Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Blaðsíða 56

Frjáls verslun - 01.02.1992, Blaðsíða 56
FLUGREKSTUR Aðalskrifstofa Atlantsflugs er í Reykjavík en auk þess eru skrifstofur í London og Hamborg. Flugleiðir hafa í flugi, til og frá land- inu. Við bentum t.d. á að í þessari dæmalausu reglugerð, sem er mun strangari en þær sem er verið að taka upp í löndum Evrópubandalagsins, væri ekki gerður greinarmunur á leiguflugi og áætlunarflugi. Fyrir leiguflugfélag eins og okkar væri ógjörningur að gera rekstraráætlun til tveggja ára. Við bentum á að við seldum aðeins í gegnum ferðaskrif- stofur, sem auðvitað hefðu lögskipað- ar tryggingar fyrir heimflutning far- þega ef eitthvað kæmi upp á.“ Eftir nokkurra mánaða baráttu fyrir áframhaldandi tilvist Atlants- flugs á íslenskum flugmarkaði, tókst loks að fá leyfi til eins árs á síðustu stundu. En nægir það fyrir félag á borð við Atlantsflug? „Vissulega hefði verið betra að fá leyfí til nokkurra ára en vegna breyttra aðstæðna í Evrópu hef ég ekki svo miklar áhyggjur af þessu máli. Út af fyrir sig reyndi aldrei á málið til þrautar því Halldór Blöndal samgönguráðherra hjó á þennan hnút og á hann þakkir skildar fyrir það. Okkar lögfræðingar telja einsýnt að fyrir dómi hefði þessi krafa um ákveð- ið hlutfall eiginfjár ekki staðist því hún eigi einungis við um ný leyfi en ekki framlengingu. Við teljum í fullu gildi það ákvæði reglugerðar um flu- grekstur nr. 381 frá árinu 1989 en þar segir m.a.: „í beiðni um framlengingu eða endurnýjun leyfis skal veita upp- lýsingar um allar þær breytingar sem orðið hafa á starfseminni frá því að leyfið var síðast endurnýjað eða fram- lengt.“ Allar slíkar upplýsingar veitt- um við að sjálfsögðu." Halldór minntist á nýjar reglur í Evrópu varðandi flugreksturinn og að þær hefðu í för með sér minni mögu- leika á afskiptum stjómmálamanna og flugmálayfirvalda hér á landi af fluginu þegar fram líða stundir. Hvað á hann við með þessu? EVRÓPA AÐ OPNAST „í dag er það svo að Evrópa skipt- ist í fjölmörg flugrekstrarsvæði en þau eru aðallega eftir löndum. Nú er fyrirsjáanlegt að árið 1993 verði aðeins eitt flugrekstrarsvæði í álf- unni. Með aðild okkar að EFTA og evrópsku efnahagssvæði, tengjumst við þessum nýju reglum. Þær þýða í stuttu máli að einkaleyfi til áætlunar- flugs á ákveðna staði er úr sögunni. Þar með þurrkast út hugtökin áætlun- arflug og leiguflug og félag eins og Atlantsflug getur, að uppfylltum al- mennum skilyrðum, hafið flug til hvaða borgar sem er. Það eina sem félag þarf að tryggja er samningur um afnot af flugvelli á viðkomandi stað og svo auðvitað næg verkefni til að byggja á.“ Halldór benti á að Keflavíkurflug- völlur væri alþjóðlegur flugvöllur en því miður væri afgreiðsla flugvélanna þar í umsjón Flugleiða með sérstöku einkaleyfi og samningum við ríkið. „Við teldum vissulega betra ef slík afgreiðsla væri í höndum óháðs aðila og erum raunar þeirrar skoðunar að með auknu frelsi í þessum viðskipt- um, muni slíku fyrirkomulagi verða komið á.“ Atlantsflug hf. er í eigu nokkurra hluthafa og er Halldór Sigurðsson einn af þeim. Á síðasta ári störfuðu urn 60 manns hjá félaginu þegar mest var og má búast við fjölgun starfs- manna með auknum verkefnum. Fé- lagið er nú með eina Boeing 727-200 vél á leigu og mun bæta öðrum far- kosti í rekstur með hækkandi sól. Halldór sagði að íslendingar ættu á að skipa góðu og vel menntuðu flugfólki með mikla reynslu. Atvinnutækifæri væru hins vegar ekki næg og nauð- synlegt að nýta þessa dýrmætu starfskrafta í þágu þjóðarbúsins. „Velta okkar á síðasta ári var um 500 milljónir en við hófum raunveru- lega rekstur í aprílmánuði. Á þessu ári mun veltan aukast verulega miðað við þá samninga sem þegar er búið að gera. Auk þessa eru ýmis járn í eldin- um og hugsanlegt að ný verkefni bæt- ist við á næstunni. Það er engin spurning að við hjá Atlantsflugi ætlum okkur góðan hlut í hinu nýja og opna Evrópusamfélagi. Það er að vísu nokkur uggur í okkur vegna þessara stífu og ósanngjörnu íslensku reglugerðar. Við vonum hins vegar að Atlantsflug verði ekki neytt til að skrá sig undir erlendum fána því félagið er íslenskt og vill gjarnan vera það áfram,“ sagði Halldór Sigurðsson framkvæmdastjóri að síðustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.