Alþýðublaðið - 03.06.1972, Qupperneq 3
SAMTÖKIN SEM JAPÖNSKU TIL
RÆÐISMENNIRNIR SPRUTTU AF
FRAMTIDARAFORM ENGIN
NEMA AO KOLLSTEYPA
NÚVERANDI ÞJÓÐSKIPULAGI
Japönsku hryðjuverkamenn-
irnir þrir, sem frömdu fjölda-
morðin á flugvellinum i Tel-
Aviv á dögunum, tilheyra
félagsskap, sem heitir Rengo
sekugin, — sem útleggst Hinn
sameinaði rauði her.
Þessi samtök hafa til þessa
svo til eingöngu starfað i Japan.
Þau hafa engar hugmyndir á
takteinum um hvernig umhorfs
á að vera i Japan morgundags-
ins. Verkefni hreyfingarinnar er
fyrst og fremst niðurrif, — að
eyðileggja það þjóðfélag, sem
við lýði er.
Þessi samtök, sem telja sig r
aðhyllast kenningar og hug-
myndafræði Karls Marx, urðu
fyrst þekkt að ráði i Japan er
félagar úr samtökunum rændu
japanskri farþegaflugvél með
37 farþegum og neyddu flug-
mennina til lendingar á flugvelli
i höfuðborg Norður-Kóreu.
Flugvélarræningjarnir sem
voru 9 saman, voru umsvifa-
laust handteknir og sitja þeir
enn i fangelsi i Norður-Kóreu.
Einn þeirra heitir Takesi
Okamoto og er bróðir eins
Japananna, sem gerðu árásina
á flugfarþegana á flugvellinum i
Tel-Aviv.
Samtökin „Rengo sekugin”,
— Hinn sameinaði rauði her, —
voru stofnuð af nokkrum
japönskum stúdentum við
háskólann i næst stærstu borg
Japan, Osaka, undir lok sjöunda
áratugs þessarar aldar. í byrj-
un voru samtökin aðeins ein af
mörgum smáum klofningssam-
tökum á vinstra væng
japanskra stjórnmála, sem
sprottið hafa upp á siðustu árum
i háskólum i Japan.
Lögreglan segir, að félagar i
þessum samtökum hafi aldrei
verið fleiri, en 300. Samt sem
áður hafa foringjar samtakanna
sett sér það sem markmið að
velta fikissjjórninni i Japan úr
sessi og hyggjast þeir láta aga
og trúnað bæta upp lága tölu
félagsmanna.
í febrúarmánuði s.l. var hinn
27 ára gamli foringi Rengo
sekugin-hreyfingarinnar hand-
tekinn. Maður þessi, Tsunio
Mori, leyndi þvi ekkert, að hann
án minnstu eftirsjár eða um-
hugsunar svipti þá félagsmenn
lifi, sem ekki virtu reglurnar
um algera hlýðni við hann.
Mori þessi varð foringi sam-
takanna eftir flugránið i hitteð-
fyrra og hætti þá um leið námi
sinu við háskólann i Osaka. I
skóla var hann sérlega góður
skylmingamaður og tók hann að
sér byltingarþjálfun félaga
sinna, sem fram fór i fjalla-
héröðunum vestan Tókió.
I febrúarmánuði s.l. voru
margir foringjar Rengo sekugin
handteknir eftir að lögreglan
hafði komizt á snoðir um felu-
stað þeirra. Mori og vinir hans
flýðu þá til bæjarins Karuizawa,
þar sem þeir vigbjuggust i húsi
einu og höfðu vinnukonu sem
gisl.
Eftir að fleiri hundruð
lögregluþjónar höfðu setið um
húsið i fjóra daga gáfust hryðju-
verkamennirnir upp. t yfir-
heyrslum varð svo uppskátt um
þær aðferðir, sem notaðar höfðu
verið til þess að herða agann i
samtökunum. Margir
„félaganna” viðurkenndu að
hafa verið viðstaddir morð á
félagsmönnum, sem höfðu vikið
út af þeirri linu, sem Mori lagði.
Samkvæmt tilvisun hefur
lögreglan nú fundið lik þriggja
slikra fórnardýra, — þar af lik
tveggja kvenna, sem myrtar
voru vegna „svika” við
málstaðinn.
Allt var þetta fólk pint til
dauða samkvæmt skipunum
Moris. Kona ein tók m.a þátt i
drápieiginmanns sins, sem sak-
aður var um að hafa óhlýðnast
Mori. Karl og kona voru drepin
fyrir þá einu sök, að vera ást-
fangin hvort af öðru. Algert
skirlifi var ein af forsendunum i
byltingarbaráttunni.
Flestir félagarnir i Rengo
sekugin, eru úr hópi lægri
millistéttarfólks. Margir félag-
anna voru langt komnir með há-
skólanám, en næstum enginn
lauk prófi. „Félagarnir” vildu
verða atvinnubyltingarmenn.
Með blóðbaðinu á flugvellin-
um i Tel-Aviv hefur Rengo
sekugin fengið þá auglýsingu og
umtal, sem hreyfingin hefur
sótzt eftir svo sannfæra mætti
fólk um tilgang samtakanna og
þau meðöl, sem hreyfingin
myndi ekki hika við að nota til
þess að ná takmarki sinu.
