Alþýðublaðið - 24.12.1970, Page 26

Alþýðublaðið - 24.12.1970, Page 26
aukastörfum og þau orðið mér til gæfu. Þá er fyrst að n'efna. ritstörf- in. Barnablaðið „Vorið“ hef ég gefið út með Hannesi J. Magnús syni í rúm þrjátíu ár. Nú hvílir það eingöngu á mér og nýt ég þar hjálpar konu minnar, Jón- ínu Steinþórsdóttur. Sennilega er það mín mesta gæfa. hve (hún hefur stutt mig vel í áluuga- málum mínum t. d. bindindis- málunum. Þá hef ég skrifað allmai'gar barnábækur, auk þess nokkrar bækur fræðilegs efnis. Það er ekki mitt að dæma um .hvernig þetta hefur tekizt. En það heifur vieitt mér ánægju. Auk þess hef ég þýtt mikið af barnabókum. Síðan ég ihætti í skólanum hef ég getað lagt meiri vinnu í barnabækurnar og mér finnst sjálfum, að síðustu tvrær bækur mínar séu betri-en hinar „Strák ar í Straumey" komu út í fvrra, og fraimhald af 'henni „Frissi á flótta" kemur út í ár. Æsfcudeildum G.' Beglunnar (ungmennast. og barnast.) hef ég veitt forstöðu í 20—30 ár. Oft ihefur það verið tímafrekt starf. Og erfitt er að dæma um árangurinn. Þegar fræi er sáð, er aldrei öruggt hvort ný planta kemur upp af því eða ekki. En mér hefur alltaf þótt gaman að starfa með börnum og ungling- um. Þá má nefna hér annan fé- lagsmálaþátt. Ég hef verið for- maður Barnaverndarfélags Ak- ureyrar í 15 ár. Um það starf fjölyrði ég ekki, en það félag rekur nú leikskólann „IðaveUi". Þegar ég lít nú til.baka yfir þessi félagsstörf mín, þá tek ég eftir því, að flest eru þau tengd við börnin, og iþví nátengd ævi- starfiníu: Barnablað, barna- bækur, ’barnastúkur og Barna- verndarfélag. Þetta er ekki til- viljun. Þessi störf héf ég valið til að fást við í tómstundum mínum af innri hv'öt. Við þurf- um ekki að vera svro hátíðleg að kalla það hugsjónir. — En eitthvað liefur þú einn- ig skrifað um austfirzk fræði? — Já, ég hef ritað nokkra sagnaþætti um það efni. Og nú er að koma út mín fyrsta bók á því sviði. Það eru um 20 ár síðan ég byrjaði á henni. Bókin er frá bernskuslóðum mínum fyrir austan og nefnist: „Undir Búlandstindi“. — En hvað lieíur þú að segja um austfirzku kvikmyndina? —■ Ég hef starfað talsvert í Austfirðingafélaginu á Akur- evri og verið þar stundum foi-- maður. Fyrir 10 árum hóf fé- lagið kvikrnyndagerð á Austur- landi. Myndin er nú fullgerð og nær vfir Múlasýslur. Fram- kvæmd þessa verks hefur að all miklu leyti hvílt á mér. Myndin er hugsuð sem heimildarmynd frá þessum árum t. d. er aust- firzka síldveiðin geymd í mynd- inni. Þann 4. júlí s. 1. afhentum við Akureyringar sýslu- og bæj- arfélögunum á Austurlandi. mynd þessa að gjöf í Valaskjálf. — Þú minntist á, að þú iií|?ðir eitthv'að starfað fyrir bindindis- málið eftir að þú hættir s':5!a- störfum, Viltu ségja mér oí;u'-.‘ Iítið unt viðhorf þitt til bindind- ismátsins? — Öflugasta bindindisfélag hér hefur verið G. Reglan. Nú er daufara v.fir starfsemi henn- ar én áður. Stúkurnar eru marg- ar fámennar og slarfslitlar. Marg ar barnastúkur eru hins vegar mjög vrel starfandi, og sums stað at- eru þær eiria félagið, sem heldur uppi merki bindindis- málsins á sínum stað. Auk bind- indisboðunar stórstúkunnar er' starfsemi óféngisvarnaráðs gild- ur þáttur í fræðslu um áfengi og tóbak. ' Ýmislegt lorveldar árangur af bindindisstarfi nú á dögum. Meðal annars meirj fjárráð fóllcs og tilhneiging til aukinnar. nautnasýki.. Manneskjan