Helgarpósturinn - 23.05.1996, Page 20
20
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ1996
afangastaðir
L® San Miguei de Allende
Listaparadís
Vesturheims
Um hundraö kílómetra suö-
austur af Mexíkóborg er hinn
frægi feröamannastaður San
Miguel de Allende. Þessi litli og
glaölegi bær í Mexíkó hefur lengi
veriö frægur fyrir dýrindis listsköp-
un. Bærinn, og í raun allt svæöiö í
kringum Bajío, er geysivinsæll
feröamannastaöur meöal Banda-
ríkjamanna, en Evrópubúar sækja
nú þangaö í auknum mæli. Lands-
lagiö einkennist af víöáttumiklum
sléttunum og frelsistilfinningin fyll-
ir hugann kæruleysi. Hinsvegar
eru líflegar götur þorpsins einstak-
lega mjóar og bjóða upp á taum-
lausa gleöi, meö heillandi börum,
kaffihúsum og nokkrum af bestu
handverksverkstæöum og búöum
Mexikó. Þar má finna ótrúlega tré-
útskorninga, mikiö af antíkhús-
gögnum, helling af glæsilegum
málverkum heimamanna I þess-
um rómaöa listabæ og fjölmargar
stórkostlegar höggmyndir. Þessir
ótrúlegu handverksmunir heima-
manna hafa dregiö margan
Bandaríkjamanninn til þessa af-
skekkta staöar og eyöa þeir marg-
ir ótæpilegum peningum í lista-
verkakaup, enda eru þessir munir
mikil tískuvara í Bandaríkjunum.
Síöan á ofanveröum fjóröa ára-
tugnum hefur San Miguel de
Allende veriö eins konar listaný-
lenda. Hróöur staöarins og aö-
dráttarafl á listamenn allra landa
má aö miklum hluta þakka Stir-
ling Dickinson, bandarískum
listamanni sem kom til Sam Migu-
el sem ferðamaður og festi dá-
semdir staöarins é striga. Hann
stofnaöi svo hina virtu stofnun /s-
tiluto Allende, sem áratugum
saman hefur laöað aö sér unga
bandaríska listamenn sem nema
vilja list, menningu og tungu
heimamanna. Glæsilegar kirkjur
San Miguel hafa einnig mikiö aö-
dráttarafl en þær þykja óvenju-
glæsilegar fyrir þennan heims-
hluta, enda voru þær byggðar á
mesta uppgangstíma svæöisins,
þegar námurnar möluöu gull. Ný-
gotneska kirkjan La Parroquia
gnæfir yfir miöbæinn, byggð úr lit-
skrúöugum bleikleitum steinum. í
frelsisstríöinu 1810 var maður aö
nafni Ignacio Allende aöalhetja
bæjarbúa og eru bærinn og aöal-
torg staöarins skírð í höfuöið á
honum. Hinu gamla heiöurs-
mannasetri Ignacios Allende hefur
nú veriö breytt í safn, þar sem
sögulegar minjar og helstu lista-
verk bæjarbúa eru vel varin en
jafnframt öllum til sýnis. Aö lokum
skal nefnt aö feröalangar ættu
ekki aö sleppa gönguferö upp
einu hlíö svæöisins, þar sem gef-
ur aö líta listilega lagaö lauga-
svæöi frá náttúrunnar hendi.
Þessi friösæla náttúruperla öölast
síöan líf þegar konur bæjarins
hópast þangaö meö þvottlnn og
skrúbba upp úr tærum lækjum.
Kunnugir segja aö þar sé rætt um
allt sem gerist í bænum og ef
maöur skilur örlítiö í spænsku má
fræöast um hvaðeina án þess aö
bera sig eftir því.
-EBE
„Götuleikhúsiö"
hefur starfaö
þrettán sumur á
vegum Reykja-
víkurborgar
og ÍTR. Leikhús-
iö hefur allan
tímann verið í
stöðugri þróun
og aðstandend-
ur skipuleggja
stórvirki fyrir
þetta sumariö:
nokkrar stórar sýningar — til dæmis á Jónsmessu og 17. júní — og ótalmargar
smærri. Leikstjóri Götuleikhússins er Guðjón Sigvaldason ogí samtali við
Pétur /Waacktjáir hann sig um líflegt starf sitt og krakkanna í leikhúsinu;
þau girtu niður um sig tyrir framan stjórnarráðið í fyrra...
„Ætlum ekki að
hneyksla fólk markvisst“
Ahverju sumri síðan árið
1983 hefur starfað á veg-
um Reykjavíkurborgar og
íþrótta- og tómstundaráðs
leikhópur ungs fólks sem kall-
ar sig „Götuleikhúsið". Fyrsta
árið var starfið einkum bund-
ið við 17. júní-hátíðahöldin og
svo uppfærslu hópsins á
meistarastykki Stanleys Ku-
bric A Clockwork Orange.
