Helgarpósturinn - 06.10.1994, Síða 23
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
23
Heil umferð í handbolta í gærkvöldi
Ungir körfuboltarisar Þessir piltar
eru þrír af efnilegustu körfuknattleiksmönnum landsins og allir eru
þeir KR-ingar. Lengst til vinstri er Eyjarisinn, Friðrik Stefánsson, oft
nefndur Heimaklettur enda er hann 2.03 á hæð. Þórhallur Flosason
(1.95) stendur í miðjunni, efnilegur framherji með góðar hreyfingar
undir körfunni. Atli Einarsson er tveggja metra tröll sem engum gefur
grið í baráttunni. Þessum drengjum hefur Axel Nikulásson verið ór-
agur við að gefa tækifæri í fyrstu leikjum KR-liðsins. Svo skemmtilega
vill einnig til að Axel hefur með unglingalandslið karla að gera og það-
an hafa piltarnir einnig mikla reynslu.
Af hveiju nýr
þjáfíari?
Skagamenn hafa ákveðið að
endurnýja ekki þjálfarasamning
við Hörð Helgason fyrir næsta ár,
þrátt fyrir að hann hafi gert liðið
að Islandsmeisturum.
Gunnar Sigurðsson formaður.
„Þetta er bara ákvörðun sem
stjórnin hefur tekið og sér fyrir sér
sem rétta. Hvort annað kemur á
daginn verður bara að koma í ljós.
Þetta er ekki uppsögn af okkar
hálfu heldur aðeins ákvörðun um
að framlengja ekki samninginn. Ég
ætla ekkert að fara nánar út í þetta
mál, Hörður er vinur minn og þar
að auki mágur. Þetta var því gífur-
lega erfið ákvörðun að taka, en
hagsmunum félagsins og einstakra
manna má ekki blanda sarnan."
Hver tekur við?
„Það eru nokkrir menn undir
smásjánni hjá okkur og viðræður
standa yfir. Nokkrir hafa hringt og
boðið krafta sína og til annarra hef-
ur verið leitað. Það eru margir sem
koma til greina.“
Er Logi Ólafsson einn þeirra?
„Nafn hans hefur borið á góma.
Hann er fær þjálfari og hefur verið
að ná góðum árangri með kvenna-
landsliðið. Hann gæti alveg haldið
utan um það lið áfram þótt hann
tæki við í. deildar liði. Ef viljinn er
fyrir hendi get ég ekki séð að það
væri neitt vandamál.“
Hörður Helgason, fyrrverandi
þjálfari. „Mikil vonbrigði."
Er ákvörðunar að vœnta?
„Það liggur ekkert á.“
Hörður Helgason, fyrrverandi
þjálfari.
„Fyrir mér er þetta hið undarleg-
asta mál. Þetta var ekki það sem ég
bjóst við og ég hef ekki fengið þær
skýringar sem ég hef óskað eftir.
Þetta er hins vegar ákvörðun þess-
ara manna og við því er lítið að
segja, en vonbrigðin eru mikil, það
get ég sagt þér.“H
Valsmenn með besta
liðið í deildinni
Handbolti
„Þetta var hörkuleikur og sigur-
inn hefði getað endað báðum meg-
in. Við vorum yfir 15:10 þegar Guð-
jón var rekinn útaf og vorum dálít-
inn tíma að stilla okkur saman aft-
ur. Á sama tíma varði Bergsveinn
allt sem á markið kom og þeir náðu
að jafna. Það var síðan fyrst og
fremst góð vörn og markvarsla hjá
okkur sem skóp sigurinn," sagði
Gunnar Beinteinsson eftir leik
FH og Aftureldingar í gærkvöldi.
Leikurinn endaði 24:22 eftir tvísýn-
ar lokamínútur þar sem markverðir
liðanna komu mikið við sögu.
Framan af fyrri hálfleik var jafn-
ræði með liðunum en FH voru ívið
sterkari í lok hálfleiksins og leiddu
með fjórum mörkum í hléi, 12:8.
Leikmenn Aftureldingar komu
ákveðnir til seinni hálfleiks og náðu
að jafna, 17:17, en skömmu áður
hafði Guðjóni Árnasyni verið vik-
ið af leikvelli með þrjár brottvísan-
ir. AUt til loka leiksins var jafnræði
og jafnt á öllum tölum, en FH-ing-
ar voru sterkari á lokasprettinum
og sigruðu 24:22.
Markverðir liðanna, Bergsveinn
og Magnús voru menn leiksins en
markahæstir voru Hans hjá FH og
Ingimundur hjá UMFA, báðir með
sjö mörk. ■
Handbolti
Staðan Valur 5 121:104 10
Víkingur 5 127:108 8
FH 5 129:115 8
Selfoss 5 117:117 7
Afturelding 5 128:103 6
Stjarnan 5 130:127 6
Haukar 4 111:109 6
KA 5 126:122 3
HK 5 116:119 2
KR 5 103:115 2
ÍR 4 86:108 0
ÍH 5 92:138 0
Aðrir leikir
KA - HK (12:6) -26:17 Heima-
menn áttu ekki í neinum vandræð-
um. Sigmar Þröstur fór alveg á
kostum og varði 27 skot! Jóhann
Gunnar og Patrekur voru marka-
hæstir hjá KA en Baldvin Bald-
vinsson markvörður var bestur
gestanna. Alfreð Gíslason og
Valdimar Grímsson voru meiddir.
