Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 62
ÁRAMÓT
landi er að lenda í mjög erfiðri nið-
ursveiflu þar sem afli dregst sam-
an. Við vonumst eftir að botni sé
náð á útflutningsmörkuðum, en
hvort það nær að vega upp á móti
deyfð hér innanlands er óvíst.
Þrátt fyrir þjóðarsátt og litla
verðbólgu, hefur kostnaður við
framleiðslu hér á landi vaxið meir
en í samkeppnislöndum. Það er
lykilatriði að sú þróun stöðvist og
gangi síðan til baka að einhverju
leyti. Verðbólgu þarf að ná niður á
áður óþekkt stig hér á landi og
semja þarf um óbreytt laun. Tak-
ist þetta ekki, mun innan fárra
mánaða engin leið önnur út úr
vandanum en lækkun gengis með
tilheyrandi verðbólgu og rýrnun
kaupmáttar.
3. Ríkisstjórnin leggur nú af stað
með fjárlög sem stuðla munu að
skárra jafnvægi í ríkisbúskapnum
en áður stefndi að. Þar með ætti
að vera unnt að lækka raunvexti.
Þetta er af hinu góða. Hins vegar
er ég ekki sérlega bjartsýnn á að
sett markmið náist, m.a. vegna
skorts á nauðsynlegri samheldni
og trúnaði sem nauðsynlegt er að
ríki innan stjómarflokkanna.
Efnahagslíf okkar er í lægð um
þessar mundir og svo mun verða
næsta ár. En öll él birtir upp ums
íðir. Ef atvinnulífinu eru sköpuð
h'fvænleg almenn skilyrði og fyrir-
tækin laga sig að breyttum að-
stæðum og nýta sér þau tækifæri
sem alls staðar er að finna, þarf
ekki að kvíða framtíðinni. hér tel
ég að bein og óbein áhrif af þátt-
töku okkar í evrópska efnahags-
svæðinu skipti miklu.
Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða:
Ríkisstjórnin er
á réttri leið
1. Flugleiðir gera ráð fyrir að rekstur
fyrirtækisins verði réttu megin
við strikið á þessu ári. Ekki er ljóst
hve mikill hagnaðurinn verður, en
hann mun vart nema meira enl
-2% af veltu. Ferðaþjónustan
varð fyrir miklum áföllum á þessu
ári. Persaflóastyrjöldin dró veru-
lega úr ferðalögum og meðan á
átökunum stóð margfaldaðist
eldsneytisverð. Áætlanir Flug-
leiða um farþegafjölda stóðust að
mestu á meðan á styrjöldinni stóð
og bókanir bentu til þess að sum-
arfarþegum myndi fjölga veru-
lega. Átökin ýttu fólki í átt til sum-
arleyfisstaða á norðlægari slóð-
um. Þótt sumarfarþegum
félagsins fjölgaði nokkuð varð það
ekki í samræmi við bókanir og
spár. Félagið hafði því nokkuð um-
framframboð á sætum í sumar
með tilheyrandi kostnaði. Flest
benti því til þess að reksturinn
myndi í besta falli standa í jámum í
árslok. Flugleiðir hófust þegar
handa í ágúst og september að
draga úr kostnaði. Árangur þeirra
aðgerða og hagstæð gengisþróun
bandaríkjadollara hefur aukið
verulega líkur á hagnaði í ár.
2. Nú er unnið að gerð rekstraráætl-
ana fyrir árið 1992. Flugleiðir
starfa á mörkuðum í tugum landa
og því skiptir alþjóðlegt rekstrar-
umhverfi miklu máli fyrir rekstur
félagsins þótt efnahagsk'f hér
heima skipti mestu. Áætlanir fé-
lagsins gera ráð fyrir batnandi
stöðu á alþjóðlegum ferðamörkuð-
um á seinni helmingi næsta árs.
Hér heima er gert ráð fyrir sam-
drætti í efnahagslífi og það mun
vitaskuld koma fram í rekstri flug-
félaga líkt og annarra fyrirtækja.
Flugleiðir munu því mjög herða
markaðssókn sína hér heima á
næstu vikum og mánuðum.
3. Ég tel að í meginatriðum sé ríkis-
stjórnin á réttri leið. Auðvitað eru
atvinnugreinar missáttar við ýmsa
þætti stefnunnar, en ég held að sú
áhersla sem lögð er á að ná niður
Irmflytjendur — Útflytjendur
Látið Skipaafgreiðslu Jes Zimsen hf. sjá um flutningana ásamt umstangi pappírsmála.
Sjáum um:
Tollafgreiðslu • Inn- og útflutning • Endursendingar • Umhleðsluflutninga • Búslóðaflutninga • Hraðsendingar
Með þvíað nota sérfræðiþjónustu okkar WW skipaafgneiösla
spararþú fé, tíma ogfyrirhöfn. jeS ZÍtTlS6n hf
Leitið tilboða1 r € m alhlida FLLíT NiNGAhjóNusrA
Tryggvagata 17 • 101 Rvk. • Símar (91) 13025 og 14025 • Fax (91) 622973 • Pósthólf 1017
62