héfur ríkar .tilhneigingar til nautna, hvað sem skynsemin segir. Mér v.irtist skólafólkið hlusta vel á skaðsemi tóbaksreykinga, ef máJflutningur var raunsær og sannur. Þó megnar 'ekki nema litill hluti þess að rísa gegn venjunum sem ríkja um tóbaks- reykingar. ískyggilegl er hvre margt ungt fólk hefur V'anið sig á áfengis- nautn, einkum í sambandi við skemmtanir. Ég held að áfengis vandamálið sé stærsta ivandamál þjóðarinnar. Það sundrar fjöl- skyldum og leggur he.imili í auðn. Það veldur fleiri slysum og meiri ógæfu ien nokkuð ann- að. Maðurinn ’er félagsvera. Með- an almenningsálitið er með á- fengisnautninni, þá er erfitt að vinna gegn henni. Bindindissam tökin verða því að vinna almenn ingsálilið á sitt mál. iSennilega yrðú fjölmiðlunartæki áhrifá- mest í því !efni. Kivikmyndin er síerk auglýsing Ef okkur er alvara með að draga úr skað- semi áfengisins, verðum við að taka fjölmiðlunartækin í þjón- ustu bindindismálsins í miklu ríkari mæli en nú ler. Og þar sem bæði útvarp og sjónvarp er ríkiseign ætti þetta að vera hægt, ef vilji er fyrir hendi. Þá ætti að banna hinar fiannastóru tóbaksauglýsingar, sem blöðin flyíja frá eriendum tóbalcsfram- leiðendum um ágæti reykinga. — Þii minntist á samband viff Eiffadvöl þína á nýtt lífsviffhorf. Hvað getur þú sagt mér um það? — A Eiðum kynntist ég bæði spíritisma og guðspeki. Hvor- tveggja var nýtt fyrir mér. Þar fékk ég svör við ýmsu, sem ég hafði brotið heilann um. Þar las ég nokkrar af bókum Sig- urðar Kr. Pétu.rssonar. Síðan hef ég affhylilzt þessar skoðanir. Bækur -hans allar fékk ég send- ar nokkru síðar. Ekki hefur þetta dregið úr aðdáun minni á Kristi, en aukið skilning og víkk að sjóndeildaiihringinn. Ég' var trúhneigður að eðlisfani, en guð spekin beindi trúrækni minni inn á vitræn svið. Mér finnst það hafi orðið mér til gagns og gæfu. Ég hef .starfað dálitið í sam^ tökum guðspekisinna í nær þrjá-i tíu ár og vegna þessa áhugamála' minna ritaði ég „Skyggnu kon.-- una“ I. og II. um Margréti frá' Öxnafclli og merkilega reynslu hennar. Ég hef alltaf verið bjartsýnn og mér er lika tamt að líta á! eilífðarmálin í því ljósi. Ég trúí fastlega á framhald þessa lífgj og virðist sálarrannsóknirnati hafi fært sterkar líkur fyrir þvl.’ Á hdnu mun sennilega verðá bið, að færðar verði á það fullj komnar sannanir. Ég held við verðum að treyst# almættinu fyrir framlífinu. En' sjálfur trúi ég einnig á fortilveruí mannsins. Ég er sammála Pálí postula að kærleikurinn sé mesj 'ur í heimi og okicur sé óhætt a S treysta honum fyrir framtíð-; inni. Við ættum ekki að deilaí um trúmál, en trúa því, sení okkur fellur bezt. — Hvaff þykir þér vænzt um? — Fólk, fagurt landslag, gó5~ ar bækur og söng vorfuglanna. KAUPFÉLAG A USTUR-SKAFTFELLINGA HÖFN, HORNAFIRÐI óskar viðskiptavinum sínum svo og öllum landsmönnum GLEÐILEGRA JÓLA og farsældar á komandi ári. Kaupfélagið Höfn Selfossi - Búrfelli - Eyrarbakka - Stokkseyri óskar viðskiptamönnum sínum, svo og landsmönnum öllum GLEÐILEGRA JÓLA og farsældar á komandi ári. 1 (aupfélag Tálknaf. rálknafiröí sendir öllum beztu óskir un GLEÐILEG JÓL ! og farsælt komandi ár. Með þökk fyrir viðskiptin á jaröar i líðandi ári MIÐNES HF. SANDGERÐI ÚTGERÐ — VERZLUN Gleðileg jól! \ farsælt komandi ár1 þakkar viðskiptin á liðnum áriun- 26

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.