ÍR - Haukar Frestað vegna Evr-
ópuleikja Hauka um helgina.
Selfoss - Valur (7:14) 24 : 28
Gestirnir eru því enn með fullt hús.
Axel Stefánsson varði 16 skot fyrir
Val en markahæstir þeirra voru
Jón kristjánsson með 7 mörk og
Júlíus Gunnarsson með 6. Hæstir
heimamanna voru þeir Grímur
Hergeirsson og Nenab Reabos-
avijevic með fimm mörk.
KR - Stjarnan (13:11) - 22 : 24
Stjörnumenn höfðu betur á enda-
sprettinum.
ÍH - Víkingur (8:11) - 15 : 21
Mjög slakur leikur og hefði sigur
Víkinga átt að vera stærri. Reynir
Reynisson var bestur og varði 20
skot fyrir gestina.
Islendingar mæta Englendingum á laugardag
Eigum okkar möguleika
íslenska kvennalandsliðið mætir
því enska í átta liða úrslituni Evr-
ópukeppninnar í knattspyrnu á
laugardag. Leikurinn fer fram á
Laugardalsvelli og er ástæða til að
hvetja alla til að mæta og styðja
stelpurnar því mikið er í húfi.
Leikurinn er geysilega mikilvæg-
ur. Beri Islendingar sigur úr býtur
úr báðum viðureignunum, sú
seinni er í Brighton 30. október,
erum við komin í fjögurra liða úr-
slit Evrópukeppninnar, búin að
tryggja okkur sæti í lokakeppni
HM og eigum góða möguleika á að
senda heilt kvennalandslið á sjálfa
Ólympíuleikana í Atlanta 1996.
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari
segir engan vafa leika á því að
enska liðið sé sterkt. „Við erum
hins vegar áður búin að ná hag-
stæðum úrslitum gegn sterkum
þjóðum og nægir að nefna sigur-
inn á Hollendingum því til sönn-
unar. Við verjumst vel og eigum
svo okkar sóknir sem geta ráðið
úrslitum. Það skiptir engu máli
hvað andstæðingarnir heita ef við
vinnum okkar vinnu.“
Enska liðið er mjög sterkt og
hefur lengi verið í fremstu röð
kvennalandsliða. Skemmst er að
minnast sigurs þeirra gegn ís-
lensku stelpunum í tveimur leikj-
um árið 1992, 4:0 ytra og 2:1 hér
heima. Það er því ljóst að leikurinn
ætti að geta orðið mjög spennandi
og öllum má vera ljóst mikilvægi
hans.
Eggert Magnússon, formaður
KSl, sagði þetta vera tækifæri
þjóðarinnar til að sýna stuðning-
inn í verki. Miðaverð er aðeins 500
krónur og frítt er inn fyrir sextán
ára og yngri. Bih
Logi Ólafsson landsliðþjálfari
KKÍsemur
vidDHL
I gær var undirritaður samstarfs-
samningur Körfuknattleikssam-
bands íslands við DHL Hraðflutn-
inga hf. Samningurinn, sem er til
þriggja ára, felur í sér að hér eftir
heitir úrvalsdeildin í körfuknattleik
DHL-deildin og mun KKl sjá um
að kynna sem víðast fýrirtækið og
starfsemi þess. Meðal annars eru
auglýsingaspjöld DHL í þeim
íþróttahúsum sem leikið verður í í
deildinni í vetur, og leikmenn
munu bera merki DHL á stuttbux-
um sínum. Á móti kemur myndar-
legur fjárstúðningur fyrirtækisins
við körfuknattleikssambandið. Þar
með er DHL Hraðflutningar hf.
