Frjáls verslun - 01.12.1991, Síða 47
Dæmi um þráláta kjaftasögu er ein,
sem á rætur að rekja allt aftur til árs-
ins 1850, en gekk enn ljósum logum í
Texas og Kaliforníu í upphafi ársins
1991. Sagan hljóðar á þann veg að hjón
nokkur hafí farið á kínverskan veit-
ingastað og haft hundinn sinn með-
ferðis. Þau báðu þjóninn um að fara
með hundinn inn í eldhús og gefa hon-
um vatn að drekka. Kínverski þjónn-
inn misskildi þau hins vegar og bar
þeim hundinn bráðar sem aðalrétt í
sterkri piparsósu.
Saga þessi er sögð sem skrýtla en
þrálátur orðrómur er hins vegar ekk-
ert grín. Hann getur t.d. nægt til þess
að hlutabréf fyrirtækja hrapa í verði.
Og í erlendum borgum, þar sem fólk
af mismunandi kynþáttum á í erjum,
getur komið til uppþota og jafnvel
blóðugra bardaga vegna sögusagna.
Stundum er kjaftasögum líka viljandi
komið á kreik til að koma fyrirtækjum
í kröggur og árangurinn lætur oft ekki
á sér standa.
Doktor Fred Koenig er prófessor í
félagssálfræði við Tulane háskóla í
Bandaríkjunum. Hann hefur sérhæft
sig í ráðgjöf fyrir fyritæki sem verða
fyrir barðinu á skaðlegum sögusögn-
um. Hefur hann starfsmenn á sínum
snærum sem byrja á því að yfírheyra
fólk sem heyrt hefur kjaftasöguna.
Þegar búið er að rekja söguna og skil-
greina hana er síðan tekið til við að
kveða orðróminn niður.
Annar sérfræðingur á þessu sviði
er doktor Allan Kimmel. í fyrra var
hann m.a. fenginn til að ráða niðurlög-
um sögu sem gekk fjöllum hærra um
dreng sem lék í vinsælli sjónvarps-
auglýsingu um morgunverðarkorn.
Þegar hætt var að birta auglýsinguna
fór í gang saga um að drengurinn hefði
hellt ákveðnum gosdrykk á morgun-
kornið, borðað það og dáið kvalafull-
um dauðdaga.
Doktor Kimmel hefur stjórnað
viðamikilli rannsókn á áhrifum sagna
af þessu tagi á viðkomandi fyrirtæki.
Segir hann að þeim mun hræddara
sem fólk verði við að heyra kjaftasögu
þeim mun líklegra sé að það endurtaki
hana. Hefur Kimmel unnið fyrir eina
af stærstu verslununum í New York
vegna þráláts orðróms um að kona
nokkur hafi verið að máta þar kápu frá
Kjaftasagan um hundinn á kín-
verska veitingastaðnum lifir enn
góðu lífi.
Taiwan, stungið hendinni í vasann og
verið bitin af eiturslöngu.
Það er ekki hlaupið að því að rann-
saka svona sögur, finna uppruna
þeirra og kortleggja hvernig þær hafa
smám saman breyst. Nemendur við
íjölmarga bandaríska háskóla hafa
komið af stað kjaftasögum í þeim til-
gangi að fylgjast með hvemig þær
þróast. Frægt dæmi er t.d. sagan um
það að tvær stelpur hefðu bjargað lífi
tveggja ósyndra drengja sem féllu í
stöðuvatn. Háskólanemarnir sögðu
þessa sögu hvar sem tækifæri gafst
og helst þar sem margir heyrðu til.
Nokkrar vikur liðu og síðan var hópur
nemenda sendur af stað til þess að
kortleggja feril sögunnar. Þá hafði
krökkunum fjölgað og þeir voru orðn-
ir að drukknuin táningum sem hvolft
höfðu bát. Tveir af strákunum áttu að
hafa verið bestu sundmenn skólans
og tveir aðrir voru sagðir vinna sem
strandverðir í aukavinnu. Og auðvit-
að tóku þessir stæltu strákar málið í
sínar hendur og björguðu öllum
ósyndu stelpunum!
Það er með ólíkindum hvað kjafta-
sögur fara hratt yfir. Einnig er alveg
makalaust hve lengi þær geta verið í
gangi því vitað er um sögur sem
gengið hafa ljósum logum í meira en
hundrað ár — og það þótt margsinnis
hafi verið reynt að kveða þær niður.
Að mati dr. Koenigs er þó nauðsyn-
legt að gera tilraun til að kæfa orðróm
þegar hætta er á að hann skaði fyrir-
tæki að ósekju. Hann er því ósam-
mála mörgum áróðursmeisturum
sem telja það neikvætt og einungis
vekja meiri athygli á málinu að reyna
að bera sögusagnir til baka.
Fyrirtæki í New York, sem fram-
leiðir tyggjó, fór að ráðum Koenigs og
gaf út opinbera yfirlýsingu eftir að sal-
an hafði dregist ískyggilega saman á
skömmum tíma. Sú saga gekk nefni-
lega í öllum skólum borgarinnar að
tyggjóið væri búið til úr köngulóar-
eggjum. Til að byrja með hafði stjóm-
endum fyrirtækisins fundist orðróm-
urinn svo hlægilegur að þeir tóku
hann ekki alvarlega en þegar sölu-
hrapið fór að breiðast út um Banda-
ríkin tók gamanið að káma. Héldu
menn að sögunni hefði verið komið af
stað af samkeppnisaðila fyrirtækisins
og ráðinn var heill her af spæjurum til
þess að komast að hinu sanna. Þeim
tókst hins vegar ekki að hafa upp á
neinum sönnunargögnum. Forráða-
inenn fyrirtækisins gripu því til þess
ráðs að gefa út fréttatilkynningu um
málið og varð hún til að drepa orð-
róminn.
I þessu tilviki reyndist það skyn-
samleg ákvörðun að gefa út yfirlýs-
ingu en auðvitað var sá möguleiki
fyrir hendi að hún hefði þveröfug
áhrif. Stjórendur fyrirtækja, sem
verða fyrir barðinu á kjaftasögum,
standa þess vegna frammi fyrir erfiðu
vali þegar þeir þurfa að velja á milli
þess að þegja orðróminn í hel eða
hlæja að honum á opinberum vett-
vangi.
Lausnin er: Enzymol
í Evrópu
| BEngin hárígræðsla
BEngin gerfih,
EUQO-HAIR
á Islandi
har
Engin lyíjameðferð
Einungis tímabundin notkun
Eigid hár með hjálp lífefha-orku
091 -676331e.kU6.oo
47