Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 60

Frjáls verslun - 01.12.1991, Side 60
ÁRflMÓT hvetur mann til dáða, en um leið verður að tryggja að íslenskir aðil- ar beri ekki skarðan hlut vegna meiri skattlagningar hér á vörurn- ar sjálfar svo og á fyrirtækjarekst- urinn. 2. Þó svo að almennt sé ekki sérlega bjart framundan í rekstri íslenskra fyrirtækja, þá lítum við Hagkaups- menn framtíðina björtum augum. Um 70% af sölu fyrirtækisins eru matvörur og matvörusalan er ekki mjög háð sveiflum efnahagslífsins, hvorki upp né niður. Við munum tryggja markaðsstöðu okkar með því að leggja áfram mikla áherslu á úrval, gæði og gott verð. 3. Tími hinna stóru „efnahagsað- gerða“ er löngu liðinn. Ef stjórnin nær tökum á hallarekstri ríkisbú- skaparins og nær að skapa skilyrði fyrir lækkandi raunvöxtum sam- fara stöðugu gengi og lítilli verð- bólgu, þá á atvinnulífið sjálft að geta lyft sér upp úr því hjólfari, sem það keyrir nú í. Halldór Guðbjarnarson, bankastjóri Landsbankans: Erfið reynsla skilar meiri hagsýni 1. Fyrir liggur að afkoma Lands- bankans verður ekki góð á árinu. Ástæða þess eru útlánatöp sem bankinn hefur verið að afskrifa. Þessi útlánatöp hafa öðru frem- ur einkennt reksturinn þetta ár. Þó má bæta við að fyrrihluta árs- ins var reksturinn mjög erfiður, þegar undan eru skildar þessar út- lánaafskriftir. Ástæða þessa er rakin til meiri verðbólgu en gert var ráð fyrir í spám. Bankinn borg- aði þá hærri innlánsvexti en út- lánsvextir stóðu undir og orsakað- istþað af því, að miklu stærra hlut- fall innlána er tengt verðbólgunni en hlutfall útlána. Þetta myndar ójafnvægi í efnahagsreikningi bankans sem illa verður ráðið við við núverandi aðstæður. 2. Búast má við erfiðleikum hjá bank- anum næsta ár ef áframhald verð- ur á gjaldþrotum einstaklinga og fyrirtækja. Hins vegar er rétt að benda á að bankinn hefur undan- farin 3 ár tekið mjög myndarlega á hugsanlegum útlánatöpum þannig að gera má ráð fyrir að búið sé að mæta öllum stærstu vandamálun- um. Þrátt fyrir að framtíðin sýnist ekki björt þessa stundina er þó ýmislegt sem bendir til þess að árið 1992 verði bankanum betra en 1991. Þótt á móti blási í þjóðfélaginu þessa stundina er síður en svo dauði og djöfullinn framundan. Á allra síðustu árum höfum við geng- ið í gegnum erfitt tímabil. Það hef- ur orðið til þess að opna augu manna fyrir því að áfallalaus rekst- ur heimila og fyrirtækja er ekki sjálfgefinn. Ef ekki er farið að með gát er voðinn vís. Þetta hefur mörgum orðið ljóst. Þessi erfiða reynsla mun skila sér í framtíðinni í meiri hagsýni og betra aðhaldi. Þessi reynsla mun skila sér í betri rekstri almennt í þjóðfélaginu. 3. Þótt stefna ríkissjóðs orki tvímæl- is þessa stundina er skoðun mín sú að margt í henni sé af hinu góða. Aðlögun okkar efnahagsmála að efnahagi annarra frjálsra þjóða er nauðsynleg ef ekki á að verða hér algjör stöðnun. Þessi aðlögun kall- ar óneitanlega á stundar átök vegna þess sársauka sem hún veldur. Slíkt verður ekki umflúið. Álitamál er hversu hratt eigi að fara í slíka aðlögun. En þegar til lengri tíma er litið held ég að flestir verði ánægðir. Davíð Sch. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Smjörlíkis-Sólar: Viðunandi afkoma 1. Viðunandi. 2. Ágætar. 3. Nei. Gunnar Svavarsson, forstjóri Hampiðjunnar: Enginn bati á næsta ári 1. Það er ljóst að afkoman í ár verður töluvert lakari en síðustu árin. Þar veldur mestu áframhaldandi sam- dráttur í sölu, sem hófst eftir 1987, en það ár var reyndar met- ár. Frá árinu 1987 hefur hallað undan færi í útgerð við nánast allt norðanvert Atlantshaf með þeim afleiðingum, að notkun veiðarfæra hefur dregist saman og samkeppni milli þeirra sem selja vörur til sjáv- arútvegsfyrirtækja stóraukist. 2. Líklegast er að árið, sem nú geng- ur í garð muni ekki hafa neinn bata í för með sér. Sjávarútvegur hér á 60

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.