Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Síða 49

Frjáls verslun - 01.12.1991, Síða 49
tengsla Miami við þessi svæði mynd- ar hún eðlilega brú milli norðurs og suðurs. Sagt er manna á meðal að í Miami geti maður kynnst löndum Rómönsku Ameríku betur en með því að fara til þeirra, vegna þess að „það eru allir í Miami“. Önnur ástæða fyrir auknum vin- sældum Miami er sú að flestir telja að Fidel Castro eigi nú skammt eftir sem einræðisherra á Kúbu. Breytingar í heimsmálum hafa orðið til þess að Sovétmenn eru nánast hættir að styðja Kúbustjórnfjárhagslega. Kúba er aðeins hálftíma flug frá Miami en þar bíða þúsundir landflótta Kúbverja eftir því að fá að snúa heim og ljóst er að Miami yrði fyrst til að græða á viðskiptum við Kúbu. Þriðja stóra breytingin, sem er í aðsigi, er tilvonandi fríverslunar- samningur milli Bandaríkjanna og Mexíkó sem hefur orðið til að hleypa miklu fjöri í viðskipti milli landanna tveggja. Svo virðist sem fyrirtæki velji Miami fyrst og fremst sem stjórnaraðsetur viðskiptanna en ekki sem framleiðslusvæði. Viðskipti við eyjur í Karíbahafinu fara einnig ört vaxandi sem og við þau Mið-Amerík- uríki sem njóta „bestu viðskiptakjara" við Bandaríkin. Á sama tíma og ferskir vindar við- skiptalífsins leika um Miami er eldra hagkerfi borgarinnar í rúst. Stærsta fyrirtæki borgarinnar, Eastern Air- lines, er farið á hausinn eftir langvar- andi erfiðleika og sama gildir um helsta viðskiptabanka Miami. Mörg fleiri fyrirtæki hafa farið á hausinn á undanförnum árum og byggingariðn- aðurinn er í lágdeyðu. Aukið gildi Mi- ami í alþjóðaviðskiptum kemur rétt tímanlega til að bjarga efnahagnum frá algeru hruni. Alþjóðleg tengsl virðast vera nauðsynleg ef borgir á stærð við Miami eiga að dafna og staðsetning hennar veitir henni mikla möguleika á því sviði. Sem miðstöð viðskipta við Rómönsku Ameríku gegnir hún svip- uðu hlutverki og Los Angeles og Seattle gagnvart Kyrrahafsríkjum og Buffalo gagnvart Kanada. En vanda- mál Miami eru enn töluverð, atvinnu- leysi nemur nærri níu af hundraði og milli hinna ijöldamörgu kynþátta sem byggja borgina ríkir enn töluverð spenna. Borgarbúar treysta á aukin FRANSKT KRYDD í ÞJÓÐABLÖNDU MIAMI Þegar Christian Ribeiraud lauk viðskiptafræðinámi í Frakklandi var hann ekki í vafa um hvar hann ætlaði sér að búa. Á unga aldri hafði hann komið til Miami í fylgd foreldra sinna og heillaðist af borg- inni. Nú er hann starfsmaður Prudential verðbréfasjóðsins, og sér um tengsl við evrópska og suður ameríska viðskiptavini. Um helgar fer hann í bátsiglingar á Biscayaflóanum undan Miami strönd. „Miami býður upp á öflugt viðskiptalíf, alþjóðlegt bankakerfi og góðar samgöngur," segir Ri- beraud, „en þar er einnig mjög gott að búa.“ Riberaud og rnargir samlandar hans eru hluti af hinni nýju alþjóða- blöndu Miami. Rómönsk áhrif hafa löngu sett mark sitt á borgina. En frönskum íbúum hennar fjölgaði þrefalt á síðasta áratug, upp í 10.000 manns. Frakkarnirhittastá frönskum menningarviðburðum, hljómleikum og matarboðum. Þeir hafa einnig sína eigin matsölustaði. Sumir Frakkar sækjast eftir sól- arstranda ímyndinni og koma til borgarinnar á eigin vegum en flestir eru þeir þangað komnir á vegum fyrirtækja sem reka skrif- stofur í Miami. Frönsk fyrirtæki í Miami voru 30 árið 1985 en eru núna 70 talsins og fjölgar enn. Out- inord Intemational, sem framleiðir efni til byggingariðnaðar, opnaði tvær skrifstofur fyrir níu árum síð- Ribeiraud: Hluti af nýrri alþjóða- blöndu Miami á Flórída. an til að sækja inn á Bandaríkja- markað, eina í New York og aðra í Miami. Fyrir tveimur árum lokuðu þeir skrifstofu sinni í New York og fluttu alla starfsemi hennar til Miami. Ástæðan var einkum sú, að sögn forráðamanna, að mun þægilegra er að stunda í viðskipti í Miami. Þjónusta við skemmtiferðaskip hefur lengi verið helsta ástæðan fyrir sókn Frakka til Miami en nú eru góðar flugsamgöngur gegnum Miami farnar að trekkja líka. Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus rekur flugþjálfunarskóla sinn fyrir Norður-Ameríku í Miami og það hefur orðið til þess að laða að önnur frönsk fyrirtæki á sviði flugmála. Franska risafyrirtækið Aerospatiale, sem stendur einnig að Airbus, er þegar þúið að hreiðra um sig með framleiðslu á varahlut- unr og Sextant Avionics valdi Miami sem aðsetur fyrir aðalskrif- stofur sínar í Bandaríkjunum um- fram Atlanta og Dallas. Frakkar eru seinþreyttir og kippa sér lítið upp við slæma ímynd Miami. Franskur fram- kvæmdastjóri, sem hafði orðið fyrir því að brotist var inn í íbúðina hans og bílinn, sagði að þetta sé það sem við er að búast í öllum Bandarískum stórborgum. Þetta sé hluti af kostnaðinum við það að stunda gróðavænleg viðskipti.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.