Frjáls verslun - 01.02.1992, Blaðsíða 11
FRETTIR
BORGARSJÓÐUR REYKJAVÍKUR:
KEPPIR VID EINKAFRAMTAKID
- JÚLÍUS KRAFÐIST NAFNAKALLS í BORGARSTJÓRN
Talsverður skjálfti hef-
ur verið í Borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna
vegna ágreinings um
áframhaldandi fjárfest-
ingar Borgarinnar í fyrir-
tæki Hitaveitu Reykja-
víkur, Hagkaups og Vífil-
fells um útflutning á
vatni.
Júlíus Hafstein, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, hefur verið
mjög mótfallinn því að
borgin legði hlutafé í
þetta fyrirtæki í sam-
keppni við einkaframtak-
ið. Eins og kunnugt er
hefur Islenskt bergvatn
hf., sem Davíð Scheving
Thorsteinsson veitir for-
stöðu, hafið myndarlegan
útflutning á vatni og tek-
ið forystuna á því sviði.
Það er skoðun Júlíusar
að það sé í andstöðu við
stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins að ríki og sveitarfélög
standi fyrir atvinnustarf-
semi í samkeppni við
einkaframtakið. Það var
á grundvelli þeirrar
stefnu sem hann lagðist
gegn því að Reykjavíkur-
borg legði fram viðbótar-
hlutafé í vatnsfélagið.
Júlíus lagði hins vegar til
að borgin seldi þau hluta-
bréf í félaginu sem hún
keypti fyrir nokkrum ár-
um.
Félagar hans í borgar-
stjórnarflokki sjálfstæð-
ismanna voru hins vegar
á annarri skoðun og
höfðu ekki áhuga á að
fara að stefnu flokksins í
þessu efnií Við kosningu í
borgarstjórn óskaði Júl-
íus Hafstein eftir nafna-
kalli því hann vildi hafa
hreinar línur í því hverjir
af félögum hans væru
reiðubúnir að kjósa gegn
stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins.
Atkvæði féllu þannig
að Júlíus var einn á móti
en allir aðrir sjálfstæðis-
menn með, ásamt öllum
fulltrúum minnihlutans -
að sjálfsögðu!
Júlíus Hafstein óskaði eftir nafnakalli í borgarstjórn til að fá á
hreint hverjir vildu að borgin héldi áfram að keppa við einka-
framtakið í vatnsútflutningi. Hann hefði getað sparað sér
ómakið því hann var einn á móti.
brother brother brother brother brother ÉM*®ífelío©lí‘
brother. merkivélin
býður snyrtilega og varanlega lausn á merkingarvandamáli þínu 1
Hún er hentug hvort sem þú starfar á skrifstofu, teiknistofu, lager eða sjúkrahúsi, í skóla, verslun eða banka. Mikið litaúrval á prentborðum. Fimm stafagerðir, lárétt og lóðrétt prentun, níu minni, spegilprent o.fl. o.fl. Komdu og kynntu þér þetta undratæki eða hringdu og fáðu upplýsingar. Einkasala á íslandi. Söluumboð \ '■ » VívK 'V*-* \ \ N • . V* v V"* sr , i. \ \< V- ’W ►\\ ^ ^\V:
| ~ | ' Raflagnadeild KEA. Akureyri.
Nýbýlavegi 28. Sími 44443 & 44666. Fax 44102. Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi.
11