Helgarpósturinn - 21.09.1995, Page 30

Helgarpósturinn - 21.09.1995, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER1995 FIMMTUDAGUR Speedwell Blue rokkar víst jafnt sem blús,ar á Blúsbarnum. Sóldögg er eins og hinar sveitirnar á fimmtudögum, tregablandin; á Gauki á Stöng. INRI og Vindva Mey halda tónleika á Jazzbarnum. Þessar hljómsveitir leika, eins og nafn þeirra gefur til kynna, afar framsækna tónlist. Trípólí er eitthvað sem maður gæti ímyndað sér að væri eins og Stuðmenn. Þeir verða á Fóget- anum. Útlagarnir eru ef til vill eina fimmtudags- grúppan sem spilar eitthvað annað en trega, — annars get- ur kántrý verið tregablandið. Útlagarnir verða á Kaffi Reykjavík. Blome er tiltölulega ný gleði- og dans- sveit sem heldur útgáfutón- leika á Tveimur vinum. FÖSTUDAGUR Rúnar Júlíusson og Tryggvi Húbner eins nálægt aðdáendum sínum og hugsast getur á Blúsbarn- um. Jón Ingólfsson trúbador — var hann ekki að norðan? Á Fógetanum. Sixties-böllin á Ömmu Lú eru að verða fréttaefni, svo fjörug eru þau. Það er vonandi að enn eitt skelli á á föstudagskvöld. Lucky People Center, einhver frægasta teknósveit heims og jafnframt sú pólitísk- asta, leikur á dúndurballi fyrir 18 ára og eldri í Tunglinu. Stefán Jökulsson og Ragnar Bjarnason sjá um fjörið á Mímisbar Hót- els Sögu. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur gegn engu gjaldi á Hótel íslandi. Þeir eru enda farnir að hita upp fyrir Þorrablótin. Langbrók og var það ekki löggufælan hann Ofur-Baldur. Þeir verða á Gauki á Stöng. Blússveit Bjarna Tryggva leggur undir sig Jazzbarinn, en auk Bjarna skipa sveitina Kor- mákur Geirharðsson og Þor- leifur Guðjónsson, fyrrverandi meðlimir KK. Hafrót leikur ljúfu lögin á Kaffi Reykjavík. LAUGARDAGUR Tryggvi Húbner og Rúnar Júlíusson kyrja blúsrokk og taka nokkra góða hnykki á Blúsbarnum. Lipstick Lovers ferskir í Rósenbergkjallaran- um, enda nýkomnir úr vel- heppnaðri tónleikaferð frá Norðurlöndunum þar sem þeir slógu í gegn. Þar sannaðist enn og aftur að enginn er spá- maður í sínu föðurlandi. Úr kargaþýfinu til stjarnanna Atriðin milli Lífar og tónskáldsins eru gerð afnákvœmni og fals- lausri tilfinningu sem ég held að hafi aldrei áðursést í íslenskri kvikmynd. Samleikur Þrastar Leós Gunnarssonar og Bergþóru Ara- dóttur er einstakur og ekki síðurhvernig umhverfið — skógur, strönd, hús með köldum veggjum — ernotað til að tja dýptina í sambandi þeirra og hversu þau virðast oft ein íheiminum. TÁR ÚR STEIIUI STJÖRIUUBÍÓ **** Kvikmyndir Egill Helgason Ég, og það held ég að eigi við um miklu fleiri íslendinga, er alinn upp við þá skoðun að Jón Leifs hafi verið hálfgildings skopmynd af tónskáldi sem samdi hrikaleg verk, fuli af óvenju kjánalegum hávaða og þjóð- ernisbelgingi. Að auki hef ég heyrt frá- sagnir af því hvílíkur fauti hann hafi verið í mannlegum samskiptum, svo forskrúfaður að hann eirði engu þegar þessi mikla músík var annars vegar, hvorki vinum né óvinum. Svona hefur hún lengi verið, sagan af Jóni Leifs. Mér dylst ekki að þetta er harla fá- tækleg söguskoðun og ég sakna þess að hafa ekki neina nothæfa ævisögu Jóns Leifs til að slá upp í. Eftir að hafa séð Tár úrsteini þykist ég nokkuð viss um að Jón Leifs er annar maður en þjóðarsálin hefur álitið hann, en ég er hins vegar ekki miklu nær um hver hann var í raun og veru. En ég læt það ekki á mig fá og sé ekki að það dragi úr gildi kvikmyndarinnar. Því þótt Hilmar Oddsson sé virkur þátttakandi í þeirri endurreisn á Jóni Leifs sem hefur gengið á með undanfarin ár — og stundum hefur tekið á sig mynd trú- boðs — þrammar hann sem betur fer ekki undir neinum fána; persóna tón- skáldsins í myndinni lifir sínu lífi, al- veg burtséð frá því hversu mikinn svip hún ber af þeim Jóni Leifs sem dró lífsanda. Tónlist Jóns Leifs varð til í basli; kvikmynd Hilmars er líka orðin til í gegndarlausu basli, kannski hefur engin íslensk bíómynd átt erfiðari fæðingu. Margir voru löngu búnir að missa trú á fyrirtækinu, það