Þeir Japanar, sem hafa fylgst
með Rengo sekugin, urðu hins
vegar ekkert undrandi. Þeir
hafa lengi vitað hvert væri tak-
mark þessara samtaka og til
hvaða ráða þau gætu gripið til
þess að ná þvi takmarki.
EINN ILAGI AF150
ÞRIR
VORU VITA BREMSULAUSIRI
Lögreglan tók úr umferð i
fyrradag þrjár bifreiðar, sem
voru gjörsamlega bremsulausar
og mega eigendurnir búast við
háum sektum. Með þessu hafa
eigendurnir gerzt sekir um vita-
vert kæruleysi, sem hæglega
hefði getað endað með stórslys-
um, ef lögreglan hefði ekki gripið
i taumana.
Þriðja skyndiskoðun lögregl-
unnar i Reykjavik var fram-
kvæmd i fyrrakvöld. Fjörutiu bil-
ar voru skoðaðir og reyndist eng-
inn þeirra i lagi.
Af 20 bilum voru númerin klippt
af, notkun niu bila var bönnuð og
11 fengu frest til viðgerða.
A siðastliðnum þremur vikum
hefur lögreglan tekið til skyndi-
skoðunar alls 150 bila og af þess-
um fjölda hefur aðeins einn
reynzt i fullkomnu lagi.
Tæplega helmingur þeirra bif-
reiða, sem hafa verið skoðaðar
hafa verið teknar úr umferð eða
alls 69. Notkun 36 bila hefur verið
bönnuð og 41 hefur fengið frest til
viðgerða.
Við höfðum tala af Herði Valdi-
marssyni, varðstjóra, i gær, en
hann er einmitt sá, sem haft hefur
umsjón með skyndiskoðununum,
sem gerðar hefa verið.
Hann fullyrti, að i umferðinni i
Reykjavik væru fjölmargar
bifreiðar, sem væru stórhættuleg-
ar og ekkert annað ætti að gera
við en að klippa af númerin.
„Þetta er oft svona á vorin”,
sagði hann. „Þá er allt dregið
fram i dagsljósið. Menn fara að
tjasla upp á bilana, en með mis-
jöfnum árangri”.
Þegar Hörður sagði okkur frá
bilunum þremur, sem voru vita
bremsulausir, vildum við ekki
trúa þvi, að nokkur væri svo bi-
ræfinn að aka bil i þannig ásig-
komulagi.
En hann fullyrti, að svo hefði
verið, það hefði vantað bæði fót-
og handhemla.
Sagði hann, að ökumennirnir
hefðu borið þvi við, að þeir hefðu
verið að flytja bilana til viðgerð-
ar.
„Þetta er óskaplegt gáleysi”,
sagði Hörður, ,,aö ekki sé meira
sagt”.
r
GROÐURINN
Sigriður J. Magnússon, fyrr-
verandi formaður Kvenrétt-
indafélags tslands, verður átt-
ræður n.k. mánudag.
1 tilefni af þvi mun Kvenrétt-
indafélag Islands taka á móti
gestum hennar Hallveigarstöð-
um kl. 4—7 á afmælisdaginn.
Fást-stjóri
Þessa dagana standa yfir æf-
ingar á leikritinu Fást, i Þjóð-
leikhúsinu, en leikurinn verður
sýndur á Norræna leikhúsþing-
inu, sem verður haldið hér i
Reykjavik dagana 12—15. júni
n.k. Aðeins er fyrirhugað ein
sýning á leiknum og er leikurinn
æfður sérstaklega upp aftur af
þessu tilefni. Karl Vibach, leik-
hússtjóri frá Lubeck (mynd),
kemur til landsins þann 8. þ.m.
og stjórnar hann siðustu æfing-
um á ieiknum.
Skólaslit
Loftskeytaskólanum var sagt
upp 23. mai s.l. Eins og undan-
farin ár starfaði skólinn með
tveimur bekkjadeildum.
Nemendur i 1. bekk voru 13 i
upphafí skóláárs, en 10 i 2. bekk. 9
nemendur þreyttu likapróf og
hlaut Guðmundur Gunnarsson
hæstu meðaleinkunn 8.44.
Sýning
Eyjólfur Einarsson heldur
málverkasýningu hjá Guð-
mundi Árnasyni, Bergstaða-
stræti 15, nú um helgina. Eyjólf-
ur sýnir akvarellur og oliumál-
verk, sem hann hefur gert
undanfarið.
Sýningin er opin frá kl. 2 til 8
e.h.
HERNAÐUR I
LYSTIGARÐI
Samkeppni i Myndlista- og
handiðaskólanum i vetur, um
skreytingu á vegg eins af mann-
virkjunum, sem reist voru i
öskjuhliðinni á striðsárunum,
varð til þess að meginpartur
þessara mannvirkja verður lát-
inn standa sem hluti af útivist-
arsvæði i öskjuhliðinni.
Vilhjálmur Sigtryggsson,
skógræktarfræðingur, lauk ný-
lega við heildar skipulagsupp-
drátt af útivistarsvæði þessu, og
var hugmund hans að öll þessi
mannvirki yrðu rifin. Þegar
nemendur Handiðaskólans réð-
ust i að skreyta eitt mann-
virkjanna, sem er á áberandi
stað, endurskoðaði hann hins-
vegar afstöðu sina, sagði hann i
viðtali við Alþýðublaðið i gær.
Framhald á bls. 19
Laugardagur 3. júni 1972
o