Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 50

Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 50
alþjóðleg viðskipti sem bestu leiðina til að vinna sig út úr erfiðleikunum. Ferðamannaiðnaður í Miami virðist einnig vera að rétta úr kútnum. Slæm ímynd borgarinnar á síðasta áratug hræddi ferðamenn í burtu og Walt Disney World og aðrir slíkir staðir á Vesturströndinni drógu til sína flesta ferðamennina, burt frá Austurströnd- inni. Nú eru Evrópubúar teknir að streyma til Miami á ný, heillaðir af listahverfinu meðfram ströndinni þar sem skrautlega máluð hótel og klúbb- ar frá fjórða áratugnum skreyta götu- myndina. Vaxandi tísku- og auglýs- ingaiðnaður á rætur sínar í þessu sama hverfi þar sem hópast saman listamenn og ljósmyndarar sem nota skrautlega máluð húsin sem bak- grunn fyrir auglýsingar. Evrópubúum, sem búsettir eru í Miami, fjölgar einnig hratt á vegum fyrirtækja sem eru að opna skrifstof- ur þar. Þannig eru núna um 70 frönsk fyrirtæki með skrifstofur í borginni, helmingi fleiri en fyrir fimm árum, þar á meðal Aerospatiale sem ætlar að setja á stofn þjónustumiðstöð fyrir Airbus flugvélar í Miami sem og skipasmíðastöðin Alsthom Internati- onal sem einnig starfrækir þjónustu- miðstöð þar. Spánverjar flykkjast einnig til Mi- ami enda eru flestir íbúanna spænskumælandi. Spánverjar eiga flesta erlenda banka í Miami og spænska flugfélagið Ibería vann ný- lega rétt til flugs á fjórum flugleiðum til Mexíkó og Suður-Ameríku frá Miami. Sovéska flugfélagið Aeroflot hefur einnig flutt bækistöðvar sínar í Rómensku Ameríku til Miami frá Kúbu. Síðastir á vettvang, en í símeira mæli, eru iðnrisar Austur-Asíu, flest- ir frá Taívan, Hong Kong og Suður Kóreu, heillaðir af möguleikum hinna nýju markaða við Karíbahafið og í Suður-Ameríku. Taivönsku tölvu- framleiðendurnir Acer og DTK eru búnir að koma sér fyrir og DTK hefur auk þess ákveðið að í Miami verði helsta samsetningarverksmiðja fyrir- tækisins fyrir Bandaríkjamarkað sjálf- an. Utflutningsráð Hong Kong flutti nýlega skrifstofur sínar frá Panama til Miami og fyrirtæki frá Hong Kong fylgja í kjölfarið. Japanir virðast ekki hafa haft mik- inn áhuga á Miami fram að þessu, einkum vegna slæmrar ímyndar borgarinnar. En nú er að verða breyt- ing þar á. Eitt japanskt fyrirtæki, Mitsui & Co., á helmings hlut í fyrir- tæki í Miami, með um 200 starfs- menn. Fyrirtækið notfærir sér hag- stæða viðskiptasamninga til að kaupa fataefni í Bandaríkjunum, sníða það í Miami, senda það til Haítí til að láta sauma úr því og loks eru fullunnar vörurnar sendar til baka til Miami og seldar á Bandaríkjamarkað. Landflótta Kúbveijar hafa löngum sett svip sinn á borgina og stuðlað að spænskri ímynd hennar. Önnur þjóðabrot hafa gjarnan fallið í skugg- ann af Kúbverjum þó að hlutur þeirra sé heldur að aukast. Spænska er töluð á öllum þrepum þjóðlífsins, hvort sem er í hár- greiðslustofum eða fundarherbergj- um stórfyrirtækja. Nafnspjöld og skilaboð í símsvörum eru oftar en ekki á bæði spænsku og ensku og þeir sem eiga erindi við lögfræðinga eða bankastjóra geta yfirleitt valið um tvær