var al- talað, en nú gleðst maður yfir því að Hilmar þráaðist við og hefur grun um að verkið hafi þroskast á sex ára þrautagöngu — eða stóð ekki í latínu- bókunum í menntaskóla; per ardua ad astra og útlagðist: úr kargaþýfinu til stjarnanna. Hilmar er að vissu leyti að fjalla um sama efni og í fyrri bíómynd sinni, togstreitu milli hamingju í prívatlífi og listsköpunar sem útheimtir sérgæsku, fórnir og málamiðlanir sem erfitt er að sætta sig við — og endar í harmi. Þar lýkur samanburðinum. Eins og skepn- an deyr var flausturslegt byrjendaverk og átökin þar eins og hjónaskens sem engum kemur við; hérna ber hins veg- ar allt merki um að Hilmar hefur vand- að sig ógurlega við að segja örlaga- sögu sem sannarlega gæti aldrei virst auðveld viðfangs. í upphafi myndar er áhorfandanum vísað inn í heim þar sem loga björt ljós og mið-evrópskur hákúltúrblær er yfir öllu; fljótlega smýgur rökkrið inn um allar glufur og umhverfist f slíkt svartnætti að varla sést ljóstýra nema í litla húsinu tónskáldsins úti í skógi; þar lenda hjónin í deilum um hvort eigi að vera dregið fyrir gluggana — til að halda myrkrinu úti eða Ijósinu inni? Þetta fíngerða samspil ljóss og myrkurs er eins og þráður gegnum alla myndina, það einkennir glæsilega kvikmyndatökuna en líka samband tónskáldsins við konu sína Annie og dótturina Líf. Mæðgurnar eru að vissu leyti eins og skuggi og Ijós; móðirin, gyðingakonan, er dökk, leyndardóms- full og yfir henni vofir ógn, dóttirin er björt, einlæg og full af fyrirheitum. Þegar tónskáldið fer eitt síns liðs til ís- lands virðist landið framandlegt; þar liggur yfir sífellt hálfrökkur sem undir- strikar einsemdina í landi þar sem ást- vinir eru fjarri og enginn skilur neitt. Atriðin milli Lífar og tónskáldsins eru gerð af nákvæmni og falslausri til- finningu sem ég held að hafi aldrei áð- ur sést í íslenskri kvikmynd. Samleik- ur Þrastar Leós Gunnarssonar og Berg- þóru Aradóttur er einstakur og ekki síð- ur hvernig umhverfið — skógur, strönd, hús með köldum veggjum — er notað til að tjá dýptina í sambandi þeirra og hversu þau virðast oft ein í heiminum. Þetta er líka saga um ást sem kulnar í heimi þar sem er dyggð að tala sér þvert um geð og hneigja sig fyrir valdi. í upphafi myndar eru tónskáldið og konan hans hamingjusamt fólk sem stendur í kossaflensi; í lokin á ást þeirra ekkert skjól lengur og hún fýk- ur út í veður og vind. Það dregur ögn úr áhrifamættinum að þrátt fyrir koss- ana skynjar maður aldrei að í sam- bandi þeirra sé mikil ástúð eða hita- stig sem gæti lækkað; milli þeirra Ruthar Ólafsdóttur og Þrastar Leós skortir það sem Ameríkanar kaila kemíkina, þau gera flest ágætlega hvort í sínu lagi en ná tæplega saman. Steinninn, sem er hvort tveggja steinn og tár, er tákn sem oft er vísað til í myndinni og ástæðulaust að skýra það nánar. í lokaatriðinu sekkur steinninn hægt í regindjúp, svo hægt að það er líkt og Hilmar hafi ekki alveg treyst áhorfandanum fyrir tákninu sem steinninn er. Það var óþarfa van- trú. í nýlegri bók sem útlendur gagnrýn- andi skrifaði um íslenskar kvikmyndir er margt fjölyrt um íslenskan kvik- myndastíl. Sjálfur mundi ég ekki treysta mér til að finna hann eða skil- greina — nema fjöll, hestar og skrítið fólk teljist stíll. Islenskar myndir eru margvíslegar en koma sjaldan eins fal- lega á óvart og Tár úr steini. Þetta er glæsilegt verk og á allt annan hátt en þær íslensku bíómyndir sem rísa und- ir nafni, alvörumeiri, vandaðri, stærri í sniðum. í samanburði við þann árangur sem hér hefur náðst í íslenskri kvikmynda- list finnst mér fullkomið aukaatriði að endurmeta Jón Leifs. Það mun ábyggi- lega takast í fyllingu tímans, enda er tónlistin sem hljómar í myndinni og gefur henni aukinn þunga afar til- komumikil. UTT EÐAL GINSENG Skerpir athygli - eykur þol | Virkar m.a, gegn: \ Einbeitingarskorti, sfre/fu, þreytu og afkastarýrn un. Einnig gott fyrir aldraba

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.