Helgarpósturinn - 01.06.1995, Síða 16
hvað
VANTARí
REYKJAVÍK?
Bergþór Pálsson,
söngvari
„Það vantar tón-
listarhús og
kannski svolítið
meiri kœrleika í
umhverfið. “
Óskar Jónasson,
kvikmynda-
gerðarmaður
„Það vantar bað-
strönd allan hring-
inn í kringum borg-
ina og meðalhita
um 25 gráður. Svo
vantar pálmatré
meðfram Sœbraut
og Kleppsvegi, Suð-
urlandsbraut,
Hringbraut og
Miklubraut, upp að
Ártúnsholti að
minnsta kosti. Það
vantar líka stráþök
á Kringluna og
Perluna, Laugar-
dagshöllina og
Hlemm og flóð-
hesta í Húsdýra-
garðinn.“
Pétur Kristjánsson tónlistarmaður hefur spilað á flestum sveitaballastöðum landsins
með hljómsveitunum Pops, Pelican, Paradís, Svanfríði og Start. Pétur rifjaði upp
fyrir póstinn skemmtilegar sögur af böllum og fólki héðan og þaðan af landinu
1 Festi í Grindavík.Tómas í Hard
Rock var framkvæmdastjóri þar á
blómatíma staðarins. Pelican og Paradís
spiluðu þarna á árunum '74-76 fyrir
um fimm til sex hundruð manns.
2 Frá '69-74 var Stapinn í Njarð-
vík aðalhúsið. Þar spilaði ég með Nátt-
úru og Pelican og urðu böllin oft ansi
skemmtileg þar. Þegar Pelican var á
toppnum um '74 gáfum við út plötuna
Uppteknir, sardínuplötuna svokölluðu.
Á útgáfudaginn spiluðum við í Stapa og
létum birta í Morgunblaðinu tvær
heilsíðuauglýsingar í lit, báðar með
sardínudósinni en mismunandi texta,
önnur fyrir ballið og hin fyrir plötuna.
Þetta hafði aldrei sést áður og var því
svolítið júník dæmi. Milli sex og sjö
þegar við komum með hljóðfærin var
strax komin biðröð. Klukkan níu opnaði
svo miðasalan og korteri síðar var upp-
selt fyrir sjö hundruð manns. Annað
eins hafði aldrei gerst og ég man að
þetta var rosalega gott ball.
3 Ungó 1 Keflavík var mjög vinsæll
staður í kringum 1940 en var orðinn
mjög þreyttur um 1970. Þegar Stapinn
kom var Ungó eiginlega úreltur staður
en hafði einhverja sál sem maður hafði
gaman af. Við spiluðum oft þar á föstu-
dögum og það var svolítið annar fíling-
ur en á hinum stöðunum.
4 & 5 Árið 1968 var Kefla-
víkurflugvöllur mjög heitur. Þar spil-
aði ég á Pólarklúbbnum og Top of
the Rock með hljómsveitinni Pops. Við
höfðum með okkur tvær gógópíur með
beran magann og trylltum þannig þús-
und Kana á hverjum föstudegi.
6 Samkomuhúsið í Sandgerði var
samastaður Start frá '80- '83.
7 Hlégarður í Mosfellsbæ var vin-
sæll um '65-75. Þangað komu margir
frá Reykjavík til að hlusta.
8 Félagsgarður í Kjós var rekið af
Ungmennafélaginu Drengur og varyfir-
leitt ekki mikið að gerast þar. Það náð-
ist hins vegar þrisvar að gera staðinn
vinsælan og það var þegar Trúbrot og
Pelican voru að spila þarna svo gerðist
ekkert á þessum stað fyrr en Start fór
að spila um '82, þá varð staðurinn aftur
vinsæll.
9 Á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd
er komið nýtt glæsilegt félagsheimili og
Start spilaði einhvern tíma þar en ég
spilaði með Náttúru í gamla félags-
heimilinu sem var nær Saurbæ Hall-
gríms Péturssonar.
10 Pops spiluðu í Rein á Akra-
nesi og síðastliðin 15-20 ár hefur hót-
elið sem nú heitir Pavarotti verið vin-
sælast.
