Frjáls verslun - 01.08.1997, Page 28
Bjarni er alinn upp á Akranesi og lærði tölvunarfræði en fór síðan í fram-
haldsnám í Sviss í markaðsfræðum og stjórnun. Hann hefur verið forstjóri
Kaupþings frá síðustu áramótum. FV-myndir: Geir Ólafsson.
Nýir, stæltir
og sterkir bílar
til leigu um
land allt.
Við bjóðum nýja bfla sem uppfylla
ströngustu kröfur Hertz, á sex stöðum á
landinu. Þú getur skilað bílnum á þeim
afgreiðslustað sem þér hentar best.
Reykjavflí:
Aðalskrifstofa, Flugvallarvegi
Reykjavíkurflugvelli
Sími: 50 50 600
Símbréf: 50 50 650
• Akureyri:
Akureyrarflugvöllur
Sími: 461 1005/461 2200
Egilsstaðir:
Egilsstaðaflugvöllur
Sími: 471 1210/471 1208
Höfn:
Ilornafjarðarflugvöllur
Sími: 478 1250/478 1750
Keflavík:
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Sími: 425 0221
Vestmannaeyjar:
Vestinannaeyjaflugvöllur
Sími: 481 3300
Hauksson sem nú stýrir Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis. Pétur kynnt-
ist Bjarna í áðurnefndri ferð tölvunar-
fræðinema til Asíu.
Þetta vakti ekki öfund meðal annarra
starfsmanna því það virðist hafa verið
útbreidd skoðun manna að hann væri
vel að þessu kominn og hefði alla burði
til að standa undir þeim væntingum sem
til hans voru gerðar. Bjarni var vinsæll
meðal starfsfólksins því hann virðist
eiga auðvelt með mannleg samskipti og
setur sig ekki á háan hest.
Það var síðan í ársbyrjun 1996 sem
Bjarni ákvað að afla sér frekari mennt-
unar og hélt utan til náms í viðskiptahá-
skóla í Lausanne í Sviss sem heitir IMD.
Sá skóli, ásamt London Business
School í London og INSEAD í Fontain-
bleau í Frakklandi, er einn af þremur
bestu viðskiptaháskólum í Evrópu.
Þetta er skóli sem gerir miklar kröfur til
nemenda sinna og Bjarni lauk MBA
prófi þaðan á einu ári.
Þeir, sem útskrifast frá þessum skóla
eru komnir með gott vegabréf upp á
vasann út í hið alþjóðlega viðskiptalíf.
Fullyrt er að það hafi vakað fyrir Bjarna
að freista gæfunnar á vinnumarkaði er-
lendis og koma ekki heim aftur um
sinn. Þegar honum hinsvegar bauðst
staða forstjóra Kaupþings hvarf hann
frá þessu og staðan var „geymd“ handa
honum meðan hann lauk námi.
HVER ER MAÐURINN?
Bjarna er svo lýst að hann sé prúður
maður og stilltur í framgöngu en glað-
lyndur og hress við þá sem hann þekkir
og eigi auðvelt með mannleg samskipti.
Hann þykir vel gefinn, fljótur að átta sig
á hlutunum og snöggur að mynda sér
skoðanir. Hann er og mjög óragur við að
setja fram skoðanir sínar á þeim verk-
efnum sem í gangi eru hverju sinni.
Vinir hans segja að hann sé fyrst og
fremst jarðbundinn rökhyggjumaður
sem seint verði skilgreindur sem við-
kvæm tilfinningavera. Hann er sagður
einfari í eðli sínu sem þurfi ekki sérstak-
lega á félagsskap annarra að halda.
Sumum þykir gæta hroka í fari
Bjarna en það er oft sagt um mjög
greint fólk sem á að sama skapi litla þol-
inmæði gagnvart þeim sem ekki fylgja
því eftir á fluginu. Aðrir segja að hann
sé þvert á móti fremur hæverskur og
sjái ekkert athugavert við að skipta um
skoðun þegar gild rök komi gegn áliti
hans.
Hann er sagður vel skipulagður
vinnuþjarkur sem jafnffamt sé gæddur
töluverðri sköpunargáfu. Fyrrum yfir-
maður hans sagði að fijótt ímyndunarafl
hans væri einn hans stærsti kostur og
hann hefði nýtt sér það mjög vel þegar
íslenskur fjármagnsmarkaður var að
losna úr viðjum áratuga hafta og stöðn-
unar.
GOÐUR MEÐ NALINA
Hann á margar útsaumsmyndir frá sínum yngri árum
og er áreiðanlega býsna slyngur með nálina þótt penn-
inn sé honum tamari í dag.
28