. ENGINN ER FULLKOMINN Algengasta gryfjan sem hönnuðir viðskiptakerfa falla í er að gefa sér þá forsendu að notandinn sé jafn áhuga- samur og hönnuðurinn og muni alla hluti og hafi á hraðbergi. Hönnuður Yaskhuga fellur ekki í þessa gryfju og sést það víða í kerfinu að skipulega hefur verið gengið til verks við að hanna „bakdyr" á sem flesta botn- langa sem notandinn gæti villst inn í. Agætt dæmi um þetta kemur strax fram í sambandi við bókun gjalda. Muni notandinn ekki númer bók- haldslykils (skrá yfir þá er að finna undir „ýmis vinnsla“ ívalmynd) getur hann sett spurningamerki í sviðið. Þá sækir kerfíð lista yfir lykla sem til greina koma og birtir á skjánum. Þetta sparar talsverða vinnu t.d. við að fara aftur til upphafsvalmyndar og þaðan í nr. 9 („Ýmis vinnsla“) og svo að stika sig aftur til baka yfir í vinnslumyndina. Annað dæmi um þessa útsjónar- semi er öryggistálmunin sem tengd er skipuninni að hætta. Til þess að girða fyrir að notandi fari úr Vask- huga, jafnvel með ófrágengnar færsl- ur, spyr tölvan hvort örugglega eigi að hætta í Vaskhuga — þetta einfalda atriði getur reynst þýðingarmikið þegar viðjar vanans leitast við að taka völdin og/eða notandinn orðinn þreyttur eftir langan vinnudag. REIKNINGURINN SKRIFAÐUR í litlum fyrirtækjum er bókhalds- Úr verkbókhaldi Vaskhuga. kerfiðjafnframtafgreiðslukerfi — það þarf að gera ráð fyrir að kerfið sé notað fyrir beina afgreiðslu, eins og samantekt og útskrift reikninga í sér- stakri runuvinnslu. Það ríður því á að fljótlegt sé að gera reikning og af- greiða kúnnann. Vaskhugi er með þessa hluti í fínu lagi. Gert er ráð fyrir því að hægt sé að hoppa fyrirhafnarlítið úr ýmsum öðr- um þáttum yfir í reikningsútskrift, t.d. eftir að hafa slegið upp viðskipta- mannaskrá til að kanna stöðu kúnnans eða að safna saman úr lagerskrá því sem keypt var. A reikningi er kennitölusvið. Sé það ekki fyllt út gerir tölvan ráð fyrir staðgreiðslu. Tilgreint er vörunúm- er, vöruheiti, einingaverð, afsláttur (í %) og heildarverð í línu. Ákveðið hag- ræði er að því að geta valið þann kost- inn að afsláttur reiknist sá sami á allar [TuflSKHUGI * Gler 09 Kristal 1 hf » Uppfsrt 06.09.91 » * 07/11/91 » 1 * Fimmtudagur » | SKýRSLUR *** r 9. Til baka 1. Innskattur 2. útskattur Frá degi sem prenta á frá: gl/'ll/91 til dags: 31/1Z/91 útprentun virðisaukaskattskýrslu. Valmyndin „Skýrslur" 43

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.