Alþýðublaðið - 03.06.1972, Page 1
Alþýðublaðið óskar sjomönn-
um ánægjulegs sjómanna-
idags og 50 mílna árs
VERJANDI ANGELU:
HÚN KEYPTI VOPN
SÉR TIL VARNAR
Verjandi Angelu Davis, Leo
Branton, var mjög hræröur þegar
hann sagði i varnarræðu sinni við
réttarhöldin i gær, að yrði hún
fundin sek um morð, mannrán og
samsæri, yrði aö ganga út frá þvi
sem visu, aö hún sé meira en litið
heimsk.
Kviðdómurinn, sem i er ein-
göngu hvitt fólk, og áheyrendur,
sem troðfylltu salinn, fylgdust
með varnarræðunni af athygli, og
það var dauðakyrrð allan timann
sem Branton talaði.
Branton rakti hörmungarsögu
svertingja i Bandarikjunum i 300
ár til þess að útskýra hversvegna
Angela flúði frá Kaliforniu eftir
aö til átakanna kom i réttarsaln-
Framhald á bls. 18
Sviðsmenn í sviðsljósinu
SETJA HIR
STRIKILISTA
HATIDINA?
Vegna launadeilu sviðsmanna i
Þjóðleikhúsinu og fjármálaráðu-
neytisins getursvo farið, að nauð-
synlegt reynist að fella niður sýn-
ingar á einhverjum þeim verk-
um, sem á að sýna í Þjóðleikhús-
inu vegna Listahátiðarinnar.
Sviðsmennirnir vilja fá hækkuð
laun sin um tvo flokka. Almennir
sviðsmenn úr 11. launaflokki i 13.
og flokksstjórar úr 13. flokki i
þann fimmtánda.
Ef ekki hefur samizt fyrir
mánudag hyggjast sviðsmenn-
irnir einungis vinna lögboðinn
vinnutima, sem er hvergi nærri
nóg undir venjulegum kringum-
stæðum og hvað þá, þegar niu
sýningar eru fyrirhugaðar á rétt
rúmri viku.
1 siðasta mánuði vann hver
sviðsmaður á fjórða hundrað
klukkustundir, sem er u.þ.b. 150
klukkustundum meira en lögboð-
inn vinnutimi.
1 mánuðinum var ekkert meira
áð gera en venjulega hjá sviðs-
mönnunum, þannig, að auðvelt er
að gera sér i hugarlund hvaða
áhrif þessar mótmælaaðgerðir
kynnu að hafa i för með sér.
Við höfðum samband við Þor-
kel Sigurbjörnsson, fram-
kvæmdastjóra Listahátiðarinnar
Framhald á bls. 12
Hryðjuverkin á flugvellin-
um við Tel-Aviv eru fordæmd
af sifellt fleiri ráðamönnum
um heim allan. Páll páfi sagði
i gær, að atburðurinn væri
ógeðslegt glæpaverk en Huss-
cin Jórdaniukonungur, hefur
sem kunnugt er fordæmt
hryðjuverkin og þá menn, sem
þau unnu.
Viðsegjumfrá hreyfingunni,
sem illvirkjarnir tilheyra...
Á 3. SÍÐU
Þær eiga væntanlega fri I dag, en á virkum dögum skjóta þær upp kollinum innan um blómkoll-
ana hér I miðbænum. Æskan er óðum að tinast út i sólskinið frá prófborðunum, en þessar munu
vera með fyrstu „bæjarköllunum”, sem eiga aö prýða almenningsgarða okkar Reykvikinga i
sumar.
Sjómönnum er ætlað að búa við
óbreytt fiskverð á bolfiski og flat-
fiski fram til septemberloka,
þrátt fyrir þá staðreynd að þeir
hafa orðið fyrir tekjurýrnun
vegna minnkandi afla, á sama
tima og laun verkafólks hefur
hækkað um 12—13%.
Þetta segir i áliti fulltrúa fisk-
seljenda i yfirnefnd verðlagsráðs
sjávarútvegsins, sem ennfremur
láta þá skoðun i ljós að þetta verði
til þess að útgerð lamist verulega
það sem cftir er ársins.
Meirihluti yfirnefndarinnar,
þ.e. fulltrúar fiskkaupenda og
oddamaður, samþykktu óbreytt
fiskverð á fundi sinum i gær en
feildu tillögu minnihlutans, full-
trúa fiskseljenda, um 10% hækk-
un á fiskverði 1. júni.
í greinargerð, sem fulltrúar
fiskseljenda, þeir Kristján
Ragnarsson og Ingólfur Ingólfs-
son, lögðu frain með atkvæöi
sinu, segir m.a. að ákvörðun þessi
muni valda miklum erfiðleikum
fyrir alla útgerö i landinu, og
miðað viö aflabrögö undanfar-
inna ára sé augljóst að útgerð
vcrði rekin meö verulegum halla
á sumar- og haustvertiö, og jafn-
vel megi gera ráð fyrir algjörrs
stöðvun fiskveiða i haust.
Þorskveiðar muni þvi litiö
verða stundaðar siðari hluta
þessa árs, og muni það valda
margvislegum erfiðleikum i hin-
um ýmsu sjávarþorpum og hjá
Framhald á bls. 12
VASKAR FRUR
í KÓPAVOGI^