Frjáls verslun - 01.08.1997, Page 52
Benedikt Höskuldsson er nýráðinn forstöðumaður viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneyt-
isins. FV mynd: Geir Ólafsson.
BENEDIKT HÖSKULDSSON
Dhnotskurn má segja
að hlutverk þjónust-
unnar sé að koma til
liðs við íslenska útflytjend-
ur og aðstoða þá við að ná
bættum árangri á þeim
svæðum þar sem við erum
með okkar skrifstofur. Sér-
staklega er lögð áhersla á
ný tækifæri,“ sagði Bene-
dikt Höskuldsson forstöðu-
maður viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytisins sem
tók formlega til starfa 1.
september. Viðskiptaþjón-
ustan heyrir undir við-
skiptaskrifstofu ráðuneytis-
ins og starfar að miklu leyti
sjálfstætt. Ráðnir verða sér-
stakir viðskiptafulltrúar
sem starfa munu á
nokkrum mikilvægustu
markaðssvæðum Islands í
nánum tengslum við sendi-
ráðin. Magnús Bjarnason
mun starfa í New York,
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Unnur Orradóttir í París og
Rut Bobrich í Berlín. Unnið
er að ráðningu fleiri fulltrúa
en alls mun þjónustan
starfa í 10 þjóðlöndum þó
áhrifasvæði hennar nái víð-
ar.
„Þetta markar stór tíma-
mót því með stofnun við-
skiptaþjónustunnar er verið
að viðskiptavæða utanríkis-
þjónustuna samkvæmt
áformum ríkisstjórnarinnar
þar um.
Auðvitað er það svo að
þó þjónustan sé auðvitað
sérstaklega sniðin að þörf-
um útflytjenda þá er ætlast
til að þetta virki í raun á
báða vegu og viðskiptafull-
trúar veiti upplýsingar og
komi á tengslum við þá sem
vilja selja vörur til Islands.
Megináherslan er lögð á
upplýsingaöflun á þeim
mörkuðum sem Islending-
ar vilja sækja fram á og
koma á nýjum samböndum.
Við teljum að þjónusta
þessi bæti úr brýnni þörf.“
Viðskiptaþjónustan mun
taka við rekstri skrifstofa
sem áður voru reknar í
nafni Utflutningsráðs.
„Með aðstoð þessarar
þjónustu munu viðskipta-
menn komst yíir upplýsing-
ar með skjótum og þægileg-
um hætti, forðast íjárútlát
og komast í viðskiptasam-
bönd sem ella hefðu reynst
óaðgengileg. Það má segja
að okkar hlutverk sé að
vera sá sem opnar dyrnar
og býður fólki að ganga
inn.“
Benedikt er Reykvíking-
ur sem útskrifaðist úr
Menntaskólanum við
Hamrahlíð árið 1979 og
hélt síðan til náms í hag-
fræði í Portland, Oregon í
Ameríku þar sem hann
lagði sérstaka stund á al-
þjóðahagfræði og alþjóða-
viðskipti. Fljótlega eftir að
hann lauk námi hóf hann
störf hjá Utflutningsráði og
starfrækti skrifstofu þess í
Berlín í sex ár og er þess-
vegna nýlega kominn heim
aftur.
„Þegar ég var að ljúka
námi 1986 var alþjóðavið-
skipti sem fag tiltölulega
nýtt en það var mjög
skemmtileg að læra þetta í
föðurlandi viðskiptalífs og
hagfræði.“
Benedikt er giftur Hjör-
dísi Magnúsdóttur íþrótta-
fræðingi sem starfar hjá
Össuri hf. og lærði sitt fag í
Portland. Þau eiga þrjú
börn: Einar Hjörvar, Ólöfu
Ruth og Magnús Otta.
Benedikt segist verja með
ijölskyldunni þeim fáu frí-
stundum sem gefast en er
áhugasamur veiðimaður og
bregður sér í laxveiði þegar
tækifæri gefast og veiðiferð
síðsumars þegar ákveðin í
Haffjarðará.
Benedikt er gamall
íþróttakappi og lagði stund
á blak á sínum yngri árum
og þjálfaði jafnframt
kvennalandsliðið í sömu
íþrótt. I sumar gekk hann
ásamt fleirum „Laugaveg-
inn“ milli Landmannalauga
og Þórsmerkur og stefnir á
ganga yfir Fimmvörðuháls
áður en sumri lýkur.
„Eg var lengi búsettur
erlendis, sex ár í Ameríku
og sex ár í Þýskalandi. I
miðborg Berlínar fer ekki
mikið íýrir náttúrunni. Or-
egon er kallað græna iýlkið
og ber naíh með rentu en
mér fannst ég aldrei sjá
landið fyrir skógi. Þarna
lærði ég að meta fegurð og
hreinleika íslenskrar nátt-
úru og finnst ekkert kom-
ast í hálfkvisti við að njóta
þess sem hún hefur upp á
að bjóða.“ 35
52