orðinn einn af aðalstuðningsaðil-
um sambandsins og varla þarf að
fjölyrða um hve mikils virði það er
sambandinu og íþróttinni, sem er á
mikilli uppleið hér á landi um þess-
ar mundir. ■
Enska úrvalsdeildin
Ú T I
Leikiri U J T Mörk Mörk Stio
8 3 1 0 14-4 Newcastle 4 0 0 11-4 +17 22
8 3 1 0 9-4 Notth. For. 3 1 0 8-3 +10 20
8 4 0 0 13-1 Blackburn 1 2 1 4-4 +12 17
8 4 0 0 9-0 Man. Utd. 1 1 2 5-6 + 8 16
7 2 1 0 7-1 Liverpool 2 1 1 9-4 +11 14
8 3 0 1 7-4 Leeds 1 2 1 4-4 + 3 14
7 2 0 2 7-4 Chelsea 2 0 1 6-6 + 3 12
8 1 2 1 5-5 Southamptn 2 1 1 7-8 -1 12
8 2 2 0 3-1 Norwich 1 1 2 2-5 -1 12
8 1 0 3 4-8 Tottenham 3 0 1 10-8 -2 12
8 3 1 0 10-1 Man. City 0 1 3 1-9 + 1 11
8 1 2 1 4-4 Aston V. 1 1 2 4-6 -2 9
8 1 1 2 4-5 Wimbledon 1 2 1 2-4 -3 9
8 1 1 2 6-5 Arsenal 1 1 2 2-4 -1 8
8 1 1 2 2-5 West Ham 1 1 2 2-5 -6 8
8 1 0 3 5-8 Ipswich 1 1 2 4-7 -6 7
8 0 1 3 2-9 C. Palace 1 3 0 4-3 -6 7
8 1 1 2 6-7 QPR 0 2 2 5-8 -4 6
8 1 2 1 7-7 Leicester 0 1 3 2-7 -5 6
8 0 3 1 5-6 Sheff. Wed 1 0 3 5-11 -7 6
8 1 1 2 4-6 Coventry 0 2 2 4-12 -10 6
8 0 3 1 6-7 Everton 0 0 4 1-11 -11 3
1. deildin
Ú T I
Leikir u J T U J T Mörk Mörk Stiq
10 5 0 0 (12-1) Wolves 2 2 1 (6-5) +12 23
10 4 1 0 (10-3) Middlesbro 3 1 1 (6-3) +10 23
10 3 2 ' 0 (7-0) Reading 2 1 2 (7-5) +9 18
10 4 2 0 (8-3) Swindon 1 0 3 (4-6) +3 17
10 5 0 0 (13-6) Tranmere 0 2 3 (3-8) +2 17
10 3 2 0 (10-5) Charlton 1 2 2 (9-12) +2 16
10 4 0 1 (12-5) Stoke 1 1 3 (3-12) -2 16
9 3 1 1 (10-5) Sheff. Utd 1 1 2 (4-4) +5 14
10 3 1 1 (7-3) Bolton 1 1 3 (8-9) +3 14
10 3 1 1 (7-3) Derby 1 1 3 (5-8) +1 14
10 3 1 1 (12-6) Grimsby 0 3 2 (6-8) +4 13
10 1 2 2 (5-7) Portsmouth 2 2 1 (5-4) -1 13
10 3 0 2 (7-6) Port Vale 1 1 3 (4-8) -3 13
10 3 0 2 (6-6) Southend 1 1 3 (5-14) -9 13
10 1 3 1 (6-5) Sunderland 1 3 1 (4-4) +1 12
10 3 0 2 (10-7) Oldham 1 0 4 (5-9) -1 12
10 1 2 2 (2-4) Bristol C. 2 1 2 (7-6) -1 12
10 2 2 1 (5-5) Barnsley 1 1 3 (4-7) -3 12
10 2 2 1 (11-7) Millwall 0 2 3 (2-8) -2 10
10 0 2 3 (3-8) Luton 2 2 1 (7-6) -4 10
10 1 3' 1 (7-8) Watford 1 1 3 (2-7) -6 10
10 0 3 2 (3-5) Burnley 2 0 3 (4-8) -6 9
9 1 1 1 (2-3) WBA 0 3 3 (5-11) -7 7
10 0 2 3 (5-10) Notts Cnty 1 1 3 (6-8) -7 6
Fjölmiðlaspá
Leikir SvÍÞJÓÐ ÍSLAND Samtals
1 X 2 1 X 2 1 X 2
1. Chelsea - Leicester 10 0 0 10 0 0 20 0 0
2. Liverpool - Aston V. 10 0 0 9 1 0 19 1 0
3. Man. City - Notth For. 1 7 2 2 6 2 3 13 4
4. Norwich - Leeds 4 5 1 4 0 6 8 5 7
5. Newcastle - Blackburn 10 0 0 5 3 2 15 3 2
6. Sheff. Wed - Man. Utd. 1. 0 9 1 1 8 2 1 17
7. Southamptn - Everton 8 1 1 8 2 0 16 3 1
8. Tottenham - QPR 10 0 0 9 1 0 19 1 0
9. West Ham - C. Palace 4 5 1 7 3 0 11 8 1
10. Wimbledon - Arsenal 0 ~Ö~ 10 ~cT 1 9 0 1 19
11. Bristol C. - Millwall 5 5 0 6 2 2 11 7 2
12. Notts Cnty - Port Vale 7 1 2 8 2 0 15 3 2
13. Swindon - Wolves 0 6 4 4 2 4 4 8 8
Piltalandsliðið
Tapgegn
Frökkum
Islenska piltalandsliðið, skip-
að leikmönnum 18 ára og yngri,
beið lægri hlut fyrir frönskum
jafnöldrum sínum á Varmárvelli
í gærdag. Þetta var fyrsti leikur
íslenska liðsins í Evrópukeppn-
inni en áður höfðu Frakkar unn-
ið stóran sigur á Lúxemborg,
4:0.
Sigurmark leiksins kom
snemma í seinni hálfleik en fram
að því og eftir það voru sóknir
íslensku piltanna mun hættu-
legri og átti varnarmaðurinn Vil-
hjálmur Vilhjálmsson meðal
annars þrumuskot í þverslána.B