Frjáls verslun - 01.06.1994, Blaðsíða 57
stærð við krónupening. Innan fárra
ára munu koma á markaðinn gjörvar
tengdir rafhlöðum sem hægt er að
endurhlaða með því að kreista lítinn
bolta á stærð við golfkúlu nokkrum
sinnum.
En hvað með verðið á tölvum; mun
það nokkru sinni geta keppt við verð á
bókum? Ef eitthvað telst vísbending
um að bókin muni rýma fyrir tölvunni
þá er það verðþróunin. Um 1980
mátti fá 2 meðal jólabækur fyrir verð
vasatölvu af einfaldari gerð. Nú, tæp-
um 15 árum síðar, má fá a.m.k. 20
sambærilegar vasatölvur fyrir verð
einnar jólabókar.
Þessi samanburður sýnir einungis
eina hlið málsins, þ.e. að verð á tölv-
um mun, eitt út af fyrir sig, ekki koma
í veg fyrir að prentaða bókin víki.
SNACKERII
FYRIR WINDOWS
í grein í FV fyrr á árinu var
minst á STACKER en það er
kerfi sem gerir kleift að þjappa
saman gögnum á disk þannig að
hann rúmi meira. Nú er komin ný
og endurbætt útgáfa af þessu
kerfi, STACKER 4,0 fyrir Win-
dows. Því má skjóta hér inn í að
fyrir skömmu vann Stac Electron-
ics Inc. dómsmál í Bandaríkjunum,
sem það höfðaði gegn Microsoft,
sem bannar Microsoft að selja
kerfið „DoubleSpace", sem ætlað
var til sömu nota, en það kerfi
hafði Microsoft keypt af Vertisoft
Systems Inc. STACKER er því
eitt um hituna sem stendur.
STACKER hefur það framyfir
DoubleSpace að hafa til reiðu um
95 megabætum meira af saman-
þjöppuðum gögnum á 200 mega-
bæta diski en er hins vegar hægv-
irkara.
Að mati greinarhöfundar er tækniþróunin á sviði tölva slík að innan fárra
ára verða á markaðnum tölvur sem verða þægilegar og léttari en bók.
Hins vegar gefur auga leið að bækur
verða eftir sem áður skrifaðar og
gefnar út og höfundum greitt fyrir
sína vinnu. Útgáfukostnaðurinn, eftir
að prentun á pappír verður hætt, ætti
að geta lækkað verulega. Verð bóka á
tölvumiðlum hlýtur að verða talsvert
lægra en á pappír. Það ætti að geta
aukið bóksölu um leið og mengunar-
völdum fækkar um einn.
VÖRUSÝNINGAR
eru okkar fag
Fáðu upplýsingar og pantaðu
ísíma 621490
Feröaskrifstofa Reykjavíkur
Aöalstræti 16 ■ Reykjavík