Alþýðublaðið - 03.06.1972, Blaðsíða 2
NÓI
GAMLI
/ /
STABA-
KIRKJU
Rut Magnússon syngur aðal-
hlutverkið og Garðar Cortes
stjórnar hljómsveitinni þegar
flóðið hans Nóa fellur yfir
Bústaðakirkju á mánudaginn
kemur. Flóðið hans Nóa er
raunar I þessu tilviki barna-
ópera Benjatnfns Brittens, og
það þarf varla að taka það
fram, að hún er nú færð hér upp
af tilefni listahátfðar. Sýningar
verða vist einar átta eða níu,
svo að börnin, sem komast ekki
að á mánudaginn (nú, cöa þá
þeir fullorðnu) þurfa ekki að ör-
vænta.
SELDU BÆKIIR FYRIR
TÆPAR 20 MILUÖNIR
Almenna BókaféTagið og
styrktarfélag þess, Stuðlar h.f.,
héldu aðalfundi sl. fimmtudag.
Karl Kristjánsson, formaður
stjórnar Almenna bókafélagsins,
setti aðalfund þess og greindi frá
útgáfubókum ársins 1971. Félagið
gaf alls út 17 bækur auk gjafabók-
ar, þær voru allar eftir islenzka
höfunda nema ein — fimm bók-
anna voru ljóðabækur.
Baldvin Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Aimenna bóka-
félagsins, skýrði reikninga fé-
lagsins og rekstrarafkomu. Arið
1971 seldust bækur AB fyrir tæpar
20 milljónir króna. Voru heildar-
tekjur af útgáfunni mjög svipaðar
og árið 1970.
Benti hann á það að þótt eignir
félagsins væru mjög miklar um-
fram skuldir ætti það enn þá of
langt i land til að ná þvi markmiði
að ráða yfir sæmilegri greiðslu-
getu með eigin fjármunum.
Baldvin gerði og grein fyrir
helztu áformum félagsins i út-
gáfumálum á þessu ári. Auk svip-
aðrar útgáfu og undanfarið
hyggst félagið hefja útgáfu sér-
staks flokks vasabrotsbóka um
Framhald á bls. 18
ÁVÍSANIRNAR:
HANDVÖMM
EN ALLS EKKI
ÁSETNINGUR
Illu heilli flæktist saklaus aðili
inn i frásögn okkar af innistæðu-
lausum og fölsuðum ávisunum i
gærdag. Nafn Friðgerðar Jens-
dóttur var á tveimur ávisunum,
sem kaupmaður hér i bæ skaut
til okkar með þeim upplýsing-
um, að þær væru falsaðar.
Raunar var honurh — og þar
með okkur — nokkur vorkunn,
með þvi bankinn hafði neitað
móttöku annarrar ávisunarinn-
ar með þeirri athugasemd, að
undirskrift hennar væri ekki i
samræmi við rithandarsýnis-
horn, og á hinni — sem kaup-
maðurinn hafði ekki einu sinni
haft fyrir að framvisa — bar
upphæðinni, sem rituð var með
tölustöfum, ekki saman við þá,
sem skrifuð var með bókstöfum,
auk þess sem dagsetning
nefndrar ávisunar var „31.
febrúar”, sem eins og kunnugt
er telur aðeins 28 daga. Kaup-
maðurinn taldi þvi vist, að ávis-
unin væri fölsuð, og verður það
þvi skiljanlegra sem hann hafði
þá þegar undir höndum aðra
ávisun með sömu undirskrift,
sem hann var þegar búinn að
framvisa árangurslaust.
Nú hefur blaðinu hinsvegar
verið tjáð, að útgefandi ávisan-
anna hafi verið vita saklaus, og
höfum við enga ástæðu til að
véfengja það. Hér fór saman
handvömm og slysni. Hitt virð-
ist þó standa, að siðari ávisun-
inni hafi raunar verið breytt i
heimildarleysi, en ekki af útgef-
andanum, heldur af óþekktri
persónu, sem siðan hafi tekist
að prakka henni inn á fyrr-
nefndan kaupmann..
ARASARMAÐURINN
GAF SIG FRAM í GÆR
Við skýrðum frá þvi i gær, að á
þriðjudagskvöld hefði sextán ára
gamall piltur orðið fyrir likams-
árás og hlotið meiðsl af.
Sá, sem árásina gerði, var ó-
fundinn i fyrradag, en i gær las
hann frétt okkar af atburðinum i
Alþýðublaðinu og varð það til
þess að hann gaf sig fram við
rannsóknarlögregluna.
Við sögðum, að sá sem fyrir
árásinni varð, hefði hlotið meiðsl
á augnloki. Við gátum þess hins
vegar ekki, að sjálft augað skadd-
aðist og sauma þurfti 11 spor i
augnlokið.
Hann var strax eftir árásina
fluttur á slysadeild Borgarspitai-
ans, þar sem gert var að sárum
hans. Framhald á bls. 12
ENN DÆMI UM MOTLÆTIFISCHERS
Okkur er sagt að eigandi öku-
tækisins starfi hér i næsta ná-
grenni bæjarins, og Við ætlum
að það komi mönnum ekki á ó-
vart þó að við getum upplýst að
hann er áhugamaður um skák.
Gunnar Heiðdal Ijósmyndari
tók myndina í gærdag. -Og nú
geta menn dundað við það um
helgina að gizka á, hvort jeppa-
maðurinn sé aðdáandi Spasskis
eða hins langhrjáöa Fischers.
Laugardagur 3. júní 1972