Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 53
Fléttunni vel tekið:
Hönnun Valdimars Harðar-
sonar á húsgagnalínunni
Fléttunni var geysilega vel tek-
ið þegar hún kom fyrst á mark-
aðinn. Framan af hafðist ekki
undan við að framleiða upp í
þær pantanir sem bárust. Nú
hefur verið ráðin bót á því
ástandi með viðbótarstarfs-
fólki í trésmiðju og afgreiðslu-
tíminn er orðinn eðlilegur. Við
hvetjum því viðskiptavini okk-
ar til að líta inn í Hallarmúlann
og skoða þessa fallegu hús-
gagnalínu.
Húsgagnabæklingur
væntanlegur:
í janúar mun koma út á vegum
Pennans yfirgripsmikill hús-
gagnabæklingur. í honum
verður að finna flest það sem
prýða má góða skrifstofu, allt
frá handritahöldurum upp í
flóknar skrifborðssamstæður.
Láttu ekki húsgagnabækling-
inn framhjá þér fara því í hon-
um er að finna flest það sem
bætir vinnuaðstöðu og útlit
skrifstofunnar. í bæklingnum
færðu séð að við stöndum
undir slagorði okkar þegar við
segjum: Allt í einni ferð.
Við brjótum blað í
aukinni aíkastagetu
skrifstofufólks:
Hver kannast ekki við það
vandamál að þurfa brjóta mik-
inn fjölda pappírsarka í um-
slög? Nú er þessum vanda
mætt með pappírsbrotsvélinni
Silver Reed Folder MA50.
Blöðin eru einfaldlega látin í
vélina og hún sér um afgang-
inn, tví- eða þríbrýtur arkirnar
þannig að þær passi í umslög-
in. Afköast vélarinnar eru 120
eintök á mínútu og notkun
hennar gerir handtökin færri
og auðveldari en þráttfyrir það
verða afköstin meiri. Pappírs-
brotsvélin frá Silver Reed
kostar kr.49.970.- en er á sér-
tilboðsverði á kr. 42.474,-
Merkivélin DYMO 4000:
Hér er um að ræða nýja teg-
und merkivéla. Er þessi merki-
vél mun hraðvirkari en hinar
eldri, hún er búin lyklaborði og
hægt er að velja um mismun-
andi stærðir og liti á letrinu.
Merkivélin DYMO 4000 kostar
14.680,- kr.
Handritahaldarinn
Grippa:
Hver kannast ekki við eymsli í
hálsi eftir að hafa þurft að rýna
á hliðarborð við tölvur og rit-
vélar þar sem handritin eru
staðsett? Nú bjóðum við hjá
Pennanum ódýra og einfalda
lausn á þessu vandamáli. Er
það handritahaldarinn Grippa,
sem er góð og ódýr lausn fyrir
þá sem fást við tölvusetningar
- bæði í leikog starfi. Handrita-
haldarinn er festur á tölvuna
þannig að nú má koma í veg
fyrir hálseymsli og það á ódýr-
an hátt því að handritahaldar-
inn kostar kr. 970.-.