Frjáls verslun - 01.12.1991, Qupperneq 56
HEILSfl
Æðakölkun veldur vaxandi vandamálum með hækkandi aldri.
110-115 ára aldri. Umhverfið og lífs-
skilyrðin hafa afgerandi áhrif á lífs-
möguleikana. Þannignáðu Rómverjar
til forna að jafnaði um 22 ára aldri en
nú verða íslendingar nærri 80 ára
aldri að meðaltali. A Islandi er fjöldi 67
ára og eldri um 23 þúsund eða 9%
þjóðarinnar, 4,5% eru 75 ára og eldri
og 1,2% eru 85 ára og eldri. Gera
verður ráð fyrir að þessir hópar eigi
eftir að stækka verulega á næstu ár-
um og áratugum. Þannig er áætlað að
um aldamótin verði um 4% íbúa
Bandaríkjanna komnir um eða yfir 85
ára aldur og við svipuðu er að búast
hér. Það kann að hljóma einkennilega
en sennilega veldur ofneysla, óhóf og
skortur á nægilegri líkamsþjálfun því
að ekki fleiri ná svo háum aldri. Æða-
kölkun veldur með hækkandi aldri
vaxandi vandamálum. Hún tengist,
eins og vel er kunnugt, ofrieyslu á
fitu, sykri, salti og tóbaksreykingum.
Æðakölkun veldur svo aftur háum
blóðþrýstingi, kransæðasjúkdómum
og heilaáföllum. Rannsóknir sýna
greinilega að þeir, sem stunda reglu-
lega líkamshreyfmgu og áreynslu,
hafa að jafnaði hagstæðari blóðþrýst-
ing.
Margir telja að hár aldur sé í raun-
inni ekkert aðalatriði í sjálfu sér held-
ur meta þeir andlega og líkamlega
færni þótt mörgum þætti best að
þetta færi saman. Flestir aldraðir
halda andlegri getu sinni að verulegu
leyti til dauðadags. Alvarleg elliglöp
koma í ljós hjá 4-5% þeirra og nokkur
skerðing á andlegri getu verður hjá
um 10 af hundraði þeirra sem lifa fram
yfir 67 ára aldur. Meðal 65 ára finnast
merki um alvarleg elliglöp einungis
hjá 1 hverjum af þúsund en fara nokk-
uð hratt vaxandi í fyrstu af vaxandi
minnisleysi, gleymni og minnkandi
andlegri getu og seinna af óróleika,
rugli og svefntruflunum. Sjúkdómur-
inn tengist heilarýmun og virðist
fyrst og fremst um að ræða fækkun á
gráum frumum, þ.e.a.s. þeim frum-
um sem taldar eru uppspretta hugs-
unar. Orsakir sjúkdómsins eru enn
sem komið er ekki þekktar.
Þannig hefur ekki fundist samband
milli Alzheimer sjúkdóms og t.d.
áfengisneyslu, reykinga, mataræðis
eða eitrana (s.s. af völdum þungra
málma). Rætt hefur verið um endur-
tekin heilaáföll en skýrt samband hef-
ur ekki fundist. Veirusýkingar hafa
verið grunaðar en orsakasamband er
ekki þekkt þótt eyðniveiran hafi legið
undir grun. Talið er að höfuðáverkar
og e.t.v. skjaldkirtilssjúkdómar geti
átt hlut að máli. Lífshorfur sjúklinga
með Alzheimer sjúkdóm eru skertar
og eru metnar um 8 ár frá fyrstu ein-
kennum sjúkdómsins en eftir að veru-
leg hrörnunareinkenni eru komin
fram eru horfumar mun lakari.
TOLL VÖRUGEYMSLAN
í HAFNARFIRÐIHF.
Melabraut 19, sími 91-54422, 220 Hafnarfirði.
INNFLYTJENDUR ATH!
Hér er gott að geyma vörur eftir því sem með
þarf. Það sparar peninga. Aðstoð veitt við gerð
tollskýrslna og úttektarbeiðna ef óskað er.
56