tegundir af kaffi meðan þeir bíða: Americano eða Cubano sem er sterk, svört blanda ættuð frá Kúbu. Breytingar á hlutfalli kynþátta í Mi- ami kemur ekki öllum jafn vel. Eftir því sem spænskumælandi fólki hefur flölgað hefur enskumælandi fækkað um fimmtung á síðasta áratug. Og þó að aukin alþjóðleg tengsl Miami auki starfsmöguleika ákveðinna þjóðfé- lagshópa, með auknu framboði á sér- fræðings- og stjómunarstörfum, þá hafa þau lítil áhrif á afkomu fjölmennr- ar stéttar verkamanna í borginni. Kynþáttamismunun er einnig vandamál í borginni. Svertingjum er oft haldið frá störfum af hinum spænskumælandi meirihluta. Þetta gerist einkum innan ferðamannaiðn- aðarins en svertingjar benda á að varla geti verið þörf á spænskukunn- áttu til þess eins að þvo diska, búa um rúm eða bóna bíla. Þessi mismunun skapar spennu milli kynþátta sem blossar upp á yfirborðið endrum og eins. Miami hefur einnig hlotið sinn skerf af öðrum þeim vandamálum sem gjarnan herja á stórborgir: Skólar eru yfirfullir, gatnakerfíð ræður ekki við umferð á annatímum, stóraukin mengun hefur orðið til hertrar lög- gjafar um leyfilegan útblástur bíla. Vatnsból Miami, hin svokölluðu Everglades, sem eru fenjasvæði norðan borgarinnar, er undir stöðugri ásókn mengunar og íbúðabyggðar, auk þess sem viðvarandi þurrkar hafa gert mönnum grikk. Menn hugsa með óhug til þess hvað gæti gerst ef ný bylgja Kúbverskra flóttamanna skylli á borginni. Það sem af er þessa árs hafa 1200 manns flúið til Miami, meir en þrefaldur sá fjöldi sem kom allt árið í fyrra. En bjartsýni virðist samt vera ríkj- andi meðal Miami búa sem telja að framtíðarmöguleikar borgarinnar vegi upp á móti þessum vandamálum. Gott dæmi eru stóraukin umsvif bandaríska fjarskiptarisans AT&T en þar hefur starfsfólki fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Nýlega féklv Miami-deild fyrirtækisins úthlutað 60% af samningi um nýlagnir á ljós- leiðurum í Mexíkó, fyrir nærri 20 milljarði króna. í kjölfar aukinna umsvifa suður á bóginn hefur AT&T einnig nýlokið við fyrsta neðansjávar ljósleiðarann til Suður Ameríku sem tengir Miami við Púertó Ríkó, Jamaíka, Dómíníkanska lýðveldið og Kólombíu. AT&T er einnig þáttakandi í verkefni á vegum Spánar, Italíu og Mexíkó sem á að tengja þessi þrjú ríki við Miami og ríki Karíbahafsins með glerþræði. Að sögn starfsmanna AT&T fer stór hluti erlendra sendinga frá Miami gegnum línur félagsins til Evrópu og Kanada. Miami á eflaust eftir að halda sér- stöðu sinni um ókomin ár sem undar- leg blanda glæpalýðs og glæsibrags. Stórkostleg sjónarspil eiga sér stað undir sindrandi geislum sólar, allt frá harmleik bátafólks frá Haítí til fárán- legra réttarhalda yfir Manúel Norí- ega. Miami losar sig kannski aldrei við þann orðstír sem kemur fram í Miami vice þáttunum en Miami búum fmnst ekki lengur að þeir þurfi að bera í bætifláka fyrir borg sína. Þrátt fyrir margháttuð vandamál þá eru ný við- skiptatengsl og nýjir þjóðfélagshópar að breyta Miami í eina af helstu við- skiptaborgum Bandaríkjanna. (Þýtt og endursagt: Business Week) 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.