Helgarpósturinn - 01.06.1995, Page 28
m^Hekar j \
Postunnn
að er ekki að sök-
um að spyrja, um
leið og einhverjir
útlendingar impra á því
að þeir hafi máski snefil
af áhuga á því að dusta
rykið af gömlum hug-
myndum um byggingu ál-
vers á Keilisnesi og
stækkanir Álversins í
Straumsvík, kætast ýms-
ir starfsmenn í þjónustu
ríkisins og hefja undirbún-
mg stórfelldra fundarhalda
um málið á erlendri grund.
Þannig mun samkvæmt heim-
ildum PÓSTSINS hópur á við heilt
fótboltalið
(með varamönn-
um og öllu) sem í sitja
fulltrúar Landsvirkjunar, Seðla-
bankans og Iðnaðarráðuneytisins,
vera á leið til Sviss nú í júní, til
þess að undirbúa fund sem á að
vera þar í landi í ágúst milli út-
lendu álrisanna og fulltrúa íslands.
Að sjálfsögðu er allur kostnaður
við ferð þessa 16 manna hóps
greiddur úr vasa skattborgara.
Með þennan fjölda í huga verður
spennandi að fylgjast með því hversu margir koma til
með að sækja fundinn í ágúst. En það verður ekki skafið
af Halldori Jónatanssyni, stjórnarformanni Landsvirkj-
unar, að hann er alltaf jafn rausnarlegur, sama hvað hann
tekur sér fyrir hendur í nafni fyrirtækisins...
Stjórnarformennska í Landsvirkjun er feitur biti en
þeirri stöðu hefur Jóhannes Nordal gegnt frá upp-
hafi, eða í þrjá áratugi. Talið er fullvíst að Jóhannes
hætti en hann er nú orðinn 71 árs
gamall. Öruggt er talið að við
stjórnarformennskunni taki Valdi-
mar K. JÓNSSON, prófessor í véla-
verkfræði, sem er fyrsti valkostur
Framsóknarmanna. Landsvirkjun
er í eigu ríkisins, Reykjavíkurborg-
ar og Akureyrar en Framsóknar-
flokkurinn er í meirihluta á öllum
þessum stöðum. Þar að auki er for-
maðurinn skipaður af viðskiptaráð-
herra, Finni Ingólfssyni, fyrsta
þingmanni Framsóknarflokksins í
Reykjavík. Valdimar hefur góða þekkingu á málefnum
Landsvirkjunar með menntun sinni og starfsreynslu. Auk
þess er Valdimar lykilmaður Framsóknarmanna í Reykja-
vík, hann var fulltrúi þeirra í viðræðunum um R-listann,
formaður kosningastjórnar þess og formaður kjördæmis-
ráðs Framsóknarflokksins í Reykjavík svo eitthvað sé
nefnt. Guðmundur G. Þórarinsson hefur einnig verið orð-
aður við þessa stöðu eins og margar aðrar en afar ólík-
legt er að hann eigi nokkurn möguleika gegn Valdimar.
Eina sem getur komið í veg fyrir að Valdimar taki við
stöðunni er ef Jóhannes sækir fast eftir að halda stöð-
unni...
Greiddu atkvæði!
39,90 krónur mínútan
Síðast var spurt:
Á að banna
bömumyngriió ,
ára að vinna? I
(hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur,
sem þeir geta kosið um i síma 99 15 16.
Nú er spurt:
Finnst þér betra eða verra
að nafa símaskrána
tvískipta?
1. Betra
2. Verra
simanúmer frá 3. iúní 90-4-15-16
iðurskurðurinn á DV kemur víða nið-
ur. Blaðið hefur verið óvenju lit-
skrúðugt í vetur og hefur haft lit á
forsíðunni allt frá því að PÓSTURINN hóf
göngu sína í haust. Það hefur því vakið at-
hygli að aila þessa viku hafa þeir gefið út
blað með svart-hvítri forsíðu sem er mun
ódýrara. Helsta ástæðan fyrir því að Ellert
B. Schram og Guðmundur Magnússon voru
látnir fara var einmitt sparnaður en á DV
telja menn sig spara 8 milljónir króna á ári
með að losna við þá. í miðjum sparnaðarað-
gerðum framkvæmdastjórans Eyjólfs
SvElNSSONAR heyrist hins vegar að blaða-
mönnum fjölgi eitthvað í kjölfar manna-
breytinganna enda ætti að skapast fjármagn
fyrir 4-5 blaðamenn...
Sem kunnugt er hyggst Flugfélagið Loft-
ur setja upp rokksöngleikinn Rocky
Horror Picture Show í glænýju leik-
húsi vestur í Héðinshúsi er haustar. Síðasta
sunnudag fór fram söngprufa á áður
óþekktu hæfileikafólki. Það er skemmst frá
að segja að ríflega 250 manns komu til pruf-
unnar og þöndu raddböndin. Valið hjá þeim
félögum Baltasar Kormáki, Þorvaldi
Bjarna Þorvaldssyni, tónlistarstjóra og
Ingvari Þórðarsyni var því síður en svo
auðvelt. Þeir náðu þó að velja úr vænan
hóp, sem verður reyndur frekar og endan-
legir söngvarar valdir úr honum. Einn var
þó ráðinn á staðnum, en sá færðist lengi vel
undan því að syngja og vildi frekar sýna
þeim félögum hvað hann kynni fyrir sér í
dansi. Þeir féllust á það eftir nokkurt þóf, en
„þegar pilturinn tók sporið skildi hann
Michel Jackson, Gene Kelly, Fred Astair Og
alla þessa karla eftir í valnurn," eins og einn
flugstjóra Lofts komst að orði. Það er því
greinilega við miklu að búast á fjölunum síð-
sumars...
evu |>ín
SKÍIalKK
Heildariausn í birtingum
og framleiðslu
umhverfisauglýsinga
í iimfevð?
strætóaugtýsi ngar
Síendurtekið áreiti er tryggt með aug-
lýsingum á straetisvögnum. Frá morgni til
kvölds eru yfir 350 auglýsingar í umferö
um alla þéttbýlisbyggð landsins.
strætóskýli
Auglýsingar i rúmlega 230 strætóskýlum
i Reykjavik ná til rúmlega 7 milljón farþega
SVR (á ári) til viðbótar við akandi og
gangandi umferð. Alls eru um 500 aug-
lýsingafletir í boði um allt höfuðborgar-
svæðið.
!
vettískitti
Veltiskiltin eru staðsett við miklar
umferðaræðar og njóta því mikillar athygli
akandi umferðar. Á annað hundrað fletir
eru í boði.
Starfsfólk Eureka veitir allar nánari upplýsingar um verð og framboð.
. . . - ........-íi
BORGARTÚN 29 105 REYKJAVÍK
SÍMI 552-1666 FAX 552-1888