11 & 12 Ég spilaði nokkrum
sinnum í Brautartungu í Lunda-
reykjardal og svo í Logalandi hjá
Reykholti þar sem hefð er fyrir stórum
böllum um hvítasunnuna. Brautartunga
er eitt af fáum félagsheimilum sem er
með sundlaug þannig að menn enduðu
oft útí laug til að kæla sig niður eftir
böllin.
13 & 14 Breiðablik á Snæ-
fellsnesi. Þarna spilaði ég með Nátt-
úru um '70 og Start '82. Um '75 varð
Lýsuhóll sem er vestar á nesinu vin-
sælastur. Ég og félagi minn Eiríkur
Hauksson höfðum voðalega gaman af
allskyns stripplingahætti á þessum árum
og þá helst uppi á heiðum þegar maður
var að fara á milli staða.
15 Röst á Hellissandi. '75 var Pel-
ican að spila á Blönduósi og átti að
vera mætt daginn eftir á Röst. Á leið-
inni á milli sprakk svo oft á bílnum að
það var engin leið fyrir okkur að ná á
Röst á réttum tíma. Ómar Valdimars-
son, sem þá var umboðsmaður okkar,
inn
30
Miðgarður í
Skagafirði hef-
urallta'
húsið í
aði þari
og við fengum þrjár eða fjórar rútur
frá Akureyri sem var dálítið magnað.
31 Félagsheimilið á Hofsósi var
mjög vinsælt um 74-75 og þar hélt
Pelican góð böll. Húsvörðurinn á þeim
stað Kristján Snorrason, sem seinna var
þekktur sem forsvarsmaður Upplyfting-
ar, er nú bankastjóri í Borgarfirði.
32 & 33 I gegnum tíðina hef-
ur Hótel Höfn verið aðalstaðurinn á
Siglufirði. Þegar ég var að spila með
Svanfríði reyndist okkur erfitt að komast
að þar þannig að við fengum Félags-
heimilið Ketilás í flýti, sem er pínulíll
staður. Við áttum ekki von á mörgum
þangað þar sem staðurinn er mjög lítill
en það fór svo að við sprengdum það
gjörsamlega utan af okkur með 250
gestum.
34 Það mættu um fimm til sex
hundruð manns þegar Pelican spilaði á
Víkurröst á Dalvík sem var aðal
sveitaballastaður Eyfirðinga um 1970.
35 Þegar hljómsveitin var nýbyrjuð
ákváðum við að halda hátíð um versl-
unarmannahelgi á Végarði, sem er í
innsveitum á Héraði. Þarna voru Kaffi-
brúsakarlarnir og Baldur Brjánsson
töframaður. Við ákváðum að vera með
mjög frumlega auglýsingu í útvarpinu
sem hljóðaði svo: „Erum yfir Vatna-
jökli." Þá vorum við búnir að reikna út
hvar við værum staddir á hverri stundu
og létum auglýsingarnar stemma við
það. Þegar við svo lentum kom það í út-
varpinu. Við fórum beint í símann á
staðnum, þessa gömlu handsnúnu, og
hleruðum þar konu segja: „Þeir eru í
beinu sambandi við útvarpið" sem þótti
náttúrlega gífurlega flott á þessum
tíma. Á þennan hundrað manna stað
komu svo á annað þúsund manns.
36 Allar hljómsveitirnar sem ég hef
spilað með hafa spilað í Freyvangi í
Eyjafirði.
37 Ljósvetningabúð hjá Ljósa-
vatnsgarði er glæsilegt félagsheimili
þar sem voru haldin góð böll hér áður
fyrr.
Ydalir í Aðal-
dal er stærsti sveitaballastaður
landsins á seinni árum. Þar spila allar
stóru hljómsveitirnar, Sálin og þær.
39 74-76 voru mörg góð böll á
Hótel Húsavík.
40 Þegar ég spilaði einu sinni með
Start á Þórshöfn enduðum við ballið
klukkan tvö um nóttina á laginu Lola
með Kinks eins og svo oft. Klukkan sex
um nóttina var hópur fólks enn að
syngja lagið við litlar undirtektir
íbúa staðarins.
41, 42,
43 &44 Pelican varð
vinsæl á Austfjörðum 1973 þegar
við héldum böll þrjár helgar í röð
á Valaskjálf á Egilsstöðum.
