Alþýðublaðið - 03.06.1972, Page 5
útgáfufélag Alþýðublaðsins h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson
(áb.). Aðsetur ritstjómar Hverfisgötu 8-10. Blaðaprent h.f.
SAMÞYKKT
Það er ekki oft, sem þingmenn
stjórnarandstöðunnar fá samþykktar
tillögur eða fr.vörp, sem þeir leggja
fram á Alþingi. Telji stjórnarflokkarn-
ir sig ekki geta fellt málin af einhverj-
um ástæðum, þá eru þau leidd af með
öðrum hætti, — stöðvuð í nefnd, vísað
til ríkisstjórnar eða þviumlíkt.
Þó kemur það fyrir, að þingmenn
stjórnarandstöðunnar fá samþykktar
tillögur eða frumvörp. Þannig fengu
t.d. i vetur tveir þingmenn Alþýðu-
flokksins, þeir Karl Steinar Guðnason
og EggertG. Þorsteinsson, samþykktá
Alþingi frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um lifeyrissjóð sjó-
manna.
Umrætt frumvarp um breytingu á
lögum um lífeyrissjóð sjómanna var
flutt af hálfu Alþýðuflokksmannanna
til leiðréttingar á misrétti í lífeyris-
málum. í lögunum um lífeyrissjoð sjó-
manna voru ákvæði um, að sjómaður
þyrfti að hafa greitt i sjóðinn í 10 ár til
þess að kona hans fengi rétt til lifeyris-
greiðslu ef eiginmaðurinn félli frá. I
lögum um lífeyrissjóði annara verka-
lýðsfélaga eru þau ákvæði hins vegar i
gildi, að nægilegt er að eiginmaðurinn
hafi greitt iðgjald í lífeyrissjóð minnst
sex mánuði á s.l. ári til þess að eigin-
kona hans öðlist rétt til lífeyris úr
sjóðnum falli eiginmaðurinn frá.
Þarna var eiginkonu sjómannsins
búið miklu lakara öryggi, en eiginkon-
um annara iaunþega og þetta misrétti
vildu þingmenn Alþýðuflokksins fá
leiðrétt þannig, að sömu skilmálar um
lifeyrisréttindi yrðu látnir gilda i líf-
eyrissjóði sjómanna og i öðrum al-
mennum lifeyrissjóðum i landinu.
Þá voru lög lífeyrissjóðs sjómanna
einnig með þeim hætti, að ekkjur
ungra sjómanna, sem farast, fengu
engar makabætur úr sjóðnum. Var
þarna um enn eitt misréttið að ræða i
lifeyrismálunum, því t.d. lífeyrissjóðir
landverkafólks gera ráð fyrir því, að
ekkjur ungra verkamanna gætu fengið
makabætur úr þeirra lífeyrissjóðum.
Þetta misrétti vildu þingmenn Alþýðu-
flokksins einnig fá leiðrétt.
Þetta var efni frumvarps Alþýðu-
flokksþingmannanna um breytingu á
lögum um lífeyrissjóð sjómanna, sem
Alþingi samþykkti.
Þannig geta þingmenn i stjórnarand-
stöðu komið fram þörfum málum á Al-
þingi, enda þótt hitt sé þvi miður al-
gengara, að þingmeirihluti stjómar-
flokka meini þeim það með einum eða
öðrum hætti.
OG FELLT
Dæmi um slikt, þar sem þing-
meirihluti stjórnarsinna stöðvar fram-
gang stórmáls, sem stjórnarandstöðu-
þingmenn flytja, er t.d. afdrif frum-
varps til laga um kaupábyrgðarsjóð,
sem tveir Alþýðuflokksþingmenn,
Eggert G. Þorsteinsson og Jón Ármann
Héðinsson, fluttu. Þar var um stórmál
að ræða, sem svæft var í nefnd og látið
liggja þar óafgreitt i allan vetur.
Frumvarp þetta gerði ráð fyrir því,
að stofnaður yrði sérstakur sjóður,
kaupábyrgðarsjóður, og átti tilgangur
sjóðsins að vera að tryggja launþegum
greiðslur launa, orlofsfjár og annara
samningsbundinna hlunninda, þótt at-
vinnurekandi yrði gjaldþrota eða
kæmist i greiðsluþrot af öðrum
ástæðum. Sjóðurinn átti að heyra undir
stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs, en
fjármagn sjóðsins átti að mynda með
því að innheimta sérstakan skatt af at-
vinnurekendum, enda sjóðurinn
nokkurs konar tryggingasjóður fyrir
þó.
Þetta merka mál var stöðvað í
þinginu,- að því er virðist án nokkrar
ástæðu. Þó vita það allir launþegar,
hversu mikil þörf er á þeirri tryggingu,
sem sjóðurinn átti að veita.
Alþýðuflokksmenn hafa vakið máls
á þessu stórmáli og lagt fram tillögur
til lausnar. Þeim tillögum munu þeir
fylgja eftir þangað til lausnin er
fengin.
RÉTTUR HINS
STERKASTA!
