Helgarpósturinn - 01.06.1995, Síða 19
BÍ881
19
leikhús
Eilíf della...
Kaffileikhúsið, Hlaðvarpanum:
Herbergi Veroniku eftir Ira Levin
Leikstjóri: Þórunn Sigurðardóttir
Þýðandi: Ingunn ásdIsardóhir
Kaffileikhúsið lætur ekki deigan
síga og siglir nú þöndum seglum
á slöttungsgóðum þriller. Þetta er
afþreying með léttu sálfræðilegu
ívafi og soldið kitlandi óhugnan-
leg. Bara að maður væri nú ekki
orðinn alveg hundleiður á allri
þessari afþreyingu í leikhúsun-
um, sjónvarpinu, bíóunum hvur-
veithvar og allstaðar. Að vísu er
þetta ekkert meiri þriller en til
dæmis Framtíðardraugar Þórs
Tuliniusar eða Maríusögur Þorvald-
ar Þorsteinssonar, og síður en svo
betur saminn. En höfundurinn er
víst frægari, sumir segja að hann
hafi skrifað Rosmary’s Baby, þó
að það bjargi nú reyndar fáu.
Engu. En þetta er dálítið spenn-
andi og skemmtilegt framanaf, já
lengst af, en í lokin dettur botn-
inn samt úr þessu og maður fer
heim ósáttur og með eins og
tímasóun á heilanum.
Samt er þetta ekki alls kostar
rétt, því það er auðvitað aldrei
tímasóun að sjá annan eins
snilldarleik og Rúrik Haraldsson
sýnir þarna. Eg er ekki að segja
„Gunnlaugur kann greinilega sitthvað fyrirsér
og á örugglega framtíð fyrirsér."
„Þórunni tekst að rækta
inn í þetta bráðfínan
samleik og náð að tíma-
setja atburðarásina þann-
ig að hún er eðlilega
spennandi næstum allan
tímann."
að það komi neitt á óvart, hann er
búinn að gleðja mann svo oft með
sínu örugga tilgerðaleysi og fág-
aða skópskyni, að maður er
löngu farinn að taka við því sem
sjálfsögðum hlut. En það er nú
sama, svona leikur er ekki hvers-
dagsfyrirbæri í leikhúsum borg-
arinnar. Því miður. Heldur ekki
frammistaða Þóru Friöriksdóttur,
sem er kannski ekki alveg á sama
plani og þó, þetta er ósvikinn leik-
ur og háréttur uppá gamla móð-
inn. Það sem gladdi mann þó
mest á þessari sýningu var að
þarna var komin ný og hæfileika-
rík leikkona, Ragnhildur Rúriks-
dóttir, sem leikur af mikilli, með-
fæddri tilfinningu og kunnáttu
sem er ekki á hverju strái. Það má
mikið vera ef þarna er ekki komið
stórt „lýriskt talent", það er að
segja ef leikhúsunum helst þá
eitthvað á henni. Gunnlaugur
Helgason, sem ég hef ekki séð áð-
ur, var kannski ekki alveg jafnaug-
Ijós í snilldinni, en hann kann
greinilega sitthvað fyrir sér og á
örugglega framtíð fyrir sér.
Leikstjórn Þórunnar er líka
býsna góð, held ég. En það verð-
ur að segjast að maður missti af
ýmsu vegna staðsetninga, sem
eru næstum ómögulegar á köfl-
um vegna annmarka leikhússins.
Hins vegar hefur Þórunni tekist
að rækta inn í þetta bráðfínan
samleik og náð að tímasetja at-
burðarásina þannig að hún er
eðlilega spennandi næstum allan
tímann.
Ef menn þurfa alltaf að vera að
þreyja eitthvað svona voðalega
mikið, þá er þetta ekki svo slæm
uppákoma að sjá. En ósköp væri
nú gaman að fá eitthvað annað á
snærið en eilífa dellu, jafnvel þó
að aðstæður séu svona slæmar í
Kaffileikhúsinu. Já og kannski ein-
mitt þess vegna. leifur þórarinsson
Brosandi
sumartilboö á
íþróttagöllum
Tvöfaldir bómullarfóðraðir íþróttagallar í sumarlitunum
á einstöku tilboðsverði.
M § 9 9 O rm nr. 4, 6, 8, 10, 12 og 14
3. £22 , - nr. XS, S, M, L, XL, XXL, XXXL
Opið laugardaga til kl. 16.00
5% staðgreiðsluafsláttur
Póstsendum
SPORTVÖRUVERSLUNIN ■
SPARTA
iLaugavegi 49 • Sími 551 2024^
Sumarjakkar á alla fjölskylduna.
Verð frá kr. 2.890,-
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
BÍLASPRAUTUN
Tegund Verð Fj.Iita Figinleikar
Varalitir 718 18 Fashion Bazaar eru fyrst.
Varablýantar 513 6 flnkks vörur á viðráðan-
Naglalökk 513 17 legu verði. Þær fást í mik
Litað dagkrem 781 4 úrvali lita og tcgunda, en
Fast Make 1.151 3 auk |)eirra sem liér er get
Kinnalitir 977 8 Fashion Dazaar eru ofnær
Laust púður 1 .-499 2 prólaðar sn^'rtivörur og
Fast púður 977 2 tilraunir frainleiðandans
Sólarpúður 2.303 3 fara ekki fram á dýrum.
Aup;nskuggar 802 H Fashion Bazaar fást
Augnblýantar 513 b 6 eingöngu í apótekum
m og með hverjum kaupum
fylgir upplýsingabæklingi
á íslcnsku.
Metró-búðirnar Hallarmúla og Skeifunni eru
opnar frá kl. 08:00 - 81:00 alla daga vikunnar.
Metró - miðstöð heimilanna.
mt
METRO
sund
Kópavogslaugin
LANG-
BESTA
SUND-
LAUGIN
★★★★
Sundlaug kópavogs er
langbesta sundlaug
landsins. Sundlaugin sjálf
er mjög góö, 50 metra
löng með góðu vatni og
öldubana. Fimm ágætir
pottar eru við laugina og
sólbaðsaðstaða mjög
góð. Þrátt fyrir stærð og
gæði laugarinnar er hún
ekki eins yfirhlaðin af fólki
og Laugardalslaugin.
Stærsti kostur laugarinnar
er þó barnaaðstaðan. Heil
sundlaug er eingöngu fyrir
börn, sérstaklega upphit-
uð og grunn með alls
kyns leiktækjum fyrir
börnin. Góð sólbaðsað-
staða og tveir pottar eru
við bakkann. Þá má ekki
gleyma hraðskreiðustu og
bestu rennibrautinni sem
er með sérlendingarker og
truflar því ekki aðra gesti.
Langstærsti gallinn við
Kópavogslaugina er bún-
ingsaðstaðan sem er allt
of lítil, skápar fáir með til-
heyrandi þrengslum og
sturturnar það fáar að
biðraðir myndast. Hins
vegar stendur til að
byggja nýja búningaað-
stöðu, auk þess líkams-
ræktarsal og saunu og
smiðshöggið verður síðan
rekið með yfirbyggingu
barnalaugarinnar. Með
nýrri búningaaðstöðu
bætist fimmta stjarnan við
þessa stórgóðu laug.
Laugardalslaugin
★★★
Stærst og mest. Fjöl-
breytnin í fyrirrúmi en
köld barnalaug og slöpp
sundaðstaða.