Þangað þyrptust menn af öllum
Austfjörðunum. Aðeins síðar, um
73-75 var oft spilað í Félags-
lundi á Reyðarfirði, Félags-
heimilinu Neskaupstað og Val-
höll á Eskifirði.
45 Á Fáskrúðsfirði erfélags-
heimi bæði stórt og vinsælt.
46 Sindrabær á Höfn í Horna-
firði.
47, 48, 49 & 50
Fyrir austan fjall eru staðir eins og Borg
í Grímsnesi, Aratunga, Félagsheim-
ilið á Hvolsvelli, Árnes og Hellubíó,
Selfossbíó. Á árunum '67-72 voru
Mánar einráðir fyrir austan og stóru
Reykjavíkurhljómsveitirnar voguðu sér
ekki þangað, þær áttu allt eins von á
tómum húsum. Við í Svanfríði sáum
okkur leik á borði og ákváðum að hafa
með okkur „Nektardansarann Súsan
sem baðaði sig í bala". Þetta vakti nátt-
úrlega feikimikla athygli, fólk mætti á
böllin, skemmti sér og fattaði að lífið
var kannski aðeins meira en Mánar.
Súsan var fyrsta nektardansmærin sem
kom hingað og það var enginn annar
en Ámundi Ámundason sem flutti hana
51 Vestmannaeyjar. Þar spilaði ég
oft með hljómsveitinni Pops um '68. Ég
man eftir því að þar voru tveir litlir
strákar sem vinguðust við okkur og
fengu alltaf að icoma inn baksviðs í Al-
þýðuhúsinu og horfa á alla dýrðina.
Seinna komst ég að því að það var eng-
inn annar en okkar frægasti knatt-
spyrnumaður Ásgeir Sigurvinsson, þá
bara tólf eða þrettán ára gamall. ■
o
o o o
© ©
lagði hins vegar ofurkapp á að við lét-
um allavega sjá okkur þannig að við
mættum á staðinn, sem var fullur af
vonsviknum áheyrendum, svona rétt til
að sýna að við værum ekki að skrópa.
16 Samkomuhúsið á Grundar-
firði.
17 Á Hótel Stykkishólmi gerðu
Stuðmenn stærstu böllin á seinni árum.
18 Félagsheimilið Dalabúð, Þar
spilaði ég nokkrum sinnum.
19 & 20 70 var vinsælt að
spila á Birkimel á Garðaströnd. í
dag fara hins vegar flestir i Félags-
heimili Patreksfjarðar, sem er mjög
stórt og glæsilegt hús.
21 Félagheimilið á Bíldudal er
ágætis hús sem ég spilaði stundum í.
22, 23 & 24 Um '68 spil-
aði Pops í Félagsheimilinu á Þing-
eyri og á Flateyri en ég spilaði hins
vegar aldrei á Súganda.
25 Pelican hélt stór og fín böll í Fé-
lagsheimilinu í Hnífsdal sem var vin-
sælasti staðurinn á Vestfjörðum.
26 & 27 Á Vestfjörðum er
líka Sjálfstæðishúsið á ísafirði eða
Sjallinn eins og það er kallað í dag og
Félagsheimilið á Bolungarvík.Ég
man að við fórum 1971 í Sjallann með
hljómsveitinni Náttúru og vorum með
lánstrommara því trommarinn okkar,
Ólafur Garðarson, var með hettusótt og
gat ekki verið með okkur. Þarna vorum
við veðurtepptir í heila viku eftir að
hafa spilað eitt kvöld og þar sem við
vorum að spila í Hárinu í Glaumbæ
töfðum við sýningar í bænum. Það vakti
ekki mikla lukku hjá Leikfélagi Kópa-
vogs sem setti upp Hárið á þessum
tíma.
28 & 29 Það voru mörg og
góð böll í Félagsheimilinu á Blöndu-
ósi. Ég var þar '71 með Náttúru og allt-
af eitthvað í gegnum tíðina. Skammt
þar frá eða áður en maður fer upp Ból-
staðabrekkuna kemur maður að Húna-
veri þar sem Ámundi Ámundason hélt
Húnaversgleði á sínum tíma en Stuð-
menn hafa gert ódauðlegan stað.