Enginn Islendingur, nema ef
vera skyldi rilstjóri Þjóðviljans,
neitar þvi, að nú lifum við islend-
ingar á einhverjum þeim mestu
verðbólgutimum, sem við höfum
upplifað. Sifelldar hækkanir
dynja yfir bæöi á vöruverði og
þjónustu.
A slikum timum þenslu og
spennu i þjóðfélaginu verða þeir
alltaf verst úti, sem ekki eiga
fjármagn og eignir til þess að
verja sig með, — fátækasta fólkið
i þjóðfélaginu. Það hefur enga
peninga tii þess að leggja i fast-
eignir til þess að koma þannig i
veg fyrir verðrýrnun á eigum sin-
um. Það hefur enga peninga til
þess að gera magninnkaup á mat-
vælum til þess að verja sig fyrir
stöðugt hækkandi framfærslu-
kostnaði. Það, fátækasta fólkið i
þjóðfélaginu, verður að bera að
fullu alla verðbólgubyrðina.
Til allrar hamingju eiga um
85% islenzkra fjölskyldna sina
eigin ibúð. En hver hugsar fyrir
hinum, — þeim 15%, sem verða
að leigja af öðrum. Hver er staða
þess fólks á þenslutimum, eins og
nú? Hver verður til þess að verja
þcirra rétt.
Einn af alþingismönnum Al-
þýöuflokksins, Sigurður E. Guð-
mundsson, flutti á alþingi i vetur
tillögu til þingsályktunar um ráð-
stafanir til þcss að tryggja hóflegt
leigugjald fyrir leiguibúðir og
koma i veg fyrir húsaleiguokur.
Þeirri tillögu var visað til rikis-
stjórnarinnar, sem þýðir i raun-
inni, að flutningsmaður hafi kom-
izt að raun uin að ekki var mögu-
leikifyrir þvi að fá tillöguna sam-
þykkta og hafi þvi fallizt á að visa
hcnni til rikisstjórnarinnar i
þeirri von, að það væri þó betra,
en ekki.
Við skulum rifja þessa tillögu
upp nú. Hún sýnir, hvað þing-
menn Alþýöuflokksins vildu aö
gert væri I málum þeirra, sem
verða að leigja hjá öörum.
Tillagan hljóöar svo:
Neðri deild Alþingis ályktar að
fela rikisstjórninni að láta fram
fara könnun á þvi, með hverjum
hætti tryggja megi, að leigugjaldi
fyrir ibúðir verði i hóf stillt og
komið verði i veg fyrir húsaleigu-
okur. Könnun þessi skal einnig ná
til annarra atriða, er máli skipta,
svo sem réttinda og skyldna að-
ila, umgengnishátta, afnotaréttar
lcigutakans o.fl. af þvi tagi. Stefnt
skal að þvi, að könnun þessari
Ijúki eigi siðar en á komandi
sumri, 1972.
i greinargerð sagði Sigurður m.a.
svo:
Svo er að sjá sem ekki séu fyrir
hendi ncinar tölur um það, hve
stór hluti þjóðarinnar býr I leigu-
liúsn. Sennilega er þó ekki fjarri
lagi að álykta, að það sé um það
bil 15-20%. I mjög mörgum tilfell-
um á þar hlut aö máli fátækasta
FÉLAGSFUNDUR
Næst komandi mánudagskvöld, 5. júni, efnir Alþýðúflókksfélag
Reykjavikur til félagsfundar i Iðnó, uppi, og hefst fundurinn kl.
8,30 e.h.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing
2. Sighvatur Björgvinsson, ritstjóri,
flytur stutta ræöu um störf Alþýðuflokksins á þingi I vetur.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og mæta stund-
vislega.
fjölskyldunnar verður farin sunnudaginn 11. júni n. k.
frá Alþýðuhúsinu v/Hverfisgötu
Feröaáætlun:
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR
Lagt af staö kl. 9. f.h. frá Alþýðuhúsinu v/Hverfisgötu. Ekið austur í Galtalækjarskóg
og tekin upp nestispakki. Dr. Haraldur Matthiasson lýsir landi og sögu. Þá verður
ekiðausturað Þórisvatni og framkvæmdir og áætlanir og mannvirki skýrð af kunn-
ugummanni. Ennfremurmun Dr. Haraldurlýsa landiogsögu.
Á heimleið verður stanzað við Búrfellsvirkjun og hún skoðuð, og mun Dr. Haraldur
hafa þar landkynningu, sem áður.
Að lokum verður komiðað Ámesi í Gaulverjabæjarhreppi og borðaður kvöldverður.
Þar flytur ávarp varaformaður Alþýðuflokksins Benedikt Gröndal, ennfremur
verður einsöngur, GuðlaugurTr. Karlsson syngur.Auk þess mun hann stjórna fjölda-
söng.
Farseðlar kosta kr. 450,00 og er þar allt innifalið, svo sem ferðin,tvær máltíðir og
gosdrykkir.
Væntanlegir þátttakendur láti vinsamlegast vita sem fyrst í skrifstofur Alþýðu-
flokksins. Símar 15020 og 16724. Nú þegarervitað um mikia þátttöku, þar sem hér er
um að ræða ódýra en glæsilega ferð.
Nefndin.
f
Laugardagur 3. júni 1972