Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 48
VINNUSTAÐIR
manna. Það gerir Einar J. Skúlason
hf. með því að styrkja knattspyrnuæf-
ingar og það sama gera Sjóvá-Al-
mennar, en markmið liðsins er að
taka þátt í knattspyrnumóti trygg-
ingafélaga sem haldið hefur verið í 11
ár. Fyrirtækið styrkir einnig konur
sem vilja spila keilu og þá starfsmenn
sem vilja stunda líkamsrækt í Mætti.
Auk þessara föstu liða hefur starfs-
mannafélag Sjóvá-Almennra staðið
fyrir leikhúsferðum og skíðaferð til
Akureyrar.
Félagslegur andi innan fyrirtækja
byggist bæði á skipulagðri starfsemi
og frumkvæði. Fastar uppákomur
eru á hverju ári, eins og frá hefur
verið greint, en þar fyrir utan mynd-
ast samstaða milli smærri hópa, t.d.
innan deilda.
Nokkuð er um að starfsmenn í
fyrirtækjunum sem rætt var við taki
sig saman og geri eitthvað. Fólk sem
vinnur á sömu hæð hjá Sjóvá-Al-
mennum fer stundum saman út að
borða og hjá Einari J. Skúlasyni hf. er
farið í gönguferðir. Þá er hengd upp
auglýsing þar sem allir eru boðnir vel-
komnir. Sá siður hefur myndast í því
fyrirtæki að þegar nýr starfsmaður
kemur til starfa er hengd upp mynd af
honum við stimpilklukkuna og hann
kynntur, svo og væntanleg störf hans
í fyrirtækinu. Þannig er lögð áhersla á
innri tengsl starfsmanna.
STARFSMANNASTEFNA SÉ UÓSÁ
HVERJUM DEGI
í viðtölum við þá Ólaf Jón og Bjarna
kom fram að samvera starfsfólks í
mötuneyti í hádegi skiptir miklu um
félagslegan anda, því þar hittist fólk
og spjallar saman. Auk þess að hittast
í hádeginu koma starfsmenn Einars J.
Skúlasonar hf. saman í eftirmiðdags-
kaffi á föstudögum.
í húsi Sjóvá-Almennra er góð að-
staða til fundahalda og þar hafa verið
haldin innanhússnámskeið. Sem
dæmi um það má nefna námskeið um
heilsufar og vinnuaðstæður sem
hjúkrunarfræðingur sá um og fór fram
hálfsmánaðarlega í heilan vetur.
Mæting á slík námskeið er frjáls.
Fyrirtækið er reyklaust, en reykinga-
fólk fær að fara í reykhorn tvisvar á
dag utan matartíma. Að sögn Ólafs
Jóns fer reykingafólki fækkandi og
styrkir fyrirtækið þá sem vilja fara á
námskeið til að hætta að reykja.
„Eftir því sem fyrirtæki verða
stærri því minni kvöð er á starfsmenn
að taka þátt í öllu sem gert er,“ sagði
Ólafur Jón. „Menn geta leyft sér að
skrópa t.d. í ferðalagi, án þess að
tekið sé eins mikið eftir því og þegar
fyrirtækin eru minni.“
Félagsstarfsemi og hópmyndun
getur nefnilega orðið kvöð á starfs-
mönnum og varla æskilegt að frítím-
inn fari að miklum hluta í að vera með
vinnufélögunum. Það sem mikilvægt-
ast er til þess að starfsandi skili sér í
bættri líðan starfsfólks og betri vinnu-
brögðum, er að stjórnendur séu sjálf-
um sér samkvæmir í ákvörðunum og
skipulagi. Jákvæð starfsmannastefna
er það sem skilar sér til starfsmanna á
hverjum degi, en ekki bara glæsileg
árshátíð einu sinni á ári.
Fataskápar fyrir vinnustaði
Viðurkenndir fataskápar úr bökunar-
lökkuðu stáli. Skáparnir festast á vegg
eða standa frítt á gólfi. Þeim má raða
saman eins og best hentar eða láta þá
standa eina sér. Margir litir eru fáanlegir.
Stærðir: 30 X 58 X170 cm.
40X58X170 cm.
Leitið nánari upplýsinga.
J. B. PÉTURSSON
BLIKKSMIÐJA-VERKSMIÐJA
JÁRNVÖRUVERZLUN
ÆGISGÖTU 7 • SÍMAR13125 & 13126
48