Strax næsta sumar varð sú
áherslubreyting að uppákom-
unum fjölgaði og þær voru
færðar út á götu til vegfarenda
og þannig má segja að hið eig-
inlega Götuleikhús hafi orðið
til. Frá þessum tíma hefur
starfsemin verið í stöðugri
þróun og núorðið á Götuleik-
húsið sinn fasta aðdáendahóp
sem ekki missir af neinu sem
leikhópurinn gerir. Síðastliðið
sumar voru þannig uppákom-
ur í miðbæ Reykjavíkur á
hverju föstudagseftirmiðdegi,
auk stóru sýningarinnar á 17.
júní, sem komin er nokkur
hefð á. Til að forvitnast um
starfið á komandi sumri tók
blaðamaður HP hús á umsjón-
armanni Götuleikhússins,
Guðjóni Sigvaldasyni leik-
stjóra, og við spjölluðum sam-
an yfir kaffibolla í Listasmiðju
Hins hússins. Það er alveg víst
að það verður engin logn-
molla í kringum Götuleikhúsið
þetta sumarið frekar en
endranær.
Kannski þú segir mér
Fyrst Guðjón hvaða fólk
þetta er sem œtlar að
sprella með þér í sumar og
hvernig fólk velst til starfa
með Götuleikhúsinu?
„Þessi hópur sem stendur
að Götuleikhúsinu saman-
stendur aðallega af skólafólki
á aldrinum 17 til 25 ára, en
einnig kemur þarna inn fólk úr
atvinnuleysisátaki Hins húss-
ins. Af hópnum sem verður
með mér í sumar þá voru
svona 30 til 40 prósent líka
með í fyrra en aðrir koma inn
nýir. Öll hafa þessir krakkar
einhverja reynslu af leikhúsi
og flest hafa þau starfað með
leikklúbbum framhaldsskól-
anna. Þessi reynsla er alveg
nauðsynleg, enda getur þetta
form leikhúss verið mjög
krefjandi, til dæmis getur fólk
lent í því að gera einhverja
hluti fyrir framan ömmu sína
úti á götu sem það væri
kannski ekki til í að gera í te-
boði heima hjá sér! Sumar
sýningar okkar krefjast þess
að viðkomandi geti útilokað
sig algerlega frá áhorfendum,
til dæmis man ég eftir atviki
þar sem leikari neyddist til að
móðga vin sinn alveg herfilega
þar sem hann mátti ekki kann-
ast við að þekkja hann. Sem
betur fer tókust nú sættir að
lokum þó að það hafi samt
tekið drykklanga stund.“
Hvað er svo á dagskrú
sumarsins, hverju mú fólk
búast við af Götuleikhús-
inu?
„Nú, við ætlum að vera með
götusýningar á hverjum föstu-
degi í sumar einhvers staðar í
miðbænum. Þar fyrir utan er-
um við með götusýninguna á
17. júní, sem er orðin nokkuð
hefðbundin, en í ár er hug-
myndin að reyna að brjóta
það svolítið upp. Við ætlum
líka að vera með stóra sýn-
ingu á Jónsmessunni, auk
þess sem meiningin er að
setja upp enn eina stóra sýn-
ingu í lok sumarstarfsins. Fyr-
ir utan þetta allt ætlum við að
setja svolítið krydd í bæjarlíf-
ið aðra daga líka. Til dæmis
vorum við með númer í sund-
laugunum í fyrrasumar og ætl-
unin er að halda því áfram í
einhverju formi í ár.“
Bíddu við, fer starfsemin
þá eftir því hvernig skapi
þið verðið í þegar þið meetið
í vinnuna á morgnana?
„Ja, eftir skapi og veðri...
Neinei, þessar sýningar eru
allar mjög vel undirbúnar og á
bak við hverja slíka liggur mik-
il vinna hjá krökkunum. Áður
en þau koma inn í starfsemina
í byrjun júní verður búið að
skipuleggja allar uppákomur
sumarsins, þó svo að þetta
muni auðvitað allt breytast
eitthvað þegar farið verður að
vinna með það. Aftur á móti
brjótum við starfið svolítið
upp með því að skreppa út á
götu aðra daga líka og komum
þannig í veg fyrir að starfið
verði einhæft. Auðvitað verð-
ur líka alltaf að taka tillit til
veðursins, en fólk má semsagt
gera ráð fyrir að sjá okkur líka
aðra daga vikunnar og jafnvel
um helgar."
Nú hafa sumar uppákom-
ur Götuleikhússins gegnum
tíðina vakið umtal og jafn-
vel hneykslun fólks. Til
dœmis stuðaði það marga
að sjú hóp affólki girða nið-
ur um sig fyrir framan
stjórnarrúðið í fyrrasumar.
Á að hneyksla fólk í sumar?
„Sumt af því sem við höfum
gert hefur svo sem verið um-
deilt, einhverjum finnst
kannski einhver ákveðin sýn-
ing hafa verið alveg hræðileg
þó að öðrum hafi fundist hún
vera rosalega góð. Ein sýning-
in okkar í fyrra gekk út á
spurningar um tilveruna og
hvað má og hvað ekki. Það var
greinilegt að margir þoldu
ekki að sjá hóp af fólki standa
á brókinni fyrir framan stjórn-
arráðið. Lögreglan leit þó
bara í hina áttina meðan þetta
fór fram. Ég held að þessar
sýningar séu mjög skemmti-
legar ef fólk leggur sig eftir því
að fylgjast með þeim og því
sem verið er að segja hverju
sinni, enda eigum við aðdá-
endur sem reyna að sjá allar
okkar sýningar sér til
ánægju... og jafnvel aðra sem
koma til þess að hneykslast —
það verður bara að hafa það.
Við ætlum ekki að standa í því
að hneyksla fólk markvisst, ég
vil heldur að fólk geti komið
heim til sín og sagt frá því
hvað sýningin sem það sá
niðri í bæ þann daginn hafi
verið skemmtileg.“
Nú býður þetta form, að
koma með sýninguna út á
götu, upp á marga skemmti-
lega möguleika, œtlið þið
kannski að reyna að virkja
hinn almenna vegfaranda
til að leika fyrir fólk?
„Það eru til nokkur form af
götuleikhúsi, eitt þeirra er
svokallað ósýnilegt leikhús,
þá veit fólk ekki að það sem
það sér er leikhús. Flestar
okkar uppákomur hafa verið
sýnilegar, þannig að fólk skil-
ur strax hvað er á ferðinni.
Stundum reyna leikararnir
líka að draga áhorfendur inn í
leikhúsið jafnvel án þess að .
viðkomandi átti sig á því að
hann sé að leika, það form vil
ég kalla samskiptaleikhús. Ein
uppákoma í fyrrasumar gekk
út á það að nokkrir krakkar
tóku sér stöðu á Laugavegin-
um og störðu upp í loftið. Veg-
farendur þurftu náttúrulega
að stoppa líka og athuga á
hvað þau voru að horfa. Síðan
létu krakkarnir sig hverfa eitt
og eitt þar til að eftir stóð hóp-
ur vegfarenda sem góndu upp
í loftið án þess að vita á hvað
þeir voru að horfa! Það er allt-
af mjög gaman þegar áhorf-
endur taka þátt í sýningunni.
Til dæmis gerðum við sýningu
í fyrra þar sem við vorum að
þvælast fyrir áhorfendum og
föstudagsumferðinni, við vor-
um með ferðatöskur og svo-
leiðis dót sem við settum frá
okkur út á götu og stoppuðum
bíla. Á einum stað kom að
maður sem var aðeins búinn
að fá sér neðan í því og sótti
töskuna og setti hana upp á
gangstéttina. Við settum hana
aftur út á götu en þessi vinur
okkkar sótti hana jafnharðan
aftur og vildi þannig liðka fyrir
umferðinni. Ég efast um að
hann hafi gert sér grein fyrir
því að hann væri orðinn hluti
af leiksýningu en áhorfendur
skemmtu sér að minnsta kosti
konunglega."
Er hœgt að fú einhvern
forsmekk að því á hverju
vegfarendur mega eiga von
frá Götuleikhúsinu í sum-
ar?
„Nei, ekki annað en það sem
ég er búinn að segja þér. Ann-
ars verður fólk bara að bíða
og sjá, en starfsemin fer strax
í fullan gang um leið og krakk-
arnir koma inn í byrjun júní og
stefnan er að halda fyrstu sýn-
inguna fyrsta föstudaginn í
júní.“
HUGSKOT
Ljósmyndastofa
Nethyl 2 Si'mi 587-8044
NÝ ÞJÓNUSTA
Framköllun og kópering á
35mm litfílmum.
Kynningarverð:
24 mynda kr. 1000
36 mynda kr. 1360
Ný 24 mynda Fuji-
litfilma innifalin
NÝ STJÖRNUSPÁ
Á HVERJUM DEGI
hvað ber dagurinn
í skauti sér?
S P Á S í M I N N
904 1414
39.90 mínútan
Brandaralínan
hvernig hljómar þú á brandaralínunni?
þú getur bæöi hlegið að gríni annarra
og lesiðinn þitt eigiðgrín!
segið gamansögur
904 1030
39.90 mínútan