Frjáls verslun - 01.06.1994, Qupperneq 5
RITSTJORNARGREIN
FLATEYRI, FJÁRMÁLALAND
FRAMTÍÐAR?
Fyrir nokkrum árum var því varpað fram af íslenskum
fjármálamönnum að ísland yrði fjármálaland framtíðar-
innar. Um þetta mál urðu talsverðar umræður. Þunga-
miðja hugmyndarinnar var að ísland skapaði sér sérstöðu
á einhverju sviði alþjóðlegra fjármála, líkt og ýmis smá-
ríki hafa gert, og drægi til sín erlent fé til geymslu.
Auk stóraukinna bankaviðskipta, gjaldeyristekna, at-
vinnu í bankaheiminum og bættra banka var fleira nefnt
til stuðnings hugmyndinni. Sérstaklega var rætt um að
ferðaþjónustan nyti góðs af vegna tíðari ferða fjármála-
manna til landsins en sitt er hvað fyrir ferðaþjónustuna að
fá fátæka ferðalanga, sem eyða litlu, eða auðuga.
Því er hugmyndin um fjármálalandið viðruð hér að ný-
lega boðaði Sparisjóður Önundarfjarðar á Flateyri afnám
óvinsælla þjónustugjalda banka og sparisjóða á notkun
tékkareikninga. Sparisjóðurinn í fámenninu vestur á
fjörðum vill skapa sér sérstöðu og telur sig hafa ráð á því.
Innlánsstofnanir hafa lengi sagst tapa stórfé á því að
bjóða viðskiptamönnum sínum upp á tékkareikningana
vegna þess að þeir skrifi svo margar og lágar ávísanir.
Raunar gekk aðalféhirðir eins bankans svo langt í blaða-
viðtali nýlega að nefna orðið misnotkun í þessu sambandi.
Já, misnotkun. Að nýta sér þjónustu sem boðið er upp á er
að misnota hana. Hver hefur misnotað hvern á síðustu
árum?
Þess vegna ber fólki að fagna frumkvæði Sparisjóðs
Önundarfjarðar fyrir að vilja kljúfa sig út úr samráði bank-
anna og sparisjóðanna í málinu og skapa sér sérstöðu sem
væntanlega kemur fram í auknum viðskiptum. Það er lítið
mál fyrir höfuðborgarbúa á tímum tækni og fjarskipta að
hafa tékkareikning á Flateyri. Og hver veit nema heim-
sóknum fjölgi vestur til Önundarfjarðar.
Þau orð sparisjóðsstjórans að það sé fyrst og fremst góð
afkoma sparisjóðsins í gegnum árin, sem búi að baki hug-
myndinni, er athyglisverð. Fyrirtæki og neytendur hafa
margoft spurt sig hvers vegna 3 bankar og 31 sparisjóður
séu svo samstíga í að hækka og lækka vexti og hvers
vegna vextir þeirra séu nánast þeir sömu þegar mikill
munur er á hag þeirra vegna tapaðra útlána.
Algengasta svarið hefur verið að á frjálsum markaði
myndist leiðandi verð sem allir samkeppnisaðilar hljóti að
vera nálægt. Það erófullnægjandi svar. Hvað með sérstöð-
una í verði, gæðum og þjónustu? Flestir sparisjóðanna
hafa tapað hlutfallslega minna en bankarnir í útlánum og
fyrir vikið hagnast hlutfallslega meira en þeir. Það gefur,
að minnsta kosti nokkrum þeirra, svigrúm til að ná sér-
stöðu með lægri vöxtum og lægra verði annarrar þj ónustu.
Sérstaða Sparisjóðs Önundarfjarðar í niðurfellingu
þjónustugjalda hefur einnig varpað kastljósi á Samband
sparisjóða en í því eru allir sparisjóðirnir. Hvers konar
samband er þetta og hver á sparisjóðina? Hver sparisjóður
á sig sjálfur og er sjálfstæður. Samband sparisjóðanna
gefur hins vegar út gjaldskrá fyrir þá alla og leiðir verðið
þótt það sé ekki bindandi.
Ákvörðun Sparisjóðs Önundarfjarðar um að kljúfa sig
út úr samráði banka og sparisjóða vegna töku þjónustu-
gjalda á tékkheftum er afar þarft mál í vaxandi umræðu
hér á landi um samráð og ónóga samkeppni. Kannski er
fjármálaland framtíðarinnar fyrir vestan?
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 56. árgangur
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristín
Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið
er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 812300, Auglýsingasími 875380
- RITSTJÓRN: Bfidshöfði 18, sími 875380 - STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson - AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson
— FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 2.995 kr. fyrir 6.-10. tbl. eða 499 kr. á blað nema 100 stærstu er
á 999 kr. — 10% lægra áskriftarverð, 2.695 kr., ef greitt er með greiðslukorti. LAUSASÖLUVERÐ: 599 kr. —
SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. - Edda prentstofa hf. - LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5