Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 59
HVAÐ SEGJA ÞAU UM ÁRIÐ1991OG HORFUR1992?
GUÐRÚN LÁRUSDOTTIR,
FRAMKVÆMDASTJÓRISTÁLSKIPA.
GUNNAR SVAVARSSON,
FORSTJÓRI HAMPIÐJUNNAR.
JÓN ÁSBERGSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI HAGKAUPS.
SIGURÐUR HELGASON,
FORSTJÓRI FLUGLEIÐA.
HALLDÓR GUÐBJARNARSON,
BANKASTJÓRI LANDSBANKANS.
KRISTINN BJÖRNSSON,
FORSTJÓRISKEUUNGS.
DAVÍÐ SCH. THORSTEINSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SMJÖRLÍKIS—SÓLAR.
ÞÓRIR PÁLL GUÐJÓNSSON,
KAUPFÉLAGSSTJÓRI KAUPFÉLAGS
BORGFIRÐINGA.
Guðrún Lárusdóttir,
framkvæmdastjóri Stálskipa:
Miðstýringin er
alltaf að aukast
1. Nokkuð góðar. Verðlag á afurðum
hátt fyrri hluta árs en fór lækkandi
seinni hluta árs.
Afli frystitogarans var drýgður
með því að stunda veiðar utan
okkar landhelgi (úthafskarfa) sem
gaf ca. 1000 tonn og verðmæti 50
milljónir króna.
Afkoma ísfisktogara okkar er
nokkuð góð ef tekið er tillit til þess
að hann var í viðgerð á þriðja mán-
uð í sumar og átti því eftir óveidd-
an kvóta sem kemur til góða á
fiskveiðiárinu sep.91-ág. 92.
Það sem mér finnst hafa ein-
kénnt reksturinn öðru fremur er
sú miðstýring sem alltaf er að auk-
ast. Sífellt er verið að koma að
fleiri sjóðum til að ráðstafa tekjum
sjávarútvegsins og menn ráða
minna og minna sjálfir hvernig þeir
stýra sínum rekstri.
2. Vonandi góðar. Þó hlýtur sú afla-
skerðing sem er á þessu ári að
koma illa við okkar fyrirtæki eins
og önnur fyrirtæki í sjávarútvegi.
Að hluta verður skerðingu
mætt með auknum veiðum utan
landhelgi, sem þó aðeins annar
okkar togara getur nýtt sér.
Ef tekst að halda verðbólgu
niðri, lækka vexti, og hafa frið á
vinnumarkaði, tel ég að við ættum
að geta haft góð lífskjör í þessu
þjóðfélagi.
3. Já, ég held að það hafi verið löngu
tímabært að hefja þær aðhaldsað-
gerðir og vona að þær skili ár-
angri.
Jón Ásbergsson,
framkvæmdastjóri Hagkaups:
Við Hagkaupsmenn
erum bjartsýnsr
1. Afkoma Hagkaups hf. árið 1991 er
vel viðunandi, þó hún verði ekki
jafn hagstæð og árið á undan. Arið
hefur einkennst af mikilli verð-
samkeppni á matvörumarkaðnum
og nú síðustu mánuði ársins af
samkeppni, hvað snertir föt og
gjafavörur o.þ.h., við erlenda
smásala, vegna vaxandi innkaupa-
ferða almennings til útlanda. Ljóst
er að smásölumarkaðurinn er orð-
inn alþjóðlegur markaður og ís-
lenskir kaupmenn verða að líta á
kaupmenn í nágrannalöndunum
sem sína samkeppnisaðila. Slík
samkeppni skerpir hugann og
59