Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 44

Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 44
VINNUSTAÐIR GÓÐUR STARFSANDI SÝNILEGUR Á HVERJUM DEGI • FLEIRI ÞÆTTIR EN LAUNIN SKIPTA MÁLI ÞEGAR STARFSANDINN MÓTAST • TÆKNIÞEKKING ER DÝR OG STARFSFÓLKIÐ ER ÞVÍ MIKILVÆG FJÁRFESTING • GÓÐ STARFSMANNASTEFNA ER MEIRA EN GLÆSILEG ÁRSHÁTÍD EINU SINNI ÁÁRI Hjá góðum fyrirtækjum er gott starfsfólk og góður starfsandi. Góður starfsmaður getur laðað að sér viðskiptavini. Slíkur starfsmaður er góð fjárfesting, jafnvel betri en tækja- eða tölvubúnaður. Góðum starfsmanni þarf að líða vel í vinnunni. En hvað gerir starfsmann ánægðan í vinnunni? Laun skipta vissulega máli, en nú er aukin áhersla lögð á aðra þætti sem skapa vellíðan, svo sem jákvætt andrúmsloft, félagslíf og að starfsmaður finni að hann sé metinn að verðleikum. I sumum fyrirtækjum fer fram svo kallað frammistöðumat einu sinni á ári. Þá fær starfsmaður að vita álit stjórnenda á sér og getur sagt þeim hvers hann væntir og hvort hann hefur yfir einhverju að kvarta. Sums staðar er þetta mat launatengt, annars staðar ekki. Frjáls verslun leitaði til tveggja fyrirtækja til að forvitnast um hvernig þessum þætti rekstursins er sinnt, Sjóvá-Almennra og Einars J. Skúla- sonar hf. Einnig var rætt við menn sem annast hafa fræðslu um starfs- anda í fyrirtækjum. STJÓRNUNAR- OG FÉLAGSLEGUR ANDI Starfsandi byggist á tveim þáttum, annars vegar starfsmannastefnu fyrirtækisins og hins vegar félagsleg- um anda starfsfólks. Starfsmanna- stefnan lýtur að stjórnskipulegum þætti fyrirtækisins og hún þarf að vera sýnileg til þess að starfsmönnum líði vel. Félagslegur andi starfsfólks helst oftast í hendur við starfsmanna- stefnuna, en getur einnig lifað sjálf- stæðu lífi. Til dæmis talaði einn við- mælenda blaðsins um að stjórnskipu- legi þátturinn í hans fyrirtæki væri þokkalegur, en félagslegi andinn frá- bær. Hjá Stjórnunarfélaginu er fjallað um starfsanda á ýmsum námskeiðum og í TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON 44

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.