Helgarpósturinn - 20.03.1997, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 20.03.1997, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 20. MARS1997 15 Jón Ólafsson: „Það skemmtilegasta sem ég geri er að semja tónlist. Ein- hvern daginn kemur út sóló- diskur og í raun hef ég enga afsökun fyrir að gera það ekki nema kannski að ég gef mér ekki tíma í það.“ ast. Ég er það heppinn að enn er nóg að gera hjá mér í tónlist- inni og ég ætla ekki að kvarta undan aðgerðarleysi." Það er þó einhver söngleik- ur framundan hjá þér... „Ef þú ert að spá í Evítu þá kem ég ekki nálægt þeirri frá- bæru tónlist. Ég held að Þor- valdur B. Þorvaldsson úr Todmobile komi til með að sjá um tónlistina þar. Við KK erum hins vegar að byrja að semja tónlist fyrir leikrit með söngv- um eftir Benóný Ægisson. Ég hlakka til að starfa með Krist- jáni, sem að mínu viti er einn af okkar albestu músíköntum; heill og sannur og frábær söngvari. Leikstjórinn er Þór- arinn Eyfjörð, einn sá kröftug- asti af yngri kynslóðinni, svo þetta er spennandi dæmi. Verkið verður sett upp í Borg- arleikhúsinu. Nú og svo erum við félagarnir í Nýdanskri að taka saman efni á safndisk. Við ætlum meira að segja að hitt- ast núna um páskana og at- huga hvort við getum ekki hrist fram úr erminni einhver ný lög sem gætu fylgt með þessum safndiski. Þetta er í stuttu máli það sem ég er að gera þessa dagana.“ Eitthvað annað í bígerð? „Ég er að skoða ýmis verk- efni önnur sem ég get ekki sagt frá því ég veit ekki hvort verð- ur af þeim. Ég veit ekki hvort Emilíana vill gera disk fyrir næstu jól. Við erum enn bæði nokkuð lúin eftir jólavertíðina og ekkert farin að spá alvar- lega í framhaldið. Það kemur bara í ljós þegar líður á árið.“ Glúrinn á réttu verk- efnin Þú ert einn af örfáum tón- listarmönnum hér á landi sem geta lifað á tónlistinni. Af hverju heldurðu að þú sért í þeim hópi? „Ég get ekki svarað því svo auðveldlega. Ég spyr mig hins vegar oft þessarar spurningar. Mér dettur tvennt í hug, ann- ars vegar að fólk sé bara svona ófrumlegt þegar það er að velta fyrir sér hjálparkokkum úr tónlistargeiranum, því það er fullt af frábærum tónlistar- mönnum hér á landi sem ættu skilið að hafa nóg að gera. Hins vegar hefur það yfirleitt gengið nokkuð vel sem ég hef tekið mér fyrir hendur og þá verður maður ef til vill nokkuð áber- andi fyrir vikið. Svo er bara um að gera að nýta tækifærin sem maður fær og leggja sig allan fram. Kannski hef ég vérið nokkuð glúrinn að velja góð verkefni. Ég veit ekki. Vinna mín gengur mjög út á góðan móral og lífsgleði. Ég reyni að virkja fólk í stað þess að reka nefið upp í loft og skipa fyrir. En það er annarra að dæma um hvort ég sé góður tónlistar- maður. Vonandi hefur maður eitthvað til brunns að bera. Það skiptir líka máli að vera með gott samstarfsfólk í þessu eins og öðru. Ég tel mig hafa unnið með frábæru fólki und- anfarin ár, sem hefur hjálpað Venus as a bov Björk Guðmundsdáttir !f#! Tíu frábær íslensk lög að mati Jóns Ólafssonar: bendir til annars. Enn hefur ekki slegið í brýnu milli okkar. Hún er reyndar alltaf að bíða eftir því að sjá mig reiðast." Einn daginn kemur sólódiskur Aðspurður hvort Jón ætli ekki að snúa sér meira að eigin tónsmíðum og sólóferli segir hann: „Það skemmtilegasta sem ég geri er að semja tónlist. Einhvern daginn kemur út sólódiskur og í raun hef ég enga afsökun fyrir að gera það ekki, nema kannski að ég gef mér ekki tíma í það. Það skal tekið fram að mér finnst mjög gaman að syngja og myndi trú- lega vera sjálfur leiðandi í þeim efnum ef ég gerði sól- ódisk. Rödd mín er afar heimil- isleg, styggir engan en veldur sjaldan geðshræringu, rétt eins og húsgögnin í IKEA. IK- íana - og ég erum samverkamenn í tónlistinni og mjög góðir vinir þrátt fyrir töluverðan aldurs- mun. Mér finnst það í raun mín mesta upphefð síðustu árin að hún skyldi óska eftir samstarfi við mig þegar hún hóf sólóferil sinn“. EA-rödd, það er mín rödd. Mér finnst hins vegar hugmyndir mínar alveg njóta sín í sam- starfinu við Emilíönu.“ Emilíana Torrini er talin bjartasta von íslendinga til að ná frama erlendis. Hafið þið velt því fyrir ykkur að fœra út kvíarnar, út í hinn stóra heim? „Ég er samþykkur því að Em- ilíana hefur alla burði til að geta náð langt erlendis. Hún hefur þegar hafnað einum samningi og.þau eru orðin ófá símtölin utan úr heimi frá fólki sem hefur áhuga á að gera hana heimsfræga. Hins vegar má geta þess að Emilíana er klár stelpa sem párar ekki nafn sitt undir hvað sem er. Hún tekur mjög skynsamlega á þessum málum að mínu mati og er ekkert að flýta sér. Ég reyni að vera henni til halds og trausts í þessum mál- um. Það hafa komið fyrirspurnir frá Kan- ada, Noregi, Þýska- landi, Ítalíu og Banda- ríkjunum og við höf- um sent geisladiska til þessara landa. En það er eitt að skrifa undir samning og annað að skrifa undir almennilegan samn- ing. Þú yfirgefur ekki ísland fyrir einhvern kúkasamning úti í heimi. Það er hins vegar ljóst að árang- ur Bjarkar Guð- mundsdóttur hjálpar íslenskum tónlistar- mönnum í dag að vekja á sér athygli í útlöndum." Lifirðu ágœtislífi á tónlistinni? „Ég hef það fínt. Við erum á svipuðu róli ég og nafni minn í Skífunni. Hann var reyndar aðeins á und- an mér að kaupa Stöð 3. Ég er hins vegar að íhuga tilboð í Morgun- blaðið þessa dagana. Mér skilst að það sé góð fjárfesting." Þig langar ekki aftur í útvarpið? „Ég er ekkert að - deyja úr spenningi. Þótt ótrúlegt megi virðast þá er alltaf af og til verið að bjóða mér vinnu á einhverri stöðinni. Furðulegt hvað fólk man eftir þessu útvarpsrugli í manni. Ég hef bara ekki neina þörf í dag fyrir að fara að bulla í útvarp aftur, sorrí,“ segir Jón Ólafsson tónlistarmaður að lokum. mér að ná ár- angri. Ég er mjög ánægður með hvernig þetta hefur þró- ast hjá mér. Ég hafði aldrei trú- að því að ég gæti lifað á því að vera tónlist- armaður, — hvað þá án þess að spila á böll- um.“ Hvernig er sambandi ykk- ar Emilíönu háttað? „Við erum samverkamenn í tónlistinni og mjög góðir vinir þrátt fyrir töluverðan aldursmun. Einnig held ég að gagnkvæm virðing, tónlistarlega séð, ríki milli okk- ar. Mér finnst það í raun mín mesta upphefð síðustu árin að hún skyldi óska eftir samstarfi við mig þegar hún hóf sólóferil sinn árið 1995. Ég hef aldrei hitt jafn hæfileikaríkan tónlist- armann svona ungan. Það vita það auðvitað flestir hve góð söngkona Emilíana er, en hún er miklu meira en það, hún er mjög hæfileika- rík og skap- andi. Eg held að hún hafi sýnt það og sannað á Mer- man á hún á bjarta framtíð fyrir sér sem tónlistarmað- ur. Það var eins og sumir gagnrýnendur héldu að ég hefði meira eða minna ráð- ið ríkjum á geisladiskinum en þetta var al- veg 50/50. Það er mjög gaman að vinna með Emilíönu. Hún er hugrökk og lætur gömul gildi lönd og leið þegar tónlistin er annars vegar; hún hefur engu að tapa. Sendiferðabílar komu ósjaldan með hljóðfæri héðan og þaðan í upptökur á Merman út af hugmyndaflugi Emilíönu. Ég held að við höfum lært sitt- hvað hvort af öðru.“ Ætlið þið að vinna áfram saman? „Ég á frekar von á því. Það er að minnsta kosti ekkert sem Glugginn Rúnar Gtmnarsson Herbergið mitt Brimkió Don't tr> to fool me Jóhann G. Jðhannsson Am I reatly tivin' Tnihrol Sameigintegt Todmobiie Bláu augun þin Hljómar í skóm af Wennerbaunt Spilverk þjóðanna llmboðsnienn drottíns Dimmar rósir Tatamr SNÆtAND

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.