Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 55
HEILSA
Gleymni er hluti af þeirri hnignun sem fylgir hækkandi aldri.
Greinarhöfundur, Uggi
Þórður Agnarsson
læknir, erhjarta-
sérfræðingur og starfar
m. a. hjá Hjartavernd.
GLEYMNI
ÞAÐ ER HRINGT OG SPURT HVORT PISTILLINN SÉ
EKKITILBÚINN. TILBÚINN? HVAÐA PISTILL? ÁTTI
HANN AÐ VERA í NÆSTA BLAÐI?
Hver kannast ekki við þá til-
finningu sem því fylgir þegar
eitthvað, sem átti að vera búið
að gera, hefur gleymst. En
hvernig stendur á því að hlutir,
ákvarðanir og ætlunarverk
gleymast?
í mörgum tilvikum er hér um að
ræða skort á einbeitingu eða vilja til
að ljúka, því sem gera þurfti, þótt
tímahrak geti valdið öðrum töfum.
Eins er að menn færast oft of mikið í
fang. Hitt er einnig satt að, eftir því
sem aldurinn færist yfir fólk ber í vax-
andi mæli á hreinni gleymni.
Gleymni er hluti af þeirri hnignun
sem gerir vart við sig með hækkandi
aldri. Talið er að maðurinn eigi líf-
fræðilega möguleika á að ná allt að
55