Helgarpósturinn - 01.06.1995, Page 10
Iargir hafa
rekið upp
stór augu í
Borgarnesi en þar er
að rísa heljarmikil
viðbygging við Hótel
Borgarnes sem
lengst af hefur verið
hálftómt, eða tómt.
Undanfarin fjögur ár
hefur Pétur Geirsson
verið meirihlutaeig-
andi hótelsins en
hann rekur auk þess
Hreðavatnsskála og
Botnsskála. Hann er
stórhuga maður og
er nú að láta reisa
fjögurra hæða við-
byggingu við hótelið
hálftóma. Fram-
kvæmdir hófust í vor
og eiga fyrstu tvær
hæðirnar að verða
tilbúnar í sumar, sú
fyrri þann 20. júní og
mun þegar vera búið
að bóka hæðina.
Seinni tvær hæðirnar
eiga að rísa á kom-
andi vetri. Flestir
Borgnesingar telja
þetta stórhug hinn
mesta og bíða
spenntir eftir að sjá
hvort áætlun Péturs
gengur upp. Honum
þótti hótelið vera
annað hvort of lítið,
eða of stórt. Niður-
staðan var að stækka
hótelið og stíia þann-
ig inn á funda- og
ráðstefnumarkaðin-
um sem ekki var
hægt að sinna með
óbreyttu hóteli...
íþróttakennarinn Þórarinn Ragn-
arsson hefur heldur betur komist
milli tannanna á fólki eftir að hann
keypti Kaffi Reykjavík á 140 millj-
ónir króna, staðgreitt, og á sama
tíma opnaði hann Astro. Hann var
endurbyggður frá grunni fyrir
50-80 milljónir króna og því er
hér um framkvæmdir fyrir rúm-
lega 200 milljónir króna að ræða á
sama tíma. Þess utan hefur Þórar-
inn rekið Staldrið í Breiðholti og
staðið í umfangsmiklum fast-
eignarekstri, meðal annars Mið-
bæ Hafnarfjarðar. Þórarinn hefur
hagnast vel á viðskiptum sínum
síðasta áratuginn enda er hann
sagður halda vel utan um rekstur-
inn og að hann sé afar fastheldinn
á fé.
uanduðsmaður
I HAIUDROLTA
OG FRJALSUM
Þórarinn Ragnarsson er fæddur
og uppalinn á Óðinsgötu 2 í
Reykjavík árið 1945 og verður því
fimmtugur síðar á þessu ári. For-
eldrar hans voru þau Ragnar Er-
lingsson málarameistari og Soffía
Guðmundsdóttir en þau eru bæði
látin. Þórarinn fluttist ungur til
Hafnarfjarðar og gekk í Flensborg-
arskóla jafnhliða því sem hann
tengdist íþróttalífinu í bænum.
Reyndar fór hann til Bandaríkj-
anna 16 ára gamall sem skipti-
nemi á vegum Þjóðkirkjunnar og
dvaldi í eitt ár í Waterloo í Iowa.
Eiginkona hans er Lovísa Jóhannes-
dóttir sem er framkvæmdastjóri
og sér um rekstur á Staldrinu.
Þórarinn var vel þekktur
íþróttamaður á sínum yngri árum
og varð landsliðsmaður, bæði í
handbolta og frjálsum íþróttum.
Hann spilaði með gullaldarliði FH
í handbolta með köppum eins og
Geir Hallsteinssyni, Viðari Símonar-
syni, Birgi Björnssyni og Hjalta Ein-
arssyni. Þórarinn lék fremsta
mann í vörninni og í horninu í
sókninni. FH varð margoft ís-
lands- og bikarmeistari og alls lék
Þórarinn 36 landsleiki fyrir ís-
lands hönd. Þá var hann í frjálsum
íþróttum með KR og keppti fyrir
landsliðið í 400 og 800 metra
hlaupi.
„Maður segir nú svona í gríni að
maður sé eins og Þ í laginu, mað-
ur heitir jú Þórarinn. En ég reyni
að halda mér við, hlaupa og fara í
leikfimi öðru hverju,“ segir Þórar-
inn.
Þegar Þórarinn kom heim frá
Bandaríkjunum voru það íþrótt-
irnar sem toguðu í hann og hann
fór í íþróttakennaraskólann á
Laugarvatni. í framhaldi af því
starfaði hann sem íþróttakennari
við Verslunarskóla íslands og
Hlíðaskóla í nærri 15 ár og þótti
beita nemendum sannkölluðum
heraga. Gamlir nemendur bera
honum misjafna söguna og er tíð-
rætt um köldu sturtuna sem allir
urðu að fara í eftir hvern leikfimi-
tíma. Þá var hann íþróttafrétta-
maður við Morgunblaðið í áratug.
STALDRID HORIU-
STEIIUIU VELDISIIUS
Grundvöllurinn að auðsöfnun
Þórarins var lagður þegar hann
hóf rekstur Staldursins árið 1984
við Stekkjabakka 2 í Breiðholti en
það er sölunesti. Þegar hann hafði
Þórarinn Ragnarsson keypti á dögunum Kaffi Reykjavík fyrir 140 milljónir og bætti svo
um betur og opnaði Astro eftir 50-80 milljóna króna endurgerð. Áður rak hann Ingólfskaffi,
Pisa og Berlín en hornsteinn veldisins er Staldrið. Auk þess hefur hann staðið í
umfangsmiklum fasteignarekstri og er orðaður við ábatasöm viðskipti erlendis
Helgi
Björnsson
POPPARI OG
VEITINGAMAÐUR
„Þaö er ósköp einfalt, Þórarinn
er góður drengur. Þaö eru ekki
nema tveir til þrír mánuðir frá því
að ég kynntist honum svo maður
getur ekki farið út í djúpar pæling-
ar um manninn. En samstarf okkar
hefur gengið mjög vel. Hann er
hrjúfur en einlægur. Hann kemur
beint fram við mann og það er
hlutur sem ég kann að meta í fari
fólks. Húmorinn er í góðu lagi og
hann er stríðinn, það er líka eitt-
hvað sem ég kann að meta."
fengið úthlutað lóðinni sagði hann
upp á Morgunblaðinu og hefur frá
þeim tíma einbeitt sér að viðskipt-
um. Staldrið er alfarið í eigu hans
og fjölskyldu hans og hefur skilað
góðum hagnaði, jafnt og þétt.
Staldrið var nokkuð umdeilt á
sínum tíma, bæði lóðaúthlutunin
og beygjuakrein sem lögð var til
að auðvelda aðkeyrslu að verslun-
inni. Það kom til af því að eyja var
sett við götuna sem lokaði aðgang
úr annarri áttinni. Þórarinn óskaði
eftir því að áfram yrði opið þarna
sem var samþykkt á endanum.
Þórarinn bendir á að þarna hafi
aldrei orðið umferðaróhapp og
því eigi þessar framkvæmdir full-
komlega rétt á sér. Hvað sem öðru
líður er Ijóst að þarna var um mik-
ið hagsmunamál að ræða. Hann
segir engin pólitísk tengsl hafa
ráðið og lóðaúthlutunin hafi verið
samþykkt af fulltrúum allra flokka.
„Jú, þetta hefur gengið mjög vel
og þetta er góð staðsetning. Eng-
inn veit sína ævina fyrr en öll er
en svona eftir á sjá menn að þetta
hefur gengið vel. Þetta hefur verið
mikil vinna og við höfum passað
vel upp á þetta. Þetta gengur
mjög vel,“ segir Þórarinn um
rekstur Staldursins.
Staldrið er hornsteinninn í
viðskiptaveldi Þórarins og
hefur skilað honum vel frá
því það var opnað 1984.
UMSVIFAMIKILL
FASTEIGIUAREKSTUR
Þórarinn hefur staðið í um-
fangsmiklum byggingafram-
kvæmdum og umsýslu fasteigna,
yfirleitt með Gunnari Hjaltalín end-
urskoðenda. Þórarinn segir að sá
rekstur hafi gengið mjög vel en
þeir hafa staðið í þessum rekstri í
áratug og fjölmörg hús sem hafa
farið um þeirra hendur.
Gunnar hefur þekkt Þórarin frá
unglingsárum og þeir spiluðu
handbolta saman. Gunnar segir
Þórarin áreiðanlegan og standi
við orð sín í viðskipum. Besti
kosturinn sé hve traustur félagi
hann er en Gunnar segist ekki
þekkja neina galla á Þórarni.
Eitt af þeim húsum sem þeir
reistu saman er stórhýsið að Stór-
höfða 15 við Gullinbrú. Það
byggðu þeir sjálfir, leigðu verk-
fræðistofunni Streng efstu tvær
hæðirnar, seldu miðhæðina undir
verslunarrekstur en ráku sjálfir
íþróttasali á neðstu hæðinni. Það
var síðan keypt af fyrirtæki Ólafs
H. Jónssonar handknattleiksmanns
og Strengur hefur keypt þær hæð-
ir sem þeir leigðu þannig að hús-
næðið er ekki lengur í eigu þeirra
Þórarins og Gunnars.
Sjálfur er Þórarinn skráður sem
stjórnarformaður í fjórum fyrir-
Þórarinn keypti Kaffi Reykjavík af Vali Magnússyni á 140
milljónir staðgreiddar. Annað veitingahús Þórarins, Astro,
var opnað um síðustu helgi. Hann og Gunnar Hjaltalín áttu
Þisa og Berlín en ákváðu að sameina reksturinn og endur-
byggja húsið frá grunni. Kostnaðurinn var 50-80 milljónir.
f 1 m Skapti
wkm %■ " ^ Hallgrímsson
’ Iþróttafréttamaður
Á Morgunblaðinu
„Þórarinn var íþróttafréttamað-
ur hér þegar ég hóf störf og var
samstarfmaður minn og yfirmaður
um tíma. Ég hef ekkert nema gott
um hann aö segja. Þórarinn er
mjög duglegur og kraftmikill. Hann
er hörkutól eins og sást þegar
hann lagði stund á íþróttir, bæði
frjálsar og handbolta. Hann lagði
mikið á sig og vildi að aðrir gerðu
það líka. Það var gaman að vinna
með honum og hann var góður fé-
lagi."
TILVIUANAKEIUIUDUR
VEITINGAREKSTUR
Þórarinn segir það algjöra til-
viljun að hann fór út í veitinga-
rekstur. Það var árið 1990 sem
þeir Gunnar kaupa Ingólfscafé af
Gísla Lárussyni kenndan við Skand-
ía. Þeir ákváðu að reka staðinn
sjálfir ásamt Birni Leifssyni í World
tækjum. Stekkur hf. rekur Staldr-
ið, Jón P. Jónsson hf. er bygginga-
fyrirtæki, Mýr hf. er í rekstri fast-
eigna og Sýr hf. á eignir uppi í
Mjódd sem áður voru í eigu Sveins
bakara.
MIÐBÆR
HAFNARFJARÐAR
Það voru síðan fimm aðilar sem
stofnuðu hlutafélag um miðbæ
Hafnarfjarðar eða þeir Þórarinn,
Gunnar Hjaltalín, Páll Pálsson, Þor-
valdur Ásgeirsson og Viðar Halldórs-
son. Þeir fengu úthlutað lóð í mið-
bæ Hafnarfjarðar og réðust í að
reisa verslunarmiðstöð. Þeir hafa
þurft að glíma við ýmsa erfiðleika
og margir halda jiví fram að allur
sá rekstur hafi verið mjög þungur.
Sjálfur segir Þórarinn að vel hafi
tekist til. Hann segir að allt sé selt
í verslunarmiðstöðinni sjálfri og
þar inni séu traust fyrirtæki. Hins
vegar sé enn óselt í turnhúsunum
tveimur og markaðurinn sé mjög
þungur. „Það er alrangt að þetta
sé eitthvað sem ekki gangi upp,“
segir Þórarinn.
Þess má einnig geta að Þórar-
inn var gjaldkeri Seljasóknar sem
reisti kirkjuna sem gengur undir
nafninu